Bæjarins besta - 04.01.1995, Qupperneq 3
Um áramót
ÁRAMÓT eru stund upp-
gjörs, litið er yfir farinn veg,
skoðað og skilgreint það sem
að baki er og jafnframt horft til
framtíðar. Fremstu menn þjóð-
arinnar, leiðtogarnir hafa talað,
forsætisráðherra, biskup og For-
seti Islands. Hvað er þeim efst í
huga? Lýðveldishátíðin á Þing-
völlumhinn 17. júní 1994, sem
verður þeim minnistæð sem
hana sóttu og ekki síður hinum
erkomustekki vegnaskipulags
umferðarinnar. Einnig varofar-
lega í huga forsætisráðherra,
efnahagsbati, sem talinn er vera
til nokkurrar frambúðar, ekki
síst vegna hækkandi afurða-
verðs á erlendum mörkuðum.
Forsetinn vakti máls á sér-
stöðu hinnar smáu íslensku
þjóðar. Þjóðar sem hefur lagt
rækt við tungu sína og arfleifð,
einkum á menningarsviðinu.
Almennt vex þeirri skoðun
fy lgi, að sú þróun verði að þjóðir
og þjóðarbrot fylgi fordæmi
okkar Islendinga í þessu efni í
tímum vaxandi samruna í efna-
hagsstjórn heimsins. Forsetinn
lagði á það ríka áherslu að
kunnátta Islendinga í tungu-
málum væri okkur nauðsyn og
þá ekki síður að sporna við því
að ensk tunga yrði ráðandi í
hugsun Islendinga. Undir það
skal tekið, að fyrsta erlenda
tungumálið í grunnskóla verði
eitt Norðurlandamálanna
þriggja. Danskan stendur vissu-
Iega fyrir sínu sem fyrr.
Vestfirðirhafasérstöðu.bæði
landslag og ekki síður íbúar
þeirra sem hluti hinnar íslensku
þjóðar. En setjum okkur í spor
annarra Islendinga, sem ekki
þekkja til vestfirskra byggða
nema af afspurn. Hvað finnst
þeimerþeirbeinakastljósi sínu
að málefnum Vestfirðinga árið
1994?
Þær fréttir sem borist hafa
héðan að vestan hafa of oft verið
neikvæðar og er þá ekki átt við
fréttir af náttúruhamförum, sem
vissulega hafa verið tíðar og
skaðlegar. Við þær ræður ekki
mannlegur máttur. Mikið ber á
deilum einkum á pólitíska
sviðinu og nægir að nefna
Vesturbyggð því til stuðnings.
Þótt mikið hafi gengið þar á og
mörgum illskiljanlegt ef ekki
óskiljanlegt með öllu, eru
dæmin fleiri. Deilur um fram-
tíð atvinnufyrirtækja í Bolung-
arvík bera of mikinn keim
deilna pólitískra andstæðinga,
sem áður hafa setið í bæjar-
stjórn.
Vissulega hefur annað borið
hátt, ekki síst stórkostlegar
endurbætur í samgöngumálum.
Jarðgöng sem tengja Skutuls-
fjörð, úrTungudal, og Súganda-
fjörð, í Botnsdal, hafa þegar
nýst nú um liðnar hátíðir og
munu enn gleðja íbúana, jafnvel
þann tíma sem lifir vetrar. Ekki
verður breytingin minni þegar
göngin yfir í Önundarfjörð
opnast, í Breiðadal. Þessi sam-
göngubót verður væntanlega
komin að fullum notum fyrir
árslok, þótt eitlhvað skorti á
endanlegan frágang. Ymsir
Vestfirðingar hafa lagt málinu
lið, en án stuðnings þingmanna
úr öðrum kjördæmum hefðu
jarðgöng ekki orðið að veru-
leika.
Vonandi verða þau okkur
lyftistöng til framtíðar og til
þess fallin að auka tengsl og
samheldni Vestfirðinga. Ekki
mun af veita á þessum tímum
þegar íbúum fækkar ár frá ári.
