Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.05.1999, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 19.05.1999, Blaðsíða 5
Umsóknir um styrki frá menningarnefnd Ikki Sll kurl komin tll grafar Eins og fram kom í síðustu viku hefur menningarnefnd Isafjarðarbæjar samþykkt styrkveitingar til tíu aðila af þeim um það bil tuttugu sem sótt hafa um þelta árið. Þess misskilnings hefur gætt, að þeir umsækjendur sem hafa ekki fcngið úthlutað styrkjum séu þar með úti í kuldanum að þessu sinni, en svo þarf alls ekki að vera. I sumum tilvikum kann að vera að forsendur séu ekki enn fyrir hendi en verði það síðar. Þannig verðurekki hægt að afgreiða beiðni Litla leik- klúbbsins um ferðastyrk með Oliver! á meðan ekki liggur fy rir hvort yfirleitt verður farið í leikferð. Sama gildir um styrkbeiðni vegna Sumar- menningar í Neðsta. Menn- ingarnefndin hefur með hönd- um útleigu á Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað og getur ekki veitt ákveðnum aðilja styrk lil rekstrar þar á meðan ekki hefur verið gengið formlega frá því hver muni annast þann rekstur, að sögn Ingu Olafs- dóttur, formanns menningar- nefndar. I öðrum tilvikum kann að vera að styrkbeiðnum sé vísað annað og hugsanlega fái þær þar jákvæða afgreiðslu. Til dæmis kemur íil kasta ferða- málanefndar að afgreiða beiðni Sjóferða Hafsteins og Kiddýar um styrk vegna kynn- ingarbæklings. Þátttcikendur í Landsbankahlaupinu fyrir framan Landsbankann að lilaupi loknu. Landsbankahiaupið á ísafiröi 114 börn tóku þátt Þátttakendur í Lands- bankahlaupinu á Isafirði að þessu sinni voru 144 talsins á aldrinum 10-13 ára, en hlaupið bar upp á 95 ára afmælisdag útibúsins á Isafirði, 15. maí. Fyrstu þrír keppendur í hverjum flokki voru: Stúlkur fæddar 1986 og 1987: Kristín Grímsdóttir, ísafjörður Lögreglan sektar og sviptir Fjörutíu ökumenn höfðu á mánudagsmorgun verið teknir fyrirof hraðan aksturá ísafirði og í nágrenni frá síðustu mán- aðamótum, eða á aðeins lið- lega hálfum mánuði. Að sögn Önundar Jónssonar, yfirlög- regluþjóns á Isafirði, er hrað- akstursbylgja af þessu tagi árviss á hverju vori, einmitt á sama tíma og börnin eru að taka fram hjólin sín eftir vet- urinn og fara út á göturnar. „Lögreglan er búin að vera á fleygiferð að heimsækja skólana í umdæminu til þess að hamra á því við börnin að þau noti hjálma og gæti sín í umferðinni. En því miður náum við ekki sem skyldi til ökumannanna öðruvísi en Bolungarvík, íris Péturs- dóttir, Isafirði, og Asrún Sigurjónsdóttir, Isafirði. Stúlkur fæddar 1988 og 1989: Sandra Matthíasdóttir, Reykjavík, Guðbjörg Einarsdóttir, Isafirði, og Þórdís Benediktsdóttir, Suðureyri. Drengir fæddir 1986 og 1987: Ivar Pétursson, með því að vera með sekta- bóki na á lofti. Okkur er ekkert vel við það en við neyðumst til þess, því að það virðist vera eina ráðið til að hamla eitthvað gegn hraðakstrinum. Innan bæjarmarkanna erum við að taka ökumenn á um og yfir hundrað kílómetra hraða, til dæmis þar sem börn eru að Isafirði, Jón Örn Guðlaugs- son, Flateyri, og Matthías Vilhjálmsson, Isafirði. Drengir fæddir 1988 og 1989: Bragi Þorsteinsson, Isafirði, Ómar Halldórsson, Önundarfirði, og Brynjólfur Ó. Arnason, Önundarfirði. Allir þátttakendur fengu verðlaunapening. leik framan við Holtahverfið og á Stakkanesinu." Sektir við hraðakstri á götu þar sem hámarkshraði er 60 km er allt frá kr. 4.000 ásamt punktamissi og upp í kr. 20 þúsund ásamt ökuleyfissvipt- ingu þcgar komið er í 102 km hraða og síðan