Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.04.1999, Page 6

Bæjarins besta - 21.04.1999, Page 6
Maður fer að hugsa allt öðruvísi Sigrún Sigurðardóttir í Hnífsdal rifjar upp örlagadaginn 2. janúar 1977 og segir frá foreldrum sínum og fjölskyldu BB heimsótti Sigrúnu á heimili hennar dag einn í síð- ustu viku til þess að spjalla við hana um foreldra hennar og fjölskyldu, um slysið og áhrif þess á þá sem eftir lifðu og um heimildamyndina sem áður er vikið að. Og um litla drenginn, sem þau Sigrún og Halldór misstu innan við hálfs árs aldur árið 1962. Alltaf ástfangin og dönsuðu í eldhúsinu „Pabbi og mamma voru ákaflega skemmtileg heima fyrir. Ég er ekki viss um að fólk hafi almennt vitað hvað þau voru skemmtileg. Á laug- ardagskvöldum dönsuðu þau alltaf heimaáeldhúsgólfi þeg- ar danslögin voru í útvarpinu, rétt eins og þau væru á balli. Þau voru óskaplega ástfangin og samrýmd alla tíð. Þegar þau dóu var pabbi orðinn sjö- tugur og mamma sextíu og fjögurra ára. Ef fólk væri al- mennt eins og þau, þá væri heimurinn betri. Ef hver og einn liti í eigin barm og reyndi að bæta sjálfan sig en ekki aðra, þá væru engin stríð“, segir Sigrún. Hermdi eftir Grunnvíkingum „Mamma var einhver besta eftirherma sem ég hef vitað. En hún fór mjög fínt með það svo að fáir vissu þetta nema fjölskyldan. Húngathreinlega leikið allt fólkið í Grunnavík- inni þaðan sem hún var. Henni þótti vænt um allt þetta fólk og þekkti það mjög vel og það var eins og öll sveitin væri komin á staðinn. Mér fannst synd að hún skyldi aldrei komast á svið. En ég veit að það hefði hún aldrei gert!“ Hinn mjúki maður „Pabbi var þessi mjúki maður sem var sjaldgæft á þeim tíma. Ég segi alltaf að hann hafí verið á undan sinni samtíð. Hann var svo hjálp- leguráheimili. Þetta varmað- ur sem var að vinna erfiðis- vinnu allan daginn, en þegar hann kom heim á kvöldin byrjaði hann alltaf á því að hjálpa til með krakkana. Hann var ekkert að rjúka upp í sófa til að hvíla sig þegar hann kom heim. Og alltaf þurrkaði hann upp eftir kvöldmatinn og hjálpaði svo mömmu við að koma börnunum í rúmið. Við krakkarnir héldum að allir pabbar gerðu þetta en svo komumst við að því að það var hvergi svona nema heima hjá okkur að pabbarnir tækju svo mikinn þátt í heimilis- störfunum. Hann fór alltaf með okkur í göngutúra á sunnudögum. Við börnin hans og síðan barnabörnin voru hans líf og yndi. Það var ekki furða þó að það yrði óbætan- legt skarð þegar hann fór. Pabbi mátti ekkert aumt sjá. Hann var maður sem gat gefíð sína síðustu krónu ef hann taldi einhvern þurfa hennar frekar með.“ Heimildamyndin Corpus Camera Ég spyr Sigrúnu hvernig það hafi komið til að hún kom fram í heimildamyndinni sem áður er vikið að. „Þetta kom þannig til, að Sigurjón [Baldur Hafsteins- son] var búinn að gera bók um ljósmyndir af dánu fólki og líkkistum. Ég átti mynd af kistum foreldra minna og bróður saman og hann fékk að nota hana. Svo hringir hann aftur í fyrra og talar um að hann ætli að gera heimilda- mynd og spyr hvort ég sé til í að tala við þau í myndinni. Mér fannst það allt í lagi, því að mér datt ekki í hug að