Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.01.1995, Síða 4

Bæjarins besta - 04.01.1995, Síða 4
 Óháð vikublað á Vestfjörðum Útgefandi: H-prent hf. Sólgötu 9, 400 ísafjörður ® 94-4560 O 94-4564 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ Á VESTFJÖRÐUM STOFNAD 14. NÓVEMBER 1984 iblað Blaðamaður: 'ðum Hermann L: Snorrason f Abyr gðarmenn: irður Sigurjón J. jrour Sigurðsson J og Halldór Sveinbj örnsson » 94-5222 J. títgáfudagur: n Miðvikudagur Bæjarins besta er aðili að samtök- um bæjar- og héraðsfréttablaða Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið Peningar almennings Svör stjórnmálaforingjanna við hefðbundnum áramótaspurningum liggja fyrir. Að venju er ekki svo ýkja mikið að græða á svörunum. Stjórnmálamenn eru margir hverjir snillingar í að segja fátt og jafnvel ekkert í þó nokkuð mörgum orðum. Af áramótagreinum landsfeðranna má ráða að stjórnarandstaðan hyggst notfæra sér óróann á vinnumarkaðnum. Talsmenn hennar munu því kynda undir reiði Iaunafólks yfir þeirri geigvænlegu misskiptingu tekna, sem á sér stað í þjóðfélaginu. Þessi afstaða leysir ekki vanda Iáglauna- fólks, en hún er pólitísk taktík og á sér langa hefð. Sjúkraliðar sömdu fyrir áramót, öllum á óvart. Bæði þeir og við- semjendur þeirra höfðu gefið út yfirlýsingar um að leiknum væri frestað fram yfir áramót. En skyndilega lá samningur á borðinu. Og víst ku fyrirbirgðið bera samningsheitið þótt gildistíminn hafi verið runninn út áður en prentsvertan þornaði. Kjarasamnings sem gildir í einn og hálfan sólarhring verður að gera í Heimsmetabókinni. En eins og margur er knár þótt hann sé smár þá er hættulegt að vanmeta sjúkraliðasamninginn, síst af öllu hugsanlegan áhrifamátt hans, sem fordæmis. Samningamál hinna ýmsu stétta eru að koma upp á borðið og kjaramálin verða í brennidepli á komandi vikum og mánuðum. Þegar stjórnmálabaráttan fyrir alþingiskosningarnar bætist við er ljóst, að gengi þjóðarinnar á nýbyrjuðu ári, og reyndar til lengri tíma litið, mun ráðast af því hvernig til tekst á þessum vettvangi. Þarna takast á ólíkir hagsmunahópar og mikið er húfi. En það eru fleiri en stjórnmálaleiðtogarnir sem Iáta ljós sitt skína um áramótin. Fjöldi þjóðkunnra karla og kvenna setur sig í stellingar yfir minnisstæðum atburðum líðandi árs, að mati hvers og eins. I þeim kálgarði kennir margra grasa. „A nýju ári vænti ég þess að farið verður betur með peninga al- mennings.” Þessi annars þarfa áminning er höfð eftir starfsmanni fyrir- tækis, sem gaukaði nokkurra milljón króna jeppabifreið að fráfarandi forstjóra, bara rétt sí svona að skilnaði. Hvað eru peningar almennings? Menn eru væntanlega sammála um að skattar og skyldur til hins opinberra falli undir hugtakið. Stopp. Lengra virðist skilgreiningin ekki ná. En hvað með fjármuni, sem almenningur greiðir fyrir vöru og þjónustu til fyrirtækja, opinberra og í einkaeign. Eru það ekki peningar almennings, eðahvaðan koma þeir, ef svo er ekki? Auðvitað á hvert og eitt fyrirtæki líf sitt undir því komið, að peningar almennings renni til þess. Stjórnendur fyrirtækja, sem fara vel með tekjur þess, eiga auðveldara með að lækka vöru og þjónustugjöld, en hinir sem telja þeim einum komi það við, hvernig þeir ráðkast með ,,eigið fé”, eins og Seðlabankastjórinn orðaði það svo eftirminnilega á sínum tíma. Það kemur almenningi jafnt til góða og bein skattalækkun, að útgjöld til framfærslu og fyrir þjónustu lækki. Þetta fellur því vel undir hugtakið að fara vel með peninga almennings. Það getur hins vegar engan veginn talist að fara vel með peninga almennings að gefa mönnum gjafir, að vermæti nokkurra ára launa venjulegs fólks, fyrir það eitt að hætta störfum. A því og vinargreiðum stjórnmálamannanna er ekki sjáanlegur munur. s.h. / Isafjarðarkaupstaður Leikskólinn Bakkaskjól Starfsmenn óskast nú þegar. Um er að ræða eina 100% stöðu og eina 50% stöðu e.h. Einnig vantar starfsmann í ræstingar. