Víðförli - 15.03.1995, Side 5

Víðförli - 15.03.1995, Side 5
Djákna- og prestsvígsla Myndin er tekin vib vígsluna í Dómkirkjunni. Nebri röb frá vinstri: Rósa djákni, Brynhildur djákni, séra Bryndís Malla, biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, Sigríb- ur djákni, Valgerbur djákni, Kristín djákni. Efri röb frá vinstri: Unnur djákni, séra Sigurbur, séra Einar, séra Kristján, séra Kristján Einar, séra jakob, jón, séra Birgir og séra Árni Bergur. Sunnudaginn 12. febrúar fór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík vígsla fyrstu djáknanna er lokið höfðu djáknamenntun frá Háskóla fs- lands. Fimm djáknar voru vígðir til starfa og einn prestur. Brynhildur Ósk Sigurðardóttir djákni var vígð til Víðistaðasóknar í Kjalarnesprófastsdæmi. Kristín Bögeskov djákni var vígð til Nesprestakalls í Reykjavíkurpró- fastsdæmi vestra. Rósa Kristjánsdóttir djákni var vígð til Landspítalans í Reykjavrk. Sigríður Valdimarsdóttir djákni var vígð til Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Valgerður Valgarðsdóttir djákni var vígð til Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Bryndís Malla Elídóttir prestur var vígð til aðstoðarprests í Hjallasókn í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Biskup Islands, herra Ólafur Skúlason, vígði bæði djákna og prest. Séra Jakob Agúst Hjálmarsson þjónaði fyrir altari. Vígsluvottar voru sr. Birgir Snæ- björnsson prófastur, en hann lýsti vígslu, sr, Árni Bergur Sigur- björnsson, sr. Einar Eyjólfsson, Jón Sveinbjörnsson, sr. Kristján Björns- son, sr. Kristján Einar Þorvarðarson, sr. Sigurður H. Guðmundsson og Unnur Halldórsdóttir djákni. Biðjum við hinum nýju vígsluþeg- um blessunar og leiðsagnar Guðs í starfi sínu og lífi öllu. Áður hafa eftirtaldir djáknar verið vígðir: Einar Einarsson var vígður 1960 til Grímseyjar. Unnur Halldórs- dóttir var vígð 1965. Örn Bárður Jónsson var vígður 1979 til Grensás- kirkju. Ragnheiður Sverrisdóttir var vígð 1981. /' 7/ÆM fíMm H77 y|B ™ ^Hly 3 \JH[r y{ JHB 1 943® |w » : i i JUP .TSHf T • Xt jMil I _ /3 L*«y4 iwl 1 Y Þýskaland: Verður kaþólskum prestum leyft að kvænast? Aðalráð þýskra kaþólikka (ZdK) hefur hvatt til þess að prestar kirkjunnar fái að ganga í hjónaband og kvæntum mönnum verði gert kleift að taka prestsvígslu. Ályktun ráðsins þar að lútandi var samþykkt með mikl- um meirihluta atkvæða á fundi þess í Bonn síðastliðið haust. í ályktuninni er spurt hvort einungis þeir eigi að hafa rétt til þess að gerast prestar sem jafnframt hafa kosið að vera utan hjónabands. Þá er þar ennfremur staðhæft að gildi hjónabandsins sé ómetanlegt fyrir kirkjuna. Vissulega hafi núverandi fyrirkomulag á margan hátt verið kirkjunni blessunarríkt. Það sé þó ekki neitt grundvallaratriði að prestar megi ekki kvæn- ast og eigi því ekki að þvinga neinn til slíks. Fái bæði kvæntir og ókvæntir að vera prestar gæti það auðgað og eflt starf kaþólsku kirkiunnar. (Byggt á DAS nr. 47/94) Anglíkanska kirkjan: Punktakeríl fyrir predikanir Anglíkana-prestinum lan Gregory finnst margt svip- að með því að standa í predikunarstólnum og á leik- sviði. Svipaðar mælistikur megi nota á leikara og predikara. Hann hefur útbúið punktakerfi fyrir predik- anir sem byggir á orðfæri og frumleika predikaranna. Þar er ennfremur tekið tillit til mats kirkjugesta. Listi yfir helstu ræðuskörunga kirkjunnar birtist síðan reglu- lega í tímariti, innan um aðra vinsælda- og metsölu- lista. Gregory, sem áður var blaðamaður, kveðst fyrst og fremst vera að berjast gegn leiðindum. Hann bendir kirkjugestum á hvar góðar predikanir sé helst að heyra, rétt eins og fólk gelur fengið meðmæli gagnrýnenda um góðar leiksýningar eða veitingahús. Um leið leiðbeinir hann predikurum um hvernig þeir eigi að tala til fólks. í því samhengi mætti minnast hollráðs Marteins Lúth- ers: „Stíg í stól, opna munn, hættu fljótt." VÍÐFÖRU 5

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.