Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.01.1995, Qupperneq 8

Bæjarins besta - 04.01.1995, Qupperneq 8
ALMENN ÞJÓNUSTA HRINGDU í 3092 HRÖÐ OG GÓÐ ÞJÓNUSTA r POLLINN HF.^ 94-3092 FAX94-4592 Rafkerfi • Rafeinda- og Sigiingatæki • Rafvéiar • Kælitæki SALA & ÞJÓNUSTA © Isafjöröur Velheppnaðar ára- motabrennur Og vei var tekið undir í fjöldasöng. Hér eru undir- leikararnir Ásgeir Sigurðsson og Pétur Bjarnason að þenja nikkurnar og á miiii þeirra stendur kór- stjórinn Óii M. Lúðvíksson. FJOLMENNI var við ára- mótabrennu sem Eggert Jóns- son, stjórnarformaður Hrað- frystihússins Norðurtanga, stóð fyrir á Hauganesi við Holta- hverfi á Isafirði á Gamlárs- kvöld. Lætur nærri að vei á annað hundrað manns hafi verið við brennuna og var mikið líf í við- stöddum enda ærin ástæða til að skemmta sér og öðrum. Þá var einnig fjöldi fólks við brennu í Hnífsdal og sömu sögu er að segja frá öðrum stöðum á Vest- fjörðum, Lítið var um óhöpp á Gamlárskvöld og virðist sem Vestfirðingar hafi farið að með mikilli varúð, bæði hvað varðar við skot á flugeldum og við með- ferð áfengra drykkja. A Hauganesi léku harmo- nikuféiagar undir fjöldasöng sem stjórnað var af Óla M. Lúðvíkssyni. Þávartrébáturinn Þorsteinn brenndur og logaði hann vel eins og sjá má. /#// ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ I 11 1 Á VESTFJÖRÐUM * / " / STOFNAÐ H. NÚVEMBER1984 á kr. 785,- $VENDUR £ r^T7V /V J Hafnarstræti 11 ■ 900 Ísafjörvuf • smi ^9-SlSS Það iogaði vei í trébátnum Þorsteini á áramótabrennunni á Hauganesi við Hoitahverfi. Stuðningsmenn Ástu Halldórs Færðu sktðakonunni 60 búsund krónur Á GAMLÁRSDAG færðu stuðningsmenn Ástu S. Hall- dórsdóttur, skíðakonunnar snjöllu frá Bolungarvík, henni 60 þúsund krónur að'gjöf. Til- gangurinn með gjöfinni var að hvetja hana til frekari afreka í íþrótt sinni en Ásta er óum- deilanlega ein snjallasta skíða- kona Islendinga fyrr og síðar og sú sem náð hefur hvað bestum árangri á erlendri grund. Stuðningsmennirnir eða „Aðdáendaklúbbur Ástu” eins og einn þeirra nefndi félags- skapinn í samtali við blaðið. hafa verið óánægðir með þær viðtökur sem Ásta hefur fengið hér á landi fyrir árangur sinn, og finnst hún hafa verið van- metin af forystumönnum íþróttamála. ,,Hér voru áhuga- menn utn skíðaíþróttina á ferð og þeir voru einungis að veita Ástu viðurkenningu fyrir góð afrek á árinu sem og að hvetja hana til frekari dáða. Við viljunt standa við bakið á ísfirsku og bolvísku afreksfólki og þessi viðurkenning er fyrsti vísir að þeim stuðningi,” sagði einn úr aðdáendaklúbbi Ástu í samtali við blaðið, en meðlimir í þess- um óforinlega félagsskap eru frá ísafirði og Bolungarvík. Ásta tók við viðurkenningu sinni á Seljalandsdal áGamlárs- dag og þakkaði hún hlýhug í sinngarð viðþaðtækifæri. Ásta hefur undanfarna tvo vetur stundað nám í Svíþjóð samhliða að keppa á stórmótum í íþrótt sinni víðsvegar um Evrópu og hefur árangurinn ekki iátið á sér standa, eins og komið hefur fram í fjölmiðlum. Orkubú Vestfjarða Færir FVÍ dísel- rafstöð að gjöf Kristján Pálsson, stöðvarstjórihjá Orkubúi Vestfjarða afhendir Guðmundi Einarssyni frá Framhaidsskóia Vestfjarða, rafstöðina góðu. Við hiið Guðmundar stendur Tryggvi Sigtryggsson kennari við skóiann. I GÆR afhenti Orkubú Vest- fjarða, Framhaldsskóla Vest- fjarða, díselrafstöð að gjöf. Raf- stöðin verður sett upp í nýju verkmenntaskólahúsi setrt formlega verður tekið í notkun á morgun og mún hún verða notuð lil kennslu í vélstjórnar- og rafiðnaðargreinum. Rafstöðin sem hér um ræðir er af Caterpillar gerð D-343 T/ A, með 200 kVa 230/400V áföstum rafal. Snúningshraði er 1500 sn/mín. Á vélinni er Woodward UG8 gangráður. Vélinni fylgir vatnskassi með I lkW mótor. Vélin er að ár- gerð 1959 og var hún fyrst sett upp sem ljósavél í togaranum Víkingi. Á árinu 1962 keypti Rarik vélina og var hún fyrst sett upp í Vestmannaeyjum en var á flakki senr varavél á Suðurlandi til ársins 1977 að Rarik flutti hana til Súðavíkur. Á árinu 1980 skipti Orkubúið um vél íSúðavíkog flutti vélina inn í Reykjanes, þar sem hún var í notkun til ársins 1993, en þá var hún tekin niður og flutt til Isafjarðar. Það var Kristján Pálsson, stöðvarstjóri hjáOrkubúi Vest- fjarða sem afhenti Framhalds- skólanum rafstöðina og fyrir hönd skólans tóku við henni þeir Tryggvi Sigtryggsson og Guðmundur Einarsson. Guð- tnundursagði við afhéndinguna að gjöfin væri ómetanleg við- bót í vélasal skólans og myndi hún fá álíka meðferð og Black- stone vél, sem Orkubúið færði skólanum fyrir nokkrum árum en hún skipar heiðurssess í véla- sal skólans. RITSTJÓRN «■ 4560 • FAX ® 4564 • AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT ■**■ 4570 I

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.