Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.06.1995, Qupperneq 2

Bæjarins besta - 08.06.1995, Qupperneq 2
Sitja bömin ekki við sama borð, Þórir? Þórir Sveinsson, fjármálastjóri ísafjarð- arkaupstaðar og stað- gengill bæjarstjóra: „Ég vona það. Ég hef Ktillega heyrt af þessu, þar sem þetta var rætt á fundl í einni nefnd fyrir stuttu, en mér er ekki kunnugt um niðurstöð- una. Ég mun samt koma þessari ábendingu til réttra aðila." Mæður unglinga í Hottahverfi eru ósáttar við þá aðstöðu sem börn þeirra búa við, í saman- burði við böm á Eyrinni, í tengslum við Vinnuskóia bæjarins. Finnst mæðr- unum ósanngjarnt að börn í Hoitahverfi skuii þurfa að borga stóran hiuta afiaunum sínum tii að komast með strætó tii og frá vinnu, en um 200 krónur kostar báðar ieiðir, sem er stór pen- ingur þegar iaunin eru innan við 200 krónur og vinnutíminn aðeins fjórir tímar. Viija mæðurnar að ungiingarnir fái ókeyþis með strætó eða aðþeim verði gefinn kostur á að vinna nærsínu heimiii. Hvert ætlar þú í sumar- fríinu? Stefán Dan Óskars- son, eigandi Studio Dan: ,,Eg get sagt þér það. Ég og gamall vinur minn, Magnús Guðmundsson, Gvendar Karls, ætlum að fljúga til Reykjafjaröar, það- an sem við ætlum að ganga að Djúpuvík. Við ráðgerum að vera viku í ferðinni og munum fljúga heim frá Djúpuvík. Við höfum gengið um Strandirárlega og erum á síðasta spottanum núna. Ég hef síðan ekkert ákveðið ég fer með konunni í frí.” Dagný Þrastardóttir húsgagnasmiður meðmeiru Hefur framleiðslu á glerllstaverkum Dagný við eitt verka sinna, tóniistarmennina þrjá. DAGNÝ Þrastardóttir, húsgagnasmiður, húsmóðir og eigandi Rammagerðar ísafjarðar, hefur hafið framleiðslu á glerlistaverkum, en sú listgrein hefur ekki verið stunduð hér vestra að neinu marki, svo vitað sé. Dagný hefur komið sér upp aðstöðu að Suðurtanga 6. í húsnæði Skipasmíðastöðvarinnar, og þar verða hin glæsilegu verk hennar að veruleika. Blaðið sló á þráðinn til Dagnýjar og forvitnaðist aðeins um hina nýju listgrein húsgagnasmiðsins. „Ég lærði húsgagnasmíði 1981 og hef síðan þá starfað við þá iðngrein ásamt öðrum skyldum störfum. Eftir að námi lauk starfaði ég um tíma í Reykjavík og Kópavogi en flutti síðan eftir heim 1986. Það var árið 1989 sem mér var boðið að kaupa Rammagerð Isafjarðar og síðan þá hef ég starfað við innrömmum á myndum og fleira meðfram húsmóðurhlutverkinu og öðrum störfum. Innrömmunarmarkaðurinn hér vestra er óskaplega lítill, hefur varla náð því að vera hálfsdagsstarf en þetta er nóg fyrir konu sem hefur nóg að gera. Það var ekki fyrr en í nóvember á síðasta ári að ég fór á þessari listgrein, hér á Isafirði og í framhaldi af því fór ég á helgamámskeið sem haldið var í Reykjavík. Út frá því keypti ég mér öll tæki til verksins og hef unnið við þetta á milli innrömmunarinnar. Hugmyndirnar hafa hingað til komið upp úr blöðum en vonandi verða þær einhvern tímann mínar,” sagði Dagný. Dagný sagði nokkurn mun á því hvort hún væri að starfa við húsgagnasmíði eða að útbúa glerlistaverk, en það ásamt rammagerðinni, á eitt sameiginlegt sem er skemmtun. „Það er óskaplega gaman að vinna við alla þessahluti. Þaðermikiðnosturviðþetta, bæði skurðurinn sem og vinnan við tinið, sem brætt er utan um hvert gler. Ég hef ekki selt neina mynd ennþá en það kemur vonandi að því, því myndimar mínar eru til sölu. Ég geri einnig myndir í glugga hjá fólki, þá eftir máli og eftir mínum hugmyndum eða þeirra eigin. ég hef enga pöntun fengið ennþá enda vita fáir af þessu, en áhuga- söniuni er bent á að síminn hjá mér er 456 3540,” sagði þessi geðþekka kona sem sagðist eiga langt í land með að líkjast Leifi Breiðtjörð. listamanni. „Ég er bjartsýn á að það verði nóg að gera í framtíðinni. Þegar bömin eldast stendur hugurinn til að hafa eitthvað meira með þessu s.s. litla öskjugerð. eða að opna verslun með hinum ýmsum frístundavörum.” Sjö ára stúika féii miiii skips og bryggju á Suðureyri Verst að horfa á efftir telpunni í sjóinn - segir Óðinn Gestsson, sem átti því láni að fagna að bjarga sjö ára dóttur sinni eftir að hún hafði fallið á milli skips og bryl Óðinn