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 3565. Lttið um öxium áramót • Lttið um öxi um áramút Hugleiðingar við ára- mót 1994-1905 „ÁRAMÓTIN eru í mínum huga tímamót sem hafa yfir sér einhvern dulmagnaðan blæ. Þá Iftur maður gjarttan um öxl, gerir upp liðna tíð en reynir jafnframt að skyggnast fram á veginn og gera sér í hugarlund hvað framundan er. Þegar litið er til baka er sjónar- svið mannanna misjafnt, að öllum jafnaði litað af því sem viðkomandi lifir og hrærist í dags daglega. Hjá einum ber hærra hluti, sem aðra skiptir minna máli. I mínum huga var árið 1994 okkur Isfirðingum mjög viðun- andi, þegar frá eru taldir þeir hörmunga atburðir er áttu sér staðó.apríl. ForspárÞjóðhags- stofnunnar og ntanna um lélegt atvinnuástand gengu sem betur ferekki eftir. Atvinnurekendur spyrntu við fótum og sú gagn- sókn, sent þeir hófu á síðasta ári trúi ég að eigi eftir að halda áfram. Það er þakkarvert að at- vinnuleysi skuli vera nánast óþekkthér áIsafirði og meðal- tals launatekjur í efri kantinum borið santan við aðra lands- hluta. Koma glæsilegasta fiski- skips íslenska flotans, og þótt víðar væri leitað, Guðbjarg- arinnar IS-46, er mér minnis- stæð og vekur íbrjósti mér vonir um áframhaldandi gottatvinnu- ástand. Við hljótum að gleðjast yfir fallegu guðshúsi, sem hér er risið. Húsi sem á eftir að verða stolt okkar allra og samein- ingartákn. Það er okkur ís- firðingum mikil tilhlökkun að geta brátt hlýtt á Guðs orð og sótt helgistundir og helgiat- hafnir til þessarar glæsilegu kirkju. Af íþróttasviðinu minnist ég góðrar frammistöðu einstakl- inga, sem kepptu fyrir okkar hönd á Ólympíuleikunum í Noregi, en ekki síður frábærs árangurs hins unga körfubolta- liðs, sent ávann sér sess í 1. deildinni. Undirtektir og skilningur ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar á vandamálunt okkar vegna eyðileggingar skíðasvæðisins voru mjög jákvæðar. Endur- uppbyggingin er hafin og nú skiptir máli að við Isfirðingar sýnum samhug og festu við það mikla starf, sem framundan er, en þar tel ég mikilvægt að við sýnum samstöðu út á við og höfum að leiðarljósi hagsmuni tjöldans en látum ekki þröng- sýnissjónarmið einstaklinga villa okkur sýn. Framtíðar- skíðasvæðið sem nær yfir tvo dali, verður ekki frekar en gamla skíðasvæðið bara fyrir Isfirðinga heldur fyrir Vest- firðinga og landsmenn alla. Því þætti ntér tilhlýðilegt að ná- granna sveitarfélögin sýndu lit og tækju þátt íþeirri rniklu upp- byggingu sem nú er hafin. Það var og mikið fagnaðar- efni þegar sumarbústaðaeig- endur fengu leyfi til endur- byggingar í Tungudal, en á- kveðni og kraftur “skógarbúa” staðfestir dugnað og vilja okkar Isfirðinga til að takast á við vandann og leggja ekki árar í bát þótt á rnóti blási. Við megum þó ekki gleyma okkur á verð- inum því slíkir atburðir geta átt sér stað aftur. Miklilvægt er að við hugum rækilega að fyrir- byggjandi aðgerðum og gætum fyllsta öryggis í hvívetna. í sögu samgöngumála okkar Vestfirðinga náðist stórmerkur áfangi þegartakmörkuð umferð var leyfð í gegnunt jarðgöngin á milli Skutulstjarðar og Súg- andafjarðar í desentber. Það er von mín að þessi mannvirki komi til með að breyta „varnar- leik“ okkar í sókn fram á við, sóknartil uppbyggingar atvinnu og manniífs á svæðinu. Af öðrum atburðum sent hátt berhér íbæjarfélaginumánefna sorpbrennsluna Funa, en reynslubrennsla hófst í henni á nýliðnu ári. Funi er