þessi mynd ætti eftir að koma fyrir almenningssjónir. Það var auðvitað óttalega barnalegt, en það hvarflaði hreinlega ekki að mér. En þetta er ákaflega indælt og þægilegt fólk og mér fannst allt í lagi að tala við þau. Og síöan komu þau hingað vestur með myndatökuvél og ég gleymdi einfaldlega návist hennar. Samt held ég að mér hafí alltaf fundist að ég ætti aldrei eftir að tala um þessa hluti við ókunnugt fólk, að tala um slysið eða neitt sem viðkom því, heldur að ég mundi bara eiga það með sjálfri mér.“ Treysti sér ekki til að horfa ú myndina „En þegar þau komu öðru sinni vestur í vetur til að Ijúka við myndina og töluðu um að hún yrði sýnd opinberlega, þá leist mér ekkert á blikuma. Mér leið hreinlega illa yfir því að það ætti að fara að sýna þetta í sjónvarpi. I alvöru tal- að, ég vissi ekki hvað ég átti að gera af mér! Sigurjón sendi mér spólu með myndinni til að sýna mér að þetta væri allt í lagi. En ég horfði aldrei á hana. Ég treysti mér ekki til þess. Svo kom myndin í sjón- varpinu og ég ætlaði að horfa á hana þar. En ég gerði það ekki. Það var loksins nokkrum dögum seinna sem ég horfði á hana á spólu. Þá fannst mér myndin í heild verulega falleg og dálítið öðruvísi en ég hafði ímyndað mér." -Þannigaðkvíði þinn hefur verið ástæðulaus... „Já, reyndar var hann það. Annars fannst mér dálítið óraunverulegt að sjá sjálfa mig í kvikmynd og vera að tala um þessa hluti. En ég held að þetta hafi bara verið allt í lagi.“ Útrúleg viðbrögð -Hefurðu fengið mikil við- brögð? „Já, fólk fór að hringja í mig, ótrúlegasta fólk, bæði sem ég þekki og þekki alls ekki, og var að þakka mér fyrir að hafa rætt um þetta. Og þá fór mér að finnast þetta gott mál. Ég hafði ekkert hugsað þetta frá því sjónar- miði. Til dæmis hringdi í mig kona sem hafði misst foreldra sína í slysi fyrir löngu og hafði líka misst litla telpu fyrir mörgum árum. Hún sagði mér að hún væri búin að vera svo reið í öll þessi ár og hefði aldrei getað grátið. Hún sagði við mig: Svo horfði ég á þessa mynd og ég vissi í raun og veru ekkert hvað þetta var. Ég fór bara að horfa. En allt í einu áttaði ég mig á því að ég var farin að hágráta. Og þegar myndin var búin, þá leið mér svo miklu betur. Þetta sagði þessi kona. Og hún hringdi í mig til að segja mér þetta. Hún fann einhverja samsvör- un. Svo hefur fólk allsstaðar á landinu verið að hringja í mig. Ég er hreinlega hamingjusöm yfir þessu. Ég hugsaði aldrei út í neitt af þessu tagi fyrir- fram.“ Áfallahjúlp þess tíma „Ég nefndi í myndinni hvernig fólk gekk úr vegi fy rir mér þegar ég fór hér upp á götu fyrst eftir slysið. S vo kom ekkert meira fram um það í myndinni. En það er afskap- lega eðlilegt að fólk gangi úr vegi. Það veit ekkert hvað það á að segja við mann. En eftir þennan dag hef ég oft hugsað, hvað það hlýtur að vera ólfkt að búa úti á landi en á stórum stöðum þegar svona atburðir verða. Það eru allir vinir, bókstaflegaallir. Maðurkann- ast auðvitað meira og minna við alla í svona litlu plássi, en þarna verða allir eins og fjölskylda manns. Það var engin formleg áfallahjálp á þessum árum eins og nú er, en vinir og