Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.04.1999, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 21.04.1999, Blaðsíða 5
tsafjörður Tungudalur og Skarðsengi - framtíðarskíðasvæði Isfirðinga Nú standa Isfirðingar frammi fyrir ákvörðun um framtíðarskipan skíðamála í skíðabænum ísafjarðarbæ. Skiptar skoðanir eru meðal bæjarbúa í þessu efni en nauð- synlegt er að forðast deilur og átök þannig að hægt verði að einhenda sér í uppbyggingu svæðisins. Persónuleg skoðun mín er sú að byggja eigi upp Tungu- dal sem framtíðar skíðasvæði og fólkvang ásamt Skarðsengi fyrir göngumenn, enda það svæði talið „öruggt” Eg vil benda á eftirfarandi rök fyrir því: Seljalandsdalur er snjó- flóðasvæði þar sem nánast öll mannvirki hafa eyðilagst þris- var sinnum á fimmtíu árum. Flóð sem valdið hafa minna tjóni og eða fallið á fólk skipta tugum á sama tíma. Oft hefur legið við stórslysi á svæðinu. Bygging mannvirkja til að koma í veg fyrir snjóflóð eru alltof dýr og óraunhæft er að tala um mannvirki sem þola þau. Að beitasnjóflóðaeftirliti til að gera svæðið „öruggt” gæti verið raunhæft til að nýta svæði sem fyrir er, en glapræði er að byggja upp svæði við slíkar aðstæður. Sérstaklega ef aðrar leiðir eru færar. Fundin verði lausn á vanda göngumanna með aðgengi á göngusvæði en það er alger- iega óraunhæft að byggja skíðalyftu á snjóflóðasvæði, eingöngu til að fá veginn upp á Skarðshengi mokaðan. Eg vil benda á tillögur Vegagerð- arinnar um byggingu vegar úr Tungudal upp á Seljalandsdal, enda er það ódýrari kostur en bygging vegskála í gegnum fyrirhugaðan snjóflóðavarnar- garð fyrir ofan Seljaland. Stjórn Skíðafélagsins ályktaði með þessari lausn enda þarf að fara yfir snjóflóðasvæði til að komast á Skarðsengi, eins og vegurinn liggur í dag. Full samstaða er um að færa nú- verandi þjónustumiðstöð á Harðarskálaflöt til að þjóna göngumönnum enda mun nýr skíðaskáli þjóna svæðinu í Tungudal. Mikilvægt er að skíðamenn standi saman um þessar aðgerðir og vinni sam- an að þessum miklu framfara- málum íþróttarinnar. Helsti ókosturinn við Tungudal er sá að svokallaðar „millibrekkur” vantarásvæð- ið, en hefur sömu bröttu brekkurnar og Seljalandsdal- ur, bæði hvað bratta og lengd varðar. Er hægt að bæta úr því? A Skíðavikunni var skíða- fólki boðið upp á að skoða nýtt svæði í Tungudalnum. Troðarar og snjóbíll drógu skíðamenn hundruðum saman upp á Miðfellsöxlina, en þrjár leiðirvoru troðnarþar. Öllum bar saman um að um frábærar brekkur væri að ræða. Starfsmenn svæðisins full- yrða að þetta svæði sé það snjóþyngsta á svæðinu, jafn- vel þó litið sé til Seljalands- dals. Þarna komi fyrsti snjór- inn á haustin og hann endist framíjúniímeðalári. Svæðið er öruggt hvað varðar snjó- flóð, enda troðið frá toppi þannig að flóð getur ekki farið af stað. A þessu svæði er um fjórar megin leiðir að ræða. Leið 1 er 2,8 km. barnabrekka. Leið 2 er aflíðandi millibrekka. Leið 3 er millibrekka með bröttum stöllum. Og leið 4 er tæplega 2 km risa-svigbrekka sem er einsdæmi á Islandi. Addi Kalli prófaði þessa brekku fyrir okkur og gaf henni fyrstu einkunn. Einnig hefur Hafsteinn Sigurðsson lýst því yfir að hann telji þetta góðarbrekkursemmuni henta vel fyrir unglingamót og reyndar væri svæðið frábært. Mig langar að koma að um- sögnum gesta okkar á Lands- mótinu og Skíðaviku, um Skíðasvæði Gunnar Þórðarson, formaður Skíðafélags ísflrðinga skrifar Tungudalinn. „Þið eruð með svig- og stórsvigsbakka á heimsmæli- kvarða”. Þetta er umsögn sér- fræðingaískíðamótum. Hins- vegar eru þessar brekkur of krefjandi fyrir t.d. unglinga- meistaramót en þar kemur svæðið niður af Miðfellsöxl- inni til sögunnar. Byggjum Tungudalinn upp sem framtíðar alpagreina- svæði Isfirðinga og leysum aðgengi göngumanna að Skarðsengi ásamt að byggja upp framtíðaraðstöðu göngu- manna á Harðarskálaflöt með flutningi þjónustumiðstöðvar þangað. Jöfnum og sléttum jarðveginn á skíðasvæðinu, við lyftu og í botni dalsins og lokum ánni fyrir ofan jarð- göng. Með sléttari jarðveg þarf miklu minni snjó til að hægt sé að skíða. Við heyrum það aftur og aftur í Skíðafélaginu að verði Seljalandsdalur byggður upp aftur munu foreldrar neita að senda börnin sín á skíðamót á Isafirði. Einn af stjórnar- mönnum Skíðasambandsins sagði okkur í febrúar sl., löngu fyrir síðasta snjóflóð, að erfitt væri að fá fólk til að sam- þykkja skíðamót á Isafirði vegna snjóflóðaumræðunnar. Við verðum að taka þetta al- varlega. Öryggi skíðamanna, sérstaklega skíðabarna, verð- ur að vera í fyrirrúmi. ( Verkin tala Sjávarútvegsmál