kominn til að vera hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Hér er um að ræða eina fullkomnustu sorp- brennslustöð norðan Alpafjalla, stöð sem var dýr í smíðum og ekki er fyrirséð Itver rekstrar- kostnaður hennar mun verða. Nú er mikilvægt að markaðsetja þetta mannvirki til að lækka sem mest kostnaðarhlutdeild bæjarfélagsins. Bygging þess- arar stöðvar var santþykkt með 9 samhljóða atkvæðum í Bæjar- stjórn Isafjarðar án þess að nákvæmar tölur lægju fyrir um rekstrar- og fjárfestingarkostn- aði hennar. Slík vinnubrögðeru ámælisverð og er það von mín að við núverandi svo og væntanlegir stjórnendur þessa bæjarfélags láti slíkt ekki henda aftur. Auður hvers samfélags er ekki falinn í fögrum bygging- um. peningum eða öðru prjáli sem mölur og ryð fá grandað, heldur í menntun. þroska og Þorsteinn Jóhannsson, yfiriækni FSÍ og forseti bæjarstjórnar ísafjarðar. heilbrigði einstaklinganna, sem að samfélaginu standa. Er ég þá kominn að þeim málaflokki sem veldur mér hvað mestum áhyggjum á þessari stundu. Málaflokkur sem virðist hafa verið afskiptur um langt skeið og ástand hans þannig að það birgirokkursólarsýn. Útkoma samræmdu prófanna í Grunn- skólanum s.l. vor var vægast sagt hörmuleg og sókn heima- manna til náms í framhalds- skólum utan ísatjarðar veldur þungum áhyggjum. Enn sárar þykir mér að horfa upp á þetta þar sem við höfum á að skipa mörgum frábærum kennurum en það dugir því miður ekki ef metnaðarleysi stjórnenda er algert. Ábyrgðina á þessu vandamáli verður alfarið að setja í hendur stjórnenda skól- anna og fræðslumála á svæðinu. en jafnframt eru mér fyllilega ljósar sky ldur stjómenda bæjar- félgsins í þessum efnurn. Það er von mín að á árinu '95 verði brotið blað í sögu þessa mála- flokks hér á Isafirði og hver geri hreint fyrir sínum dyrum. Af landsmálunum ber hæst í huga mínum 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins, sem var afrakstur áratuga langrar baráttu sjálfstæðra einstaklinga. Þótt lýðræðið sé ekki gamalt á heimsmælikvarða megunt við Islendingar vera stoltir af því, sem áunnist hefur á undan- gengnum 50 árunt. Við höfum byggt hér upp samfélag, sem er fyllilega sambærilegt við þau samfélög er fremst standa í heiminum. Eg tel að brotið hafi verið blað í sögu lýðveldisins þegar ráðherra var látinn taka ábyrgð gerða sinna með afsögn á s.l. ári. Það er löngu kominn tími til að stjórmálamenn jafnt sem aðrir stjórnendur opinberra „fyrirtækja” axli þá starfs- ábyrgð, sem á þeim hvílir. I upphafi nýs árs á ég mér þá ósk heitasta að við Isfirðingar, sama hvar í flokki við stöndum, snúum bökum saman og vinn- um af festu og heiðarleika bæjarfélaginu til framfara. Byggjum börnum okkar það samfélag, sem þau geta verið stolt af og tilbúin að snúa aftur til að loknu námi og starfi annar staðar. Takist okkur slíkt er framtíð Isafjarðar borgið. Isfirðingum og landsmönn- um öllum óska ég gleðilegs árs, heilla og heilbrigðis. Þorsteinn Jóhannesson „Útkoma samræmdu prófanna í Grunnskóianum s.l. vor var vægast sagt hörmuieg og sókn heimamanna tii náms í framhaidsskóium utan ísafjarðar veidurþungum áhyggjum. Enn sárarþykir mér að horfa upp á þetta þar sem við höfum á að skipa mörgum frábærum kennurum en það dugir því miður ekki ef metnaðarieysi stjórnenda er aigert. Ábyrgðina á þessu vandamáii verður aifarið að setja í hendur stjórnenda skóianna og fræðsiumáia á svæðinu, en jafnframt eru mér fyllilega ijósar skyidur stjórnenda bæjar- fé/gsins í þessum efnum. Það er von mín að á árinu '95 verði brotið biað í sögu þessa máiafiokks hér á ísafirði og hver geri hreint fyrir sínum dyrum. “ 4 MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.