Bæjarins besta - 17.11.2016, Side 8
8 FIMMTudagur 17. NÓVEMBER 2016
Hjálmar Forni Sveinbjörns
son, sem einnig er þekktur sem
dragdrottningin Miss Gloria
Hole, gekk á laugardaginn upp
Esjuna í fullum skrúða. Tilgang
ur göngunnar var að vekja athygli
á HIVsamtökunum á Íslandi og
auka umræðu um sjúkdóminn,
koma í veg fyrir fáfræði, sem og
að hvetja til ábyrgrar kynhegð
unar. Hjálmar Forni segir að
upphafið að átakinu megi rekja til
þess er hann bjó með smituðum
manni og fékk spurningar líkt og
hvort þeir notuðu sömu hnífapör:
„Þá vissi ég að ég þyrfti að gera
eitthvað til að vekja athygli á
þessu, því það einfaldlega eru
ekkert allir sem vita að þeir sem
eru smitaðir í dag smita ekki
vegna þeirra lyfja sem þeir eru
að taka.“
Hjálmar, sem ólst upp að
hluta til á Ísafirði, hefur verið
vel virkur í dragsamfélaginu
á Íslandi og var til að mynda
kosinn dragdrottning ársins
árið 2014. Einnig hefur hann
verið öflugur göngugarpur og
Gekk upp Esjuna
í fullu dragi
gekk til að mynda frá Ísafirði til
Reykjavíkur árið 2009 ásamt Jóni
Björnssyni, þar sem þeir gengu
um 45 kílómetra dag hvern. Það
var þó talsvert ólíkt því að ganga
upp fjall í fullu dragi og á háum
hælum.
Hjálmar segir gönguna hafa
gengið merkilega vel miðað við
aðstæður. Var hann í um fjórar
klukkustundir að koma sér bæði
upp og niður á hælunum, en hann
hafði þó einungis lagt upp með
að fara á þeim upp en gleymdi
að taka með sér strigaskó til að
skipta fyrir niðurleiðina, það
vildi þó ekki betur til en svo að
strigaskórnir gleymdust í bílnum,
svo hælarnir urðu að duga: „Það
var svolítið erfitt þegar ég var að
koma upp að Steini en þar var
hálka, svo að ég fór mjög hægt
yfir og svo var miklu erfiðara að
labba niður en upp á hælunum.“
En hversu mikið erfiðara er að
ganga á fjöll á hælum en göngu
skóm? „Ég hef forðast í gegnum
tíðina að nota gönguskó, fer bara
allt á Crocks eða strigaskóm og
ég hef alltaf sagt að ef við ættum
að fara allt á gönguskóm – þá
hefðum við fæðst með hófa.
Ég hugsa að það hafi hjálpað
mér í að styrkja á mér ökklana
fyrir þessa göngu að hafa gengið
svona mikið í skóm án stuðnings,
gönguskór hefðu örugglega gert
þetta erfiðara.“
Þrátt fyrir að hafa farið upp
Esjuna í kulda og trekki á hælum,
lætur Hjálmar vel að göngunni
og segir hana hafa gengið betur
en hann hafi fyrirfram þorað að
vona: „Ég held að hann þarna
uppi hafi ákveðið að gefa mér
gott veður í þetta, þar sem báða
dagana í kring var stormur. Það
var reyndar talsvert kalt þegar ég
var kominn upp, haglél, rok og
kuldi, en bara ansi hressandi á
laugardegi.“ Ferðin tók í heildina
um fjórar klukkustundir og gengu
amma og afi Hjálmars með
honum, unnusti hans og nokkrir
vinir, þar á meðal Sverrir Ómar
sem er að gera heimildarmynd
um gönguna sem og smokka
árvekni verkefni sem Hjálmar