Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.07.1999, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 07.07.1999, Blaðsíða 7
Verslunar- og skrifstofu- húsnæöi i miöbæ ísafjaröar Til sölu eru fasteignir Pólsins hf. við Aðal- stræti 11, ísafirði. Um erað ræða verslun- ar- og skrifstofuhúsnæði á góðum stað í miðbæ ísafjarðar. Til greina kemur að selja hluta affasteignunum. Góð aðkoma. Næg bílastæði. Hentar fyrir margvíslega starf- semi. Allar nánari upplýsingar veita Björn Jóhannesson hdl., í síma 456 4577 og ^Sævar Óskarsson ísíma 456 3092. í ^ Raðhús til leigu Fasteignin að Urðarvegi 68, ísafirði er til leigu fram til 1. júlí árið 2000. Húsið verð- urtilsýnis föstudaginn 9. júlí, milli kl. 16:00 og 18:00. Tilboð um leiguverð og greiðslur skulu send Fasteignum ríkissjóðs (fax 562 0644), Tryggvagötu 19,150 Reykjavík, eigisíðaren 12. júlí nk. Fasteignir ríkissjóðs. Stuðningur veitir styrk Undanfarna mánuði hefur Elísabet Alda Kristjánsdóttir í Bolungarvík barist við erfið- an sjúkdóm. Eiginmaður hennar, Oddbjörn Stefánsson, hefur einnig átt við veikindi að stríða og gengist undir að- gerð. Af þessum sökum hafa tekjur þeirra verið litlar að undanförnu. Félagar Elísabetar í Kvennakór Bolungarvíkur hafa ákveðið að standa fyrir söfnun þeim til handa til að auðvelda þeim lífsgönguna og hefur reikningur verið stofn- aður í Sparisjóði Bolungar- víkur. Lesendur Agnes M. Sigurðar- dóttir, sóknarprestur í Bolungarvík skrifar Þegar óvæntir og erfiðir at- burðir grípa inn í líf okkar er gott að finna stuðning sam- ferðafólks og þann velvilja sem honum fylgir. Reikningurinn í Sparisjóði 1176 er nr. 5700 og höfuðbók 05. Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bohmgarvík. Góður undirbúning- ur fyrir hjónaband Lagt af stað í 10 km hlaup. Gísli (t.v.) erstrax orðiiin síðastur. Gísli var nœrfœrinn við lambið. Golfleikari í fremur óvenju legunt búningi. slökkviliðsmönnum í þess- ari ferð enda er Gísli einn þeirra manna sem eru ávallt viðbúnir þegar Slökkvilið Isafjarðar er kallað út. Meðal annars var Gísli látinn mjólka kú (síðan drakk hann mjólkina), fara til Suðureyrar, flytja ræðu á Silfurtorgi, leika golf, gefa lambi pela og hlaupa 10 km í Oshlíðarhlaupinu í slökkviliðsgallanum (hann er ekki skráður meðal þeirra sem komu í mark). Gísliflyturrœðu ú Silfurtorgi og talar bœði með og móti giftingum. Húsfreyjan í Botni sýnir Gísla handtökin við mjaltirn- ar úður en hann gengur til verks. Spenvolg mjólkin drukkin við beljurass í Botni í Súg- andafirði. Vinir Gísla E. Úlfarssonar á ísafirði (Gísla í Hamra- borg) fóru með hann í óvissuferð um helgina í tilefni yfirvofandi brúð- kaups. Gísli var látinn gang- ast undir margvíslegar og óvæntar þrautir og kárínur en slfkt þykir víst heppilegur undirbúningur fyrir hjóna- band. Töluvert bar á Brúðkaup þeirra Gísla og Ingibjargar Sólveigar Guðmundsdóttur verður laugardaginn 25. júlí nk. Sjóstanga veiðimót Sveit Sigur- bjargar sigraði Aðalmót