Bæjarins besta - 21.04.1999, Blaðsíða 8
Landsbanka-
knrinn í
heimsðkn
Kór Landsbanka ís-
lands hf., eða Lands-
bankakórinn eins og
hann er kallaður. held-
ur tónleika í Isafjarð-
arkirkju á laugardag kl.
17.
Söngstjóri kórsins er
Guðlaugu rVikloi sson.
Auk hans leika með
kórnum þeir Bjarni
Jónatansson ápíanóog
orgel, Birgir Bragason
á bassa og Pétur Val-
garð Pétursson á gítar.
Aðgangur er ókeypis.
Gnður
árangur
ísfirðinga
Strandagangan svo-
nefnda var huldin fyrir
stuttu. Fjölmargir fs-
firðingar tóku þátt í
göngunni og stóðu sig
með prýði.
í 20 kflómetra göngu
50 ára og eldri sigraði
Kristján R.Guðmunds-
son á 1:03,15, annar
varð Elías Sveinsson á
1:12,46 og þriðji varð
Konráð Eggertsson á
1:15,41. Halldór Mar-
geirsson og Gunnar
Pétursson urðu síðan í
4. og 5. sæti.
í 20 kflómetra göngu
35-49 ára varð Einar
Y ngvason í þriðja sæti,
Sigurður Gunnarsson
var í fjórða og Oskar
Kárason í fimmta.
Þrjðfyrir-
tæki vilja
snmu Iððina
Lóðin að Sindragötu
13a á ísafirði virðist
vera vinsælt bygging-
arland ef marka má
umsóknirumbygging-
arrétt á landinu, en þrjú
fyrirtæki hafa nú þegar
óskað eftir að fá lóðina
til umráða.
Fyrirtækin eru Eim-
skip, Trésmiðjan ehf. í
Hnífsdal og Ágúst og
Flosi ehf. en í umsókn
Eiinskips segir að lóð-
in verði nýtt til viðbótar
núverandi aðstöðu,
sem og fyrir framtíð-
arrekstur dótturfyrir-
tækis félagsins, ísa-
fjarðarleiðar.
Hin fyrirtækin áætla
að byggja húsnæði
undir fiskvinnslu,
frystigeymslu og aðra
hafsækna starfsemi.
OPNIR
FUNDIR
Frambjóðendur
Framsóknarflokksins
á VestQörðum
verða með opna fundi
á eftirtöldum stöðum:
Vagninum Flateyrí\
föstudaginn 23. apríl kl. 20:30
Félagsheimilinu á Suðureyrí\
laugardaginn 24. apríl kl. 13:00.
Féiagsheimilinu í Súðavík,
laugardaginn 24. apríl kl. 17:00.
Samkomuhúsinu Drangsnesi,
sunnudaginn 25. apríl kl. 20:30.
Tölvunámskeið
eldri borgara
Námskeiðið verður haldið í samkomusal
Hlífará ísafirði iaugardaginn 24. apríl 1999
kl. 14:00.
Kennari verður Svavar Þór Guðmundsson
frá Tölvuþjónustunni Snerpu ehf.
Sjá nánar í götuauglýsingum.
Zontaklúbburinn Fjörgyn.
Landssími Islands hf. er eitt stærsta þjónustufyrirtæki
landsins og er hlutafélag í samkeppni á markaði þar
sem stöðugar nýjungar eru og verða allsráðandi á
komandi árum. Fyrirtækið stefnir að því að vera
áfram í fararbroddi á sínu sviði. Landssíminn leitast
við að veita bestu mögulegu fjarskiptaþjónustu sem
völ erá hverju sinni og rekur eittfullkomnastafjarskiþta-
kerfi heimsins.
ÞJONUSTUFULLTRUI
ÍSAFJÖRÐUR
Landssíminn óskar eftir að ráða þjónustufulltrúa.
Starfið felst í ráðgjöf, sölu og afgreiðslu á fjarskiptaþjónustu og
notendabúnaði Símans, auk annarrar notendaþjónustu og
tilfallandi verkefna.
Við leitum að duglegu fólki, sem hefurtil að beraframúrskarandi
þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af
þjónustustörfum ásamt góðri grunnmenntun og tölvuþekkingu er
æskileg.
í boði eru krefjandi og áhugaverð verkefni og endurmenntun í
starfi hjá framsæknu fyrirtæki.
Ofangreint starf hentar jafnt konum sem körlum.
Nánari uþþlýsingar veitir Guðný Kjartansdóttir hjá Ráðgarði hf.
frá kl. 9-12 í síma 533-1800.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs fyrir 28. apríl nk.
merkt:
„Landssíminn - þjónustufulltrúi ísafirði"
LANDSSÍMI ÍSLANDS HF
Ráðstefna um máiefni aidraðra
Þjóöfélag fyrír fólk á fillum aldri
Fjölmenni var á ráðstefnu
um málefni aldraðra sem
haldið var í Félagsheimilinu í
Hnífsdal á sunnudag. Yfir-
skrift ráðstefnunnar var
„Þjóðfélag fyrir fólk á öllum
aldri" og var hún sérstaklega
ætluð öldruðum og þeim sem
koma að málefnum aldraðra
með einum eða öðrum hætti.