voru mikið til umfjöllunar á Al- þingi í vetur, mun meira en menn höfðu ætlað þegar þing kom saman í haust. Glímaþurfti við Hæstarétt- ardóm og leiða til lykta nauðsynlegar lagabreyt- ingar vegna dómsins. En fleira markvert gerðist. Lögin verða endurskoðuð Fyrst skal nefnt að ákveðið var að endurskoða lögin um stjórn fiskveiða á næstu tveimur árum. Það stóð ekki til en kom inn í meðförum sjávarútvegs- nefndar. Akvörðun um endurskoðun er viðurkenn- ing á því að veruleg óá- nægja er með nokkur atriði í löggjöfinni og að taka verður málið til athugunar og það verður gert. Byggðakvóti Ákveðið var að taka frá ár- lega næstu sjö árin 1500 tonna kvóta til þess að ráðstafa í byggðarlögum sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Þetta er vísir að byggðakvóta. Strandveiðikerfi Sjávarútvegsráðherra lagði til að leggja niður krókakerfið og sameina það kvótakerfinu. Því var hafnað og krókakerfið verður áfram við lýði. Hætt er við að kvótinn í krókakerfmu hefði fljótlega verið keyptur til stóru útgerðanna og hvað sem um krókakerfið má segja þá er það landsbyggðardreift, nokkurs konar strandveiði- kerfi smábáta. Það kemur sér vel þegar farið verður að huga Kristinn H. Gunnars- son, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis skrifar að almennari byggðakvóta. Samræmdar ieikreglur Leikreglur voru samræmd- ar milli aflamarksbáta og krókabáta þannig að nær allir róa eftir svipuðum reglum. Það var óhjákvæmilegt vegna togstreitu milli kerfanna, þar sem í öðru voru bátar kvóta- bundnir en í hinu ekki nema í þorski. Handfærakerfi Búið var til handfærakerfi fyrir dagabáta með litla veiði- reynslu sem gefur þeim mögu- leika á að halda áfram útgerð. Þessi bátaflokkur gagnast Vestfirðingum nokkuð vel og getur hentað bændum sem í vaxandi mæli styrkja afkomu sína með færaveiðum. Unnið verður að því að þróa reglur um þessa útgerð sem gefur mönnum afkomumöguleika án þess að heildarveiðin fari upp úr öllu valdi. Hvalveiðar Til lykta var loksins leidd umræðan um það hvort hefja ætti hvalveiðar eða ekki. Nið- urstaða Alþingis var afdrátt- arlaus, ályktað var að hefja skuli veiðarhiðfyrstaáhvala- 'Á tegundum sem vísinda- menn okkar hafa gefið út kvóta á og vísindanefnd NAMMCO staðfest. Það eru bæði hrefna og lang- reyður. Ríkisstjórninni var svo falið að kynna sam- þykktina og hrinda henni í framkvæmd. Bætur til innfjarð- arækjuveiða Stjórnarþingmenn Vest- fjarða beittu sér fyrir því og fengu framgengt að rækjubátum við Húnaflóa verður bætt með auknum þorskkvóta mjög mikil skerðing á innfjarðarækju- kvóta sínum í vetur.Nýtt er ákvæði í gildandi lögum sem ekki hefur verið notað árum saman. Öll þessi atriði sýna og sanna að það skiptir máli hverjir halda á málum. Ég vonast til þess að Vestfirð- ingar telji sig hafa haft nokkurt gagn af þingmanni sínum í þessum verkum. Samstarf aukið við Bolvíkinga Bæjarráð Isafjarðarbæj- ar og Bolungarvíkur hafa lýst yfir vilja til þess að taka út rekstur sameigin- legra stofnana á norðan- verðum Vestfjörðum. Þá hafa sveitarfélögin hug á að skapa alla hugs- anlega möguleika á frek- ara samstarfí þeirra á milli auk þess sem bæjarstjórn- unum hefur verið falið að leita eftir samstarfi við sveitarstjórn Súðavíkur- hrepps og koma með til- lögu sveitarfélaganna að samstarfsnefnd. ísafjörður Sigrún og Selma með tónleika Á sunnudag halda þær Sigrún Eðvaldsdóttir fiðlu- leikari og Selma Guð- mundsdóttir píanóleikari tónleika í sal Grunnskól- ans á ísafirði á vegum Tónlistarskóla Isafjarðar. Á efnisskrá tónleikanna eru sónötur fyrir fiðlu og píanó eftir Robert Schu- mann og W.A. Mozart auk verka eftir Brahms, Bar- tók og Jón Leifs. Tónleik- arnir eru áskriftartónleikar Tónlistarfélagsins en einn- ig verða seldir miðar við innganginn og er miða- verð kr. 1.200. Sigrún Eðvaldsdóttir er einn fremsti og þekktasti fiðluleikari okkar íslend- inga og hefur hlotið ntargskonar viðurkenning- ar fyrir leik sinn. Selma hóf tónlistarnám sitt á Isa- firði. en stundaði síðan nám í Reykjavík, Þýska- landi og víðar. Vestfirðir Listi Frjáls- lynda flokks- ins Framboðslisti Frjáls- lynda flokksins á Vest- fjörðum hefur verið lagður birtur. Listans skipa þau Guðjón Arnar Kristjáns- son, Pétur Bjarnason, Bergljót Halldórsdóttir, Ásthildur Cesil Þórðar- dóttir, Kristján Freyr Halldórsson, Hálfdán Kristjánsson, Ólöf Jónsdóttir, Guðmundur Óskar Hermannsson, Rögnvaldur Ingólfsson og Matthías Bjarnason. MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 5

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.