Sjóstangaveiði- félags Isfirðinga var haldið um síðustu helgi. Keppend- urnir, 24 að tölu, komu víðs- vegar að af landinu og öfl- uðu þeir al Is 6.444 fiska sem vógu 8.216 kg. Blönduð sveit Sigurbjarg- ar Kristjánsdóttur, með keppendum frá Ólafsvík, Vestmannaeyjum og Akur- eyri sigraði í sveitakeppni með 1.474 kg. I öðru sæti varð sveit Sigrúnar Baldurs- dótturfráísafirði með 1.244 kg. I karlaflokki sigraði blönduð sveit Arnþórs Sig- urðssonar, sem skipuð var keppendum frá Vestmanna- eyjunt, Akranesi og Reykja- vík með 1.630 kg. I öðru sæti varð sveit Einars Krist- insson frá Reykjavík með 1.487 kg og í þriðja sæti varð sveit Þóris Sveinssonar á ísafirði með 1.244 kg. I einstaklingskeppni karla sigraði Þórir Sveinsson Isa- firði með 600 kg, annar varð Einar Lárusson, Reykjavík með 562 kg og í þriðja sæti varð Arnþór Sigurðsson, Reykjavík með 507 kg. I kvennakeppninni sigr- aði Sigfríð Valdimarsdóttir, Akureyri með 559 kg, önn- ur varð Magnea Guðmunds- dóttir, Bolungarvík með 536 kg og þriðja varð Sigríður Kjartansdóttir, Isafirði með 282 kg. Auk verðlauna fyrir sigur í sveita- og einstaklings- keppni voru veitt verðlaun fyrir stærstu fiska einstakra tegunda, fyrir flestar veiddar tegundir, fyrir hæstu með- alþyngd og fleira. Aflahæsti skipstjórinn var Sveinn Björnsson og áhöfn hans á Fiskinesi með 1.698 kg eða 566 kg að meðaltali á stöng. í öðru sæti varð Þórarinn Jóhannesson og áhöfnin á Rán með 1.264 kg eða 421 kg að meðaltali og í þriðja sæti varð Elías Ketilsson og áhöfn á Sæ- birni með 2.162 kg eða 360 kg að meðaltali. Mótið heppnaðist í alla staði hið besta enda var veð- ur sérlega hagstætt til sjó- stangaveiði um helgina. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa Ólafs Halldórssonar skipstjóra Sérstakar þakkir fær starfsfólk Fjórðungssjúkrahússins á ísafirði Hugljúf Ólafsdóttir Margrét Ólafsdóttir Hrólfur Ólafsson Ásgerður Ólafsdóttir Halldór Ólafsson Einar Ólafsson Elín Ólafsdóttir Jón Steingrímsson Brynjólfur Bjarnason Kristín Júlíusdóttir Jóhanna Guðmundsdóttir Vilborg Jónudóttir Guðrún Helga Jónasdóttir barnabörn og barnabarnabörn. ísafjaróarkirkja Tónlelkar í kyöld í kvöld kl. 20:30 heldur sönghópurinn,, Vestan fjögur" frá Flateyri og Söngfjelagið úr Neðsta tónleika í Isafjarðar- kirkju. Efnisskrá tónleikanna eru veraldleg og kirkjuleg lög frá endurreisnar- og barrokktím- anum. Efni söngtextanna, sem eru á ýsmum tungumálum, tjalla aðallega unt ást og til- beiðslu. Á tónleikununi koma einnig fram þau Rúnar Vil- bergsson og Hulda Bragadótt- ir, sem leika saman á fagolt og orgel. Jafnframt leikur Hulda einleik á orgel og Rúnar á trommu í nokkrum af söngv- unum. Sönghóparnir syngja saman og í sitthvoru lagi. Gestastjórnandi er Guðrún Jónsdóttir, söngkona. Sönghópurinn „Vestan fjögur"frú Flateyri og Söngfjelagið úr Neðsta halda tónleika í lsafjarðarkirkju í kvöld. MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1999 7

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.