Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.01.1995, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 04.01.1995, Blaðsíða 5
Litid um öx! um aramot • Litið um öxtum áramót • Litið um öxium áramót Fjórirminnis- stæðir atburðir „ÞEGAR ég lít um öxl og hugsa um árið 1994, þá koma upp í hugann mörg atvik, sum gleðileg en önnur ekki. Ur heimabyggð er það einkum tveir atburðir, sem ég staldra við. Hinn fyrri er snjóflóðið mikla, sem féll niður í Tungu- dal. Fyrir Isfirðinga var þetta dapurlegasti atburður ársins. Ég man hvað mér var brugðið þegar ég frétti þetta. Þetta var allt með svo miklum ólíkindum. Daginn eftir fór ég eins og fleiri bæjarbúar upp á nýja veginn að jarðgöngunum til að líta yfir Tungudalinn. Mann setti hljóð- an. Stór hluti af skóginum var horfinn. Húsþök og tré stóðu hér og hvar upp úr flóðinu. Seinna þegar snjóinn tók upp átti meira af braki og brotnum trjám eftir að koma í ljós. Þetta var sorg, sem snerti alla bæjar- búa. í upphafi vetrar varð ságleði- legi atburður að Isfirðingar eignuðust nýtt skip þegar Guð- björgin kom til hafnar. Skipið ber af öðrum fiskiskipum hvað stærð og afköst varðar. At- vinnulíf á Isafirði er stórum hluta til byggt upp á sjósókn og fiskvinnu. Öflugur fiskiskipa- floti gefur vissulega tilefni til nokkurrar bjartsýni gagnvart framtíðinni. Við verðum að hafa trú á okkur sjálfum og fylgjast með þróuninni. Líkt og Darwin benti á í kenningum sínum um úrval náttúrunnar, þá lifa hinir hæfustu af. Það eru hinar köldu staðreyndir lífsins. Hinu má þó ekki gleyma að Magnús Erlingsson, sóknarprestur á ísafirði. auðlindir hafsins eru takmark- aðar. Ef við göngum of nærri þeim mun það koma okkur harkalega í koll. Fyrir slíkan skaða verður ekki bætt með neinum millifærslusjóðum. Það sem gerðist í Færeyjum hlýtur að vera okkur alvarleg lexía. Fjárfesting í tækjum má því aldrei vera meiri en sem nemur skynsamlegri nýtingu fiski- stofnanna og hugsanlegri arð- semi. í framtíðinni verður án efa lögð meiri áhersla á vist- vænni veiðar. Af erlendum vettvangi minn- ist ég tveggja atburða. Það var fagnaðarefni að Israelsmenn og Palestínumenn skildu geta samið um frið. Vonandi hafa hér verið stigin fyrstu skrefin í þá átt að leysa langvarandi erjur þessara þjóða. Þrátt fyrir þetta virðist ekkert lát á styrjöldum og ranglæti í heiminum. Hörmulegt er að heyra nánast daglega af bardögum og mann- vígum í Bosníu. Við sjáum á sjónvarpsskjánum grátandi konur með skuplur á höfðinu, harmandi dauða og sár barna sinna og ættingja. Þessar konur minna okkur á mæður okkar eða aðrar konur úr okkar nán- asta umhverfi. Manneskjan er alls staðar söm við sig, hvort sem hún lifir uppi á íslandi eða suður í löndum. Þrárnar og vonirnar eru hinar sömu. Það eru ill örlög að eiga heima í landi þar sem hatur og ranglæti ríkir.” Siðíerðiog fjöimiðiar „Umfjöllun um siðferði hefur verið nokkuð áberandi í fjöl- miðlum á árinu 1994. Þó svo að umræðan hafi einstaka sinnum orðið óvægin, er hún nauðsyn- leg. Frjáls fjöimiðlun og skoð- anaskipti eru grundvöllur lýð- ræðisins. Til að almenningur geti kosið hæfa stjórnmála- menn, þá þarf hann að hafa að- gang að sem víðtækustu upp- lýsingum. Skattgreiðendur hafa einnig fullan rétt á því að vita hvernig fjármunum þeirra er varið. Meiri kröfur eru gerðar til þeirra, sem gegna ábyrgðar- miklum embættum. Slíkt er til marks um væntingar fólks og tiltrúá viðkomandi