Það var Hákon Bjarnason,
formaður Félags eldri borgara
á ísafirði sem setti ráðstefn-
una og síðan flutti bæjarstjóri
Isafjarðarbæjar, HalldórHall-
dórsson ávarp. Því næst flutti
Margrét Erlendsdóttir, starfs-
maður framkvæmdanefndar
um Ár aldraðra ávarp sem hún
nefndi „Bætum lífi við árin"
og fjallaði það markmið og
stefnumið Sameinuðu þjóð-
anna á ári aldraðra.
Ásgeir Jóhannesson, fyrrv.
forstjóri fór yfir efnahagsmál
eldri borgara í víðum skilningi
og Ólafur Kristjánsson, bæjar-
stjóri í Bolungarvík fór yfir
framtíðarsýn sveitarfélaga í
málefnum aldraðra. Að lokum
greindi Benedikt Davíðsson,
formaður Landssambands
eldri borgara frá aðal áhersl-
um landssambandsins.
Þá var boðið upp á fyrir-
spurnir og umræður og létu
þónokkrir ráðstefnugestir í sér
heyra um málefnið enda mörg
mál ofarlega í huga þeirra.
Fékk Framsókn martröð?
Orsök eða afleiðing?
Það heyrist nú hvað eftir
annað sagt af forystumönn-
um Framsóknarflokksins og
verður sjálfsagt margnotað í
kosningabaráttunni, að taka
þurfi á því vandamáli, að
þeir sem eiga útgerðarfyrir-
tæki fari út úr sjávarútvegi
með mjög mikla fjármuni
þegar útgerðin er seld.
Þennan ofsagróða þurfi að
skattleggja sérstaklega og ef
það verði gert, verði mun
meiri sátt um sjávarútvegs-
málin. Þetta sé það atriði
sem fólki svíði mest og
mesti skipti, þ.e. að taka til
ríkisins verulegan hluta
þessa hagnaðar með sér-
stakri skattalegri meðferð og
nefnt er að skattur af þannig
gróða verði 50-80%.
Skyldi þetta nú vera aðal
vandamálið og ef svo er, er
það þá orsök eða afleiðing
núverandi kvótabrasks sem
gefið var frjálst og hefur síðan
verið óheft með lögum nr. 38/
1990 um stjórn fiskveiða?
Tökum á orsökinni
og eyðum afleiðingu
Eg fæ ekki séð að atvinnu-
öryggi í sjávarbyggðum verði
tryggara eða að kvótinn festist
betur í byggðarlögum þó svo
að sá sem „átti” kvótann sem
fylgdi útgerðinni, verði látinn
greiða hærri skatt af sölunni.
Vandi fólks sem missir
atvinnu vegna þess að at-
vinnurétturinn er seldur burt
verður eftir sem áður til staðar.
Rétturinn til að róa til fiskjar
hefur verið sú undirstaða sem
öll sjávarbyggð á landinu
byggir á. Atvinnurétturinn var
gerður að söluvöru.
Með löggjöfinni um stjórn
fiskveiða frá 1990 var gefið
gjörsamlega óheft frelsi til
þessaðseljagjafakvótann. Ný
skattlagning á þeim auðæfum
sem þá var útdeilt er aðferð til
að ná tekjum í ríkissjóð en
hætt er við að framkvæmdin
verði erfið. Við erum fundvís
á leiðir framhjá skattinum.
Aðferðin bætir ekki atvinnu-
og eignastöðu fólks sem miss-
ir frá sér atvinnuréttindi og
þar með undirstöðu lang-
flestra byggða.
Þannig skattur á fram-
kvæmd kvótabrasksins hækk-
ar ekki húseignir í kvótalaus-
um byggðum í verði. Þessar
hástemmdu yfirlýsingar um
að skattleggja afleiðingar
óréttlátrar löggjafar eru sýnd-
arviðbrögð þeirra sem ætla sér
ekki að breyta kvótakerfinu.
Það var reyndar upplýst af
fulltrúum ríkisstjórnarflokk-
anna á Norðurlandi eystra, í
útvarpsumræðum miðviku-
daginn 13. aprfl 1999,aðkerf-
inu yrði ekki breytt.
Það þarf að taka á orsök
kvótakerfisvandans. Lögum
um stjórn fiskveiða þarf nýtt
Guðjón A. Kristjáns-
son efsti maður á
lista Frjálslynda
flokksins skrifar
Alþingi að breyta svo sölu-
brask með óveiddan fisk
verði aflagt. Það er orsökin,
annað er afleiðing af kvóta-
kerfinu með frjálsu kvóta-
braski.
Guöjón A. Kristjánsson.
8
MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 1999