Víðförli - 15.03.1995, Síða 12
Sumarlandið
frásaga um von
Út er komin hjá Skálholtsútgáfunni
bókin „Sumarlandib" eftir norska rithöf-
undinn og prestinn Eivind Skeie, í ís-
lenskri þýbingu séra Sigurbar Pálssonar.
Bók þessi kom fyrst út í Noregi fyrir tíu
árum en hefur verib margendurútgefin
og þýdd á fjölmörg tungumál.
Saga þessi er skrifub fyrir hjón sem
misstu dóttur sína af slysförum. Eyvind
Skeie skrifabi bókina á einni nóttu, eftir
erfitt samtal vib foreldra stúlkunnar, og
var hún skrifub í þeirri von ab hún gæti
orbib foreldrunum og börnunum þeirra
til huggunar.
Sumarlandib er sérstök saga. Hún
fjallar um ferbina í Dimmadal, um
myrkrib, Ijósib sem lýsir leibina um sum-
arsléttuna, um Engil Ijóssins, Engil von-
arinnar og Engil huggunarinnar og um
Hann sem alltaf bíbur.
Þetta er saga sem er skrifub til ab
hugga og gefa von.
Höfundur segir sjálfur í formála bókar-
innar: „Daubi barns er tilefni þess ab ég
skrifabi þessa frásögu. Daubinn veldur
okkur alltaf sársauka. Ab missa barn, af
slysförum eba á sóttarsæng, er mebal
þess erfibasta sem mætir okkur. Vib
þurfum á allri von okkar og öllum
mætti okkar ab halda til ab Ijúka göng-
unni á vegi sorgarinnar. Frásagan um
Sumarlandib getur ef til vill orbib ein-
hverjum til hjálpar vib ab hefja göng-
una á vegi sorgarinnar í von."
Ný verkefnamappa fyrir kristinfræbikennslu
Sögur og myndir
úr Biblíunni
Þú kemur
í kyrðinni kemur þú.
Hljóðlega.
Ég hvísla nafnið þitt, Jesús.
Og þú kemur.
þegar ég þagna.
Hugurinn kyrrist.
þá kemur þú sjálfur.
Tíl að reyta íllgresi hjartans.
Hlúa að blómabeðinu.
Tíl að þvo þreytta fætur.
Flytja yl kærleíka þíns.
Færa mér von um eilíft líf.
Síðastliðið haust gaf Skálholtsút-
gáfan út verkefnamöppu með
fjörutíu verkefnum eftir Elínu
Jóhannsdóttur sem samin voru
með hliðsjón af bókinni Sögur og
myndir úr Biblíunni eftir Anna-
Hermine Muller.
Verkefnunum er bæði ætlað að
vera til gagns og gamans. Þar eru
hefðbundnar spurningar og þrautir,
sem minna örlítið á þær þrautir sem
böm dunda sér við að leysa í bók-
um og tímaritum, og mega kennar-
ar ljósrita þau og dreifa til nem-
enda.
Ásamt bókinni Sögur og myndir
úr Biblíunni geta verkefnin nýst
sem ítarefni með nýju kristinfræði-
efni, Brauð lífsins, sem Náms-
gagnastofnun hefur gefið út og er
eftir Sigurð Pálsson og Iðunni
Steinsdóttur.
Bókin Sögur og myndir úr Bibl-
íunni gefur nemendum góða heild-
arsýn yfir sögur Biblíunnar og
kristna trú. Sögurnar eiga fyllilega
erindi við nútímann því þær flytja
börnunum ekki aðeins trúarlegan
boðskap heldur eru þær fullar af
siðfræðilegum vangaveltum. Bókin
Sögur og myndir úr Biblíunni er
falleg bók og hefur verið þýdd á
fjölmörg tungumál og notið vin-
sælda víða um heim.
I