Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.04.1999, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 21.04.1999, Blaðsíða 12
SUMA RGJÖF/NA F/ERÐU HJÁ OKKUR . . MgturjfMpairt AÐALSTfWETI 27 SÍMI «6 3602 ísafjörður Áheitasöfnun Hafsprnunnar Unglingadeildin Haf- stjarnan sem er deild inn- an Björgunarfélags ísa- fjarðar efndi til áheita- söfnunar um síðustu helgi sem fólst í því að félags- menn gistu um borð í gúmmíbát á Pollinum á ísafirði í tvo sólarhringa. Veran um borð hófst kl. 17 á föstudag og lauk á l sama tíma á sunnudag og söfnuðust 250 þúsund krón- ur sem ráðgert er að fari til kaupa á áhöldum vegna landsmóts sem halda á í Skálavík í sumar. Atta liðs- menn í Hafstjörnunni tóku þátt í áheitasöfnuninni og voru fjórir um borð í gúmmíbátnum í sex tíma í senn. Hafstjarnan hefur áður efnt til slíkrar áheitasöfn- unar en það var árið 1995. Félagsmenn báðu blaðið um að koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem lögðu þeim lið við söfn- unina. Meðfylgjandi mynd tók ljósmyndari blaðsins af 'I rx®- nokkrum félagsmönnum um borð í gúmmíbátnum á sunnudag. Fjölsótt málþing haldið um Hornstrandir og aðliggjandi svæði Skiptar skoðanlr um íramtíð Mðlandsíns Málþing um Hornstrandir og aðliggjandi svæði var hald- ið sl. föstudag og laugardag í fyrirlestrasal Framhaldsskóla Vestfjarða. Þykir þingið hafa tekist vonum framar en vel yfir 100 manns mættu og fór aðsókn verulega fram úr því sem gert hafði verið ráð fyrir. Að sögn Þorleifs Eiríksson- ar, forstöðumanns Náttúru- stofu Vestfjarða, eru þeir aðilar sem stóðu að þinginu hæstánægðir með þann áhuga sem bæði heimamenn og ut- anaðkomandi sýndu málinu. Fjöldi fyrirlestra var í boði og komið inn á flest það er Horn- strandir og nálæg svæði varð- ar, þ.árn. náttúrufar, sögu, fornminjar, landeigendur, skipulags- og ferðamál. Að fyrirlestrunum loknum urðu miklarenjafnframtmjög málefnalegar umræður um hin ýmsu nrálefni sem snertaþetta landsvæði. Fjöldi fólks með ólfk sjónarmið og ólíka hags- muni tók til rnáls og viðraði skoðanir sínar. Um sum atriði voru allir sammála. eins og t.d. umhverfismál en nauðsyn- legt er talið að bæta hreinlætis- og öryggismál. Þá voru menn einnig einhuga um, að án tafar yrði að korna á yfirstjórn fyrir svæðið og gera ráðstafanir til að takast á við vaxandi ferða- mannastraum. Helst greindi rnenn á um hver framtíð Hom- stranda ætti vera og hvort æskilegt væri að auka umferð ferðamanna þar. Annars vegar kom fram sú skoðun að Horn- strandir ættu að vera óspillt friðland þar sem ekki væri markvisst stefnt að því að fjölga ferðamönnum og hins vegar kom fram skoðun þeirra sem vilja byggja upp ferða- mannaþjónustu, t.d. með því að bæta göngustíga og byggja upp aðstöðu fyrir ferðamenn. Landeigendur létu nokkuð að sér kveða í umræðunum enda sá hópur sem e.t.v. á einna mestra hagsmuna að gæta. Lætur nærri að um helmingur allra ferðamanna á svæðinu séu húseigendur og gestirþeirra. Nokkrarumræð- ur urðu um stöðu þeirra gagn- Frá málþinginu sem haldið var í Framhaldsskóla Vestfjarða. vart Náttúruvernd ríkisins og Isafjarðarbæ, t.d. varðandi gjöld og þjónustu. Uppbygg- ing ferðamannaþjónustu á svæðinu er jafnframt nokkuð sem snertir landeigendur tals- vert og ef ekki er rétt að málum staðið, skapast óhjákvæmi- lega ákveðin togstreita milli þessara aðila. UmræðurnartelurÞorleifur að haft verið góðar og gagn- legar og það sem þar kom fram verður skráð og safnað saman í skýrslu sem höfð verður til hliðsjónar þegar kemur að því að taka ákvarð- anir um framtíð og skipulag Hornstranda og nálægra svæða. Segir Þorleifur, að þó svo að málþingið hafi í sjálfu sér ekki skilað neinni ákveð- inni niðurstöðu um málefni Hornstranda, þá sé stærsti ávinningurinn af þinginu óumdeilanlega sá, að þarna hittist í fyrsta sinn fólk með ólíkar skoðanir og hagsmuni og ræddi saman á mjög svo málefnalegan hátt. Það sé fyrsta skrefið í rétta átt og þrátt fyrir að málefni Horn- stranda séu flókin og erfið við- ureignar, þá eru menn bjart- sýnir á að hægt verði að finna lausn þannig að allir geti vel við unað. í tengslum við málþingið var haldin kvöldvaka á Hótel Isafírði að kvöldi föstudags- ins. Víst er, að margir heima- menn sem ekki höfðu séð sér fært að sækjamálþingið sjálft, nýttu tækifærið og fjölmenntu á kvöldvökuna. Þar voru mál- in rædd á léttum nótum en einnig var boðið upp á ýmis skemmtiatriði, litskyggnusýn- ingu um náttúru Hornstranda og erindi um mannlíf á Horn- ströndum. FRAMSÓKNARFLOKKSINS HAFNARSTRÆTI 8 Alltaf heitt á könnunni Allir velkomnir! FRAMSÓKNAR- FLOKKURINN Virka daga kl.09-21 Laugardaga kl. 10 -18 FLUG TIL KAUPMANNA- HAFNAR VERÐ FRÁ KR. 25.300,- # Samvinnuferðir Landsýn Söluskrifstota • Hafnarstræti 7 isafirði • Simi 456 5390 kymftu ViS emm tií þjönustu reiðubúin Sparisjóðirnir á Vestfjörðum

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.