Gestsson með Töru og aðra átta mánað. gamla dóttur sína á þeim stað sem hún féii í sjóini við bryggjuna á Suðureyri á mánudag. SJÖ ÁRA stúlka, TaraÓðins- dóttir varð fyrir þeirri óhugna- legu reynslu að falla milli skips og bryggju við höfnina á Suður- eyri.umkl. 18ámánudag.Tara var í gönguferð með föður sínum og yngri systur er ó- happið átti sér stað, og er snar- ræði föðursins, Óðins Gests- sonar, framkvæmdastjóra Fisk- iðjunnar Freyju hf„ að þakka að ekki fór verr. Eftir að Óðinn varð var við hvað gerst hefði, kastaði hann sér á eftir dótt- urinni og náði henni eftir er hún var að sökkva í annað skipti. Tara slasaðist lítið miðað við aðstæður, hlaut mar á fæti auk þess sem sauma þurfti fímm spor í höfuð hennar. Þá var faðirinn aumur á hendi, eftir að hafa rekist utan í bát er hann henti sér á eftir dótturinni. „Við fengum okkur göngu- túr, Tara á hjólinu og ég með litlu systur hennar í kerru. Við gengum eins og vanalega niður á höfn og stoppuðum við einn bátinn þar sem ég talaði við kunningja minn. Niðurstaða okkar, eftir að hafa rætt saman, er að Tarahafi hjólað á bryggju- kantinn og fallið til hliðar á milliskipsogbryggju. Húnmun hafa rekið höfuðið í bátinn og fótinn í höfnina og síðan farið á kaf í sjóinn. Ég stóð 1-2 metra frá henni og var að spjalla við mann og síðan sá ég bara á eftir henni. Mín fyrstu viðbrögð voru að fara á eftir henni, ég hinkraði aðeins er ég kom á bryggju- sporðinn til að sjá hvar hún kæmi upp og til að lenda ekki ofan á henni og síðan lét ég mig vaða í sjóinn og náði henni þegar hún var á niðurleið í annað skiptið,” sagði Óðinn Gestsson í samtali við blaðið. Óðinn sagði að mjög þröngt hefði verið á milli bátsins og bryggjunnarog sæist merki þess á hendi hans sem er hrufluð eftir fallið. „Henni varð ekki meint af volkinu í sjónum. Hún er óbrotinn og öll heil að öðru Ieyti en því að hún er með skurð á höfði sem þurfti að sauma fimm spor í og smáhrufl á öðrum fætinum. Það versta var að horfa á eftir telpunni í sjóinn, maður fær á tilfinninguna að allt sé búið, en svo þegar maður kemur niður og nær henni, þá er allt unnið aftur. Mestu erfið- leikamir voru þó að losa sig við hana upp á bryggju. Það var geysilega erfitt, ég hefði ekki trúað því fyrirfram. Telpan er hress í dag, það var enginn líkamlegur skaði og hitt kemur í vonandi í ljós,” sagði Óðinn Gestsson. Beðið eftir hættumati Á ríkisstjórnarfundi sem haldinn var á föstudag var farió yfir þau verkefni sem unnió er að í eins- tökum ráóuneytum vegna afleióinga snjóflóðsins í Súóavík. Fyrir dyrum stendur að staðfesta skipulag fyrir nýja byggð í Súðavík en til þess aó af því geti orðið þarf greinar- geró um nýtt hættumat fyrir nýja svæðið að liggja fyrir og er því beðið eftir því. Á vegum félagsmála- ráóuneytisins er verið að undirbúa og ganga frá nýjum reglum um hættumat og í fram- haldi af því mun sveit- arstjórnin væntanlega gera tillögur um flutn- ing eða kaup á húsum. Tíu tiiboð í Drang- nesveg Tíu tilboð bárust til Vegagerðar ríkisins í geró Drangnesvegar um Selströnd milli Fagurgalavíkur og Úrsulukleifar. Lægsta tilboðið kom frá Vinnu- vélum Jóa Bjarna á Hellu, tæpar 32,6 milljónir króna en þaó er 75% af kostnaóará- ætlun. Eitt fyrirtæki frá ísafirói bauð í verkið, Jón og Magnús hf., sem buðu 47,3 millj- ónir króna. Hæsta tilboðió kom hins vegar frá G.Hjálmars- syni á Akureyri, sem bauð tæpar 50 milljónir króna í verkið. Gunnar ráðinn tækni- forstjóri Og meira af mál- efnum Vegagerðar ríkisins. í nýjasta tölublaði Fram- kvæmdafrétta, sem Vegageróin gefur út er sagt frá því aó Gunnar H. Guðmundsson, sem verið hefur yfirverk- fræðingur í Vestfjarða- umdæmi Vegagerðar ríkisins á ísafirói hafi verið ráðinn sem tækniforstjóri Norður- landsumdæmis vestra. Gunnar varó stúdent frá Menntaskólanum á ísafirði 1976, lauk prófi í byggingartæknifræói frá Tækniskóla íslands 1982 og varð bygg- ingarverkfræóingur frá Aalborg Universitet- scenter 1992. Gunnar, sem er ættaður frá Flateyri lék um árabil knattspyrnu með ÍBÍ. 2 FIMMTUDAGUR 8. JUNI 1995

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.