vin- konur komu hér dag eftir dag. Þetta var sannarlega áfalla- hjálp í verki. Ég hefði ekki viljað búa í Reykjavík við þessar aðstæður, þó að þar sé gott fólk. En í fjölmenninu er ekki þetta nána samfélag þar sem allir þekkja alla. ✓ Islenska heimildamyndin Corpus Camera, sem sýnd var á Stöð 2 fyrir nokkru, vakti mikla athygli. Meðal þeirra sem þar komu fram var Sigrún Sigurðardóttir í Hnífsdal. Nú eru liðin rúmlega 22 ár frá at- burðinum hörmulega þegar foreldrar Sigrúnar, Elísabet Jónsdóttir og Sig- urður Jónasson, og yngsti bróðir, Hallgrímur Sigurðsson, fórust í bíl- slysi. Þau voru á heimleið inn á ísa- fjörð í flughálku og hvassviðri að kvöldi 2. janúar 1977 úr heimsókn til Sigrúnar og eiginmanns hennar, Halldórs Friðbjörnssonar, og fjöl- skyldu þeirra í Hnífsdal. Ekki var vit- að um slysið fyrr en morguninn eftir. Það voru bæjarstarfsmenn sem voru að sandbera leiðina milli ísafjarðar og Hnffsdals sem komu auga á bílinn í fjörunni. Einn þeirra var Hjálmar Sigurðsson, sonur Elísabetar og Sig- urðar og bróðir Hallgríms. Sigrún (Rúna), Valgerður (Geröa), Katí(Katrín),Jónas, Halli (Hallgrímur), Hjalli (Hjálmar) og Rósi (Sigurður Rósi) ásamt foreldrum sínum, Elísabetu Jónsdóttur og Sigurði Jónassyni. Martinus Simson tók myndina árið 1952 Það var eitt í sambandi við þetta slys sem mér fannst eitt- hvað það versta sem gæti hent. Það var bróðir minn sem fann þau. Hann kom fyrstur að slysstaðnum þar sem bíllinn var í fjörunni. Það er eitt að missa fólkið sitt svona, en að hann skyldi þurfa að koma að því, það fannst mér ægilegt." Systkinin urðu ennpú núnari „Við vorum sjö, systkinin. Við höfðum alltaf verið ákaf- lega samrýmd, þó að við vær- um svo ólík að það var eins og við værum sitt úr hverri áttinni. Eftir þetta urðum við sem eftir lifðum ennþá nánari. En þetta er auðvitað ekkert meira en svo margur þarf að reyna. Fer nokkur í gegnum lífið án þess að þurfa að reyna eitthvað? Það er kannski mis- jafnlega mikið. En eftiratburði af þessu tagi fer maður að hugsa á allt ann- an hátt. Þá hættir maður að taka alla hluti sem sjálfsagða og sjálfgefna. í rauninni held ég að reynsla af þessu tagi bæti fólk. Maður verður um- burðarlyndari og gerir minna af því að fárast yfir smámun- um. Maður er ekki að hafa áhyggjur af einhverju sem skiptir engu máli. Tengslin innan fjölskyldu minnar eru mjög sterk. Svo á ég alveg einstaklega góðan eiginmann og góð börn. Og ég segi alltaf að ég hafi valið tengdabörnin mín sjálf. Og barnabörnin eru alveg spes!“ Sigrún kveðst alltaf hafa haft mikinn áhuga á fólki. „Ég veit nú ekkert af hverju það er, en mér hefur alltaf fundist gaman að kynnast fólki, tala við fólk og vera innan um fólk. Ef ég kann ekki nógu vel við einhvern, þá held ég að það sé vegna þess að ég hafi ekki kynnst honum nógu vel. Eg er búin að reka mig á að þetta er staðreynd. Þegar maður kynnist viðkomandi nógu vel, þá kemur í ljós að þetta er alveg ljómandi mann- eskja.“ Slysið og aðdragandi pess Slysið varð 2. janúar árið 6 MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 1999

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.