Síðasta áratug hefur íbúum
Vestfjarða fækkað um eitt
þúsund.
í stuttu máli er ekki auðvelt
að telja til alla þætti sem máli
skipta. En nokkuð ljóst er að
eindrægni og jafnframt ein-
lægni í mannlegum saamskipt-
um ásamt heiðarleika og virð-
ingu fyrir skoðunum annarra
virðast æ sjaldnar eiga upp á
pallborðið. Þessu þarf að breyta,
en um leið verða menn að virða
þær skráðu og óskráðu reglur
sem tryggja eiga jafnræði í sam-
skiptum, ekki síst á hinu póli-
tíska sviði.
Það sem hér er sagt gildir um
Vestfirðinga jafnt og aðra.
Margir hafa bent á að þeir sem
taka þátt í pólitík skuli njóta
sannmælis. Undir þau orð er
tekið hér, en minnt á að stjórn-
málamenn eiga ríkan þátt í að
skapa umtalið sem þeir njóta
eða gjalda eftir atvikum. Fjöl-
miðlarnir eru óvægnir ef svo
ber undir og betra að umræðan
snúist um efnisatriði en per-
sónur. Engu að síður á umfjöl-
lunin í fjölmiðlum rétt á sér,
þótt efnistökin kunni að fara úr
böndunum. Fróðlegt verður að
sjá hver dómur framtíðarinnar
verður um afsögn Guðmundar
Áma Stefánssonar, fyrrverandi
félagsmálaráðherra, og þátt fjöl-
miðla í henni.
Deilurnar í nýja sveitar-
félaginu, Vesturbyggð, bera
þess merki að samtaða er rofin
með fulltrúum í hinni nýju
sveitarstjórn. Skaðinnerfólginn
í því að þær vonir sem bundnar
voru við sameininguna eru
brostnar. Ennþá eru efnisatriði
öllum almenningi, að minnsta
kosti utan sveitar, hulin. Sveit-
arstjórnarmenn eru þjónar al-
mennings. Þess vegna ber þeim
skylda til að upplýsa efnis-
atriðin að baki deilunnar.
Geri þeir það ekki mun bæjar-
stjórnin nýja, sem hefur klofnað
á miðju fyrsta starfsári sínu,
styrkja trú margra um eilíft
sundurlyndi þeirra tæplega
9.500 íbúa sem enn byggja
Vestfirði. Vestfirðingar eiga
það ekki skilið. Þeir eiga skilið
trú þeirra sjálfra og annarra á
að samheldni vaxi og eflis.
Vestfirðingum er óskað
gleðilegs nýs árs, bjartrar fram-
tíðar hér vestra og eflingar
mannlífs.
-Stakkur.
Kaupfélag ísfirðinga
Framvinda mála ræðst
á næsta stjórnarfundi
- gengið hefur verið frá kaupum félagsins á húsnæði Kl. Hugmyndir eru uppi um að opna verslun
á 2. hæð hússins
FYRIR áramótin var gengið
frá kaupum Kaupfélags ís-
firðinga á húsnæði því sem
félagið hefur verið í um ára-
tuga skeið, en það hefur um
árabil verið í eigu Sambands
íslenskra samvinnufélaga.
Kaupverðið hefur ekki fengist
uppgefið en framtíðaráform
félagsins verða væntanlega
ákveðin á næsta stjórnarfundi
sem haldinn verður innan
skamms. Hluti starfsemi Kaup-
félags ísfirðinga, verslunin
Einar og Kristján, hefur verið
til húsa að Hafnarstræti 6, en
það húsnæði hefur verið selt
Olíufélaginu Esso hf. Mun
Einarog Kristján flytjatil bráða-
birgða á næstu dögum í hús-
næðið við hliðina, sem er í eigu
Framsóknarflokksins og vefn-
aðarvörudeild félagsins verður
áfram til húsa við Silfurtorg.