einstaklingi. Hann er í vissum skilningi fyrir- mynd fjöldans. Og hann verður að sætta sig við ábyrgðina, sem því fylgir. „Þegar ég tít um öxi og hugsa um árið 1994, þá koma upp í hugann mörg atvik, sum gleðileg en önnur ekki. Úr heimabyggð er það einkum tveir atburðir, sem ég staidra við. Hinn fyrri er snjófióðið mikia, sem féii niður í Tungudai. Fyrir ísfiróinga var þetta dapuriegasti atburður ársins. Ég man hvað mér var brugðið þegar ég frétti þetta. Þetta var aitt með svo mikium óiíkindum. Daginn eftir fór ég eins og fieiri bæjarbúar upp á nýja veginn að jarðgöngunum til að iíta yfir Tungudaiinn. Mann setti hijóðan. Stór hluti af skóginum var horfinn. Húsþök og tré stóðu hér og hvar upp úr fióðinu. Seinna þegar snjóinn tók upp átti meira af braki og brotnum trjám eftir að koma í ijós. Þetta var sorg, sem snerti aiia bæjarbúa. “ Opin umræða er í rauninni eina leiðin til að berjast gegn spillingu. Þessu er líkt farið með syndina. I trúariðkun eiga menn að játa syndir sínar frammi fyrir Guði. Meðan maðurinn hefur ekki játað synd sína fyrir Guði, þá hefur hann ekki heldur horfst í augu við afleiðingar hennar. Hún er þá óuppgert mál.” Framtíðin „Skömmu fyrir jól ákvað bæjarstjórn ísafjarðar að leggja á næstu árum fram fé til kirkju- byggingar. Fyrir Isfirðinga var þetta góð jólagjöf. Nú hillir undir það að hægt verði að Ijúka smíðinni og vígja kirkjuna á árinu 1995. Með samstilltu átaki allra bæjarbúa getur sá draumur orðið að veruleika. A komandi mánuðum þurfum við öll að leggjast á eitt. Ég er því bjartsýnn á að árið 1995 verði okkur Isfirðingum ánægjulegl. Ég vonaaðáöllum sviðum, - jafnt í einkalífi sem í opinberri umsýslu, verði árið 1995 gæt'uríkt ár. Mugnús Erlingsson. 8 MILLJONIR ÓSKIPÍAR Á EINN MIÐA 12. JANÚAR Heppnin bíðurþín hér l'.ina stórhappdrættið þar sem hæsti vinningurinn gengur örugglega út. Fi hann gerigur ekki út í einum mánuði leggst hann við þann hæsta næst... og svo koll af kolli. Enginn veit þess vegna hversu hár hann getur orðið. Stórglœsilegir aukavinningcir: Listaverk eftir marga af þekktustu listamönnum okkar, í hverjum mánuði. Tryggðu þér möguleika ■■1 j—; VtSA | SamUort ...fyrir lífið sjálft UMBOÐ Á VESTFJÖ PATREKSFJÖRÐUR: Gestur I. Jóhannesson, Þórsgötu 4, sími 94-1356 TÁLKNAFJÖRÐUR: Jónína Haraldsdóttir, Esso-Nesti, sími 94-2599 BÍLDUDALUR: Steina ósk Gísladóttir, Tjarnarbraut 19, sími 94-2230 ÞINGEYRI: Guðrún Bjarnadóttir, Vallargötu 12, sími 94-8393 FLATEYRI: Ágústa Guðmundsdóttir, Bókaverslun Jóns Eyjólfssonar, Hafnarstræti 3, sími 94-7697 R Ð U M : SUÐUREYRI: Söluskáli Esso, Rómarstíg 10, sími 94-6262 BOLUNGARVÍK: Gunnhildur Halldórsdóttir, Holtabrún 15, sími 94-7160 ÍSAFJÖRÐUR: Myndás, Aðalstræti 33, sími 94-4561 SÚÐAVÍK: Salbjörg Olga Þorbergsdóttir, Aðalgötu 56, sími 94-4929 SNÆFJALLASTRÖND: Jónas Helgason, Æðey, sími 94-4816 ARNESHREPPUR: Pálína Þórólfsdóttir, Finnbogastöðum, sími 95-14038 DRANGSNES: Guðmundur B. Magnússon, Kvíabala 3, sími 95-13220 HÓLMAVÍK: Jóhann Björn Arngrímsson Höfðagötu 1, sími 95-13185 BITRUFJÖRÐUR: Agla Ögmundsdóttir, Bræðra-Brekku, sími 95-13354 BORÐEYRI: Pálmi Sæmundsson, sími 95-11123 Fáðu þér áskrift í tœka tíð. Nýtt áskriftarár er að hefjast. Dregið 12. janúar. Upplýsingar um nœsta umboðsmann í síma 91-22150 og 23130 MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 1995 5

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.