eru stighækk- andi sektir og sviptingar. Hvaö er helst aö gerast í norræna samstarfínu? Aðalfundur Norræna félagsins á ísafirði verðurhaldinn á Hótel ísafirði miðvikudaginn 19. maí kl. 20:00. Auk aðalfundarstarfa munu formaður Nor- ræna félagsins á ísiandi, Kristín S. Kvaran og varaformaður, Almar Grímsson, segja frá helstu verkefnum félagsins og svara fyrir- spurnum. Allir velkomnir! Stjórnin. FRAMHALDSSKÓLI VESTFJARÐA Pósthólf 97 - 400 ísafirði Innrítun í Framhaldsskóla Vestfjarða Innritunarfrestur vegna náms nýrra nemenda á væntanlegri haustönn er til 4. júní 1999. í boði eru eftirtaldar brautir: Starfsbraut fyrir þá sem ekki gangast undir samræmd próf. Fornám fyrir nemendur sem standast ekki samræmd próf. Almenntbóknám 1. árs (dagskóli á ísafirði og Patreksfirði og öldungadeild á ísafirði). Málmiðnaðarbraut (áður grunndeild málmiðna). Grunndeild rafiðna. Grunndeild tréiðna. Matartæknibraut. Samningsbundið iðnnám. Sjávarútvegsbraut. Sjúkraliðabraut. Vélstjórnarbraut. Þá er hægt að bæta við nýjum nem- endum á ýmsar námsleiðir á 2.-4. ári. Mjög brýnt er að öllum umsóknum fylgi afrit af prófskírteinum úr grunnskóla. Nemendursem koma úröðrum framhalds- skólum láti afrit af námsferli þar fylgja umsókn. Skólagjöld á haustönn, einkum innritunar- gjald og nemendafélagsgjald, alls kr. 5.000.-, verða innheimt með gíróseðli. Ef sótt er ofseint um skólavist þarfað greiða aukagjald. Upplýsingareru veittará skrifstofu skólans kl. 9-16. Skólameistari. Tertu- og brauötertubasar KvennadeUd S.V.F.Í. ísafirði verður með tertu- og brauðtertubasar föstudaginn 21. maí kl. 15:00 í húsnæði Framsóknarflokksins við Hafnarstræti. Allur ágóði rennur til húsbyggingar deildar- innar. Fatamarkaöur Andrésar verður í Kiwanishúsinu á ísafirði, miðviku- daginn 19. maí kl. 12-22 og fimmtudaginn 20. maí kl. 12-22. Mikið úrval af nýjum vönduðum fötum. Eldri föt á hálfvirði. Andrés Skólavörðustíg, sími 551 8250. KFÍ sér um hátíð- arhöldin Menningarnefnd ísa- fjarðarbæjar hefur ákveðið að fela Körfuboltafélagi Isafjarðar að sjá um há- tíðahöld 17. júní á Isafirði að þessu sinni. Félagið þegar gert drög að dagskrá hátíðahaldanna. Djúpmanna- búð opnar Álfhildur Jónsdóttir og fjölskylda annast nú rekst- ur Djúpmannabúðar í Mjóafirði sjötta sumarið í röð. Þar verður opnað á föstudaginn og verður tilhögun öll með svipuðu sniði og undanfarin ár. Fyrir utan veitingar og bensín er boðið upp á gistingu í sumarhúsi og á tjaldsvæðum. Hið marg- rómaða kaffihlaðborð Álf- hildar verður í fyrsta sinn á sjómannadaginn og síð- an um hverja helgi fram á haust. Massi kaupir Massi, hreingerninga- þjónusta, hefur fært sig á nýjan stað í sama húsinu f Suðurtanga 2 á Isafirði og byrjaði þar starfsemi á mánudag. Hann hefur fram að þessu verið í leiguhúsnæði en hefur nú keypt tæplega 260 fer- metra pláss þar sem H- prent var eitt sinn. Massi annast bæði bílaþrif og hreingerningar í heima- húsum og fyrirtækjum. Herferð gegn nagla- dekkjum Þessa dagana hefur lögreglan nóg að gera við að ýta við fólki að skipta af nagladekkjum yfir á sumardekk, enda allir vegir auðir. Sekt við því að aka á negldum dekkj- um utan þess tíma þegar þau eiga við er fjögur þúsund krónur. Lögreglan á Isafirði beinir þeim eindregnu tilmælum til ökumanna að þeir taki nagladekkin nú þegar undan svo ekki þurfi að koma til sekta. -•■tátÍMMii f. - ’ >v, .. AUGLÝSINGAR 00 ÁSKRIFT SÍMI 456 4560 MIÐVIKUDAGUR 19. MAI 1999 5

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.