Samkvæmt heimildum
blaðsins eru uppi hugmyndir
um að sameina versluninaEinar
og Kristján og vefnaðarvöru-
deildina undir einu þaki á 2.
hæð Kaupfélagsins en ákvörð-
un þess efnis verður ekki tekin
fyrr en á stjórnarfundi sem
haldinn verður innan skamms.
„Við höfum fengið leigt hús-
næði undir Einar og Kristján til
bráðabirgða og því verður
verslunin ekki lögð niður. Við
erum rétt nýbúin að ganga frá
kaupum á þessu húsi og það á
eftir að boða til stjórnarfundar.
Á þeim fundi verður meðal
annars rætt um framvindu mála
hér og þess vegna get ég ekki
sagt til um hvort opnuð verður
verslun á 2. hæðinni. Minn
draumur í gegnum árin hefur
verið að setja verslanirnar hér á
hæðina en það er einungis minn
eigin draumur, það er stjórnar-
innar að taka endanlega ákvörð-
un,” sagði Guðríður Matthías-
dóttir, kaupfélagsstjóri.
Kaupfétag ísfirðinga eignaðist fyrir áramótin, aftur húsnæði það sem féiagið
hefur verið í um áratuga skeið.
F ÞU FENGIR ÞRJAR
ÓSKIR UPPFYLLTAR...
... hvers mundir þú óska þér?
Ein óskanna varðar örugglega peninga.
Þú gætir látið hana rætast með því að spila í HHI95.
Það er RÍK ástæða til að vera með því HHÍ greiðir meira*
út til vinningshafa en nokkurt annað happdrætti hér á landi.
'Hundruðir milljóna króna skilja að 1. og 2. sætiö!
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Fyrstu
börnin
Fyrstu börn ársins
1995 fæddust klukkan
rúmlega sjö á nýárs-
morgun á faeóingar-
deild Landspítalans í
Reykjavík. Hér var um
að ræða tvíbura, dreng
og stúlku sem fædd-
ust rúmum tveimur
mánuðum fyrir tímann
og vógu aðeins fimm
og sex merkur. Voru
þau tekin með keisara-
skurði og sett strax í
súrefniskassa. For-
eldrar tvíburanna
koma frá Bolungarvik
og heita Vilborg Arnar-
dóttir og Halldór
Þórisson.
Ferða-
máia-
fuiitrúi í
fuiit starf
Á fundi ferðamála-
nefndar ísafjaróar-
kaupstaðar sem haldin
var í byrjun desember
var lögó fram kostn-
aðaráætlun vegna
vaentanlegrar ráðning-
ar Feróamálafulltrúa
ísafjarðarkaupstaðar.
Samkvæmt henni er
gert ráð fyrir að launa-
kostnaður vegna hans
verði taepar 2,2 mill-
jónir króna auk þess
sem gert er ráó fyrir að
kostnaður við skrif-
stofuhald verði um 600
þúsund krónur. Ráð-
gert er aó feróamála-
fulltrúinn verði í fuliu
starfi um tólf mánaða
skeið. í fundargerð
feróamálanefndar
segir að gert sé ráð
fyrir aó hagsmuna-
aðilar greiði allan
annan rekstur s.s.
markaóssetningu,
auglýsingar og þátt-
töku í ferðakaup-
stefnum og sýningum.
Þá er gert ráó fyrir aó
settur verði á stofn
átakssjóóur hags-
munaaðilanna til að
mæta þeim kostnaði.
Ferða-
máianefnd
kaupir
Á fundi ferðamála-
nefndar sem haldinn
var 27. desember var
síðan lagt fram bréf frá
Ferðamálafélagi
ísafjarðarsýslu, þar
sem óskað er eftir að
ferðamálanefndin
kaupi eignir félagsins
frá rekstri Upplýsinga-
mióstöðvar ferðamála
á ísafirði, sem metnar
eru á 130 þúsund
krónur. Nefndin mælir
með að þetta verði
gert. Þá samþykkti
nefndin á sama fundi
að bæjarsjóður keypti
15 vættarkort af Ást-
hildi Þóróardóttur í
auglýsingaskyni, fyrir
15 þúsund krónur.
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995
3