Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.08.1999, Side 7

Bæjarins besta - 11.08.1999, Side 7
ná veg Stjornmalamenn þurfa tillögur í skýrslunni sem Haraldur gerði um Dalabyggð koma fram úttektiráeiginlegaöllum þáttum milli himins og jarðar í mannlífi og atvinnulífi og síðan eru lagðar fram tillögur. „Þegar ég hef tekið að mér verkefni af þessu tagi, þá hef ég reynt að greina ástandið, en þegar það er búið tel ég mjög mikilvægt að leggja fram tillögur. Þegar verið er að gera úttektir af einhverju tagi, þá held ég að oft skorti að koma með tillögur í fram- haldi af þeim. Oft vantar stjórnmálamenn hreinlega einhverjar skýrar tillögur til að vinna eftir. Svo að Dala- byggðarskýrslan sé tekin sem dæmi, þá held ég að segja rnegi að nánast allt sem þar var lagt til hafí náð fram að ganga. Hins vegar sjáum við ekki enn hvaða þróun það skilar.“ Fjölmiðlafár á Djúpavogi Eftir störfin í Dalabyggð, í október í fyrra, tók Haraldur að sér tímabundið að vera framkvæmdastjóri hjá Bú- landstindi hf. á Djúpavogi og ætlaði fyrst að vera þar rétt á meðan verið væri að ráða nýj- an framkvæmdastjóra. „En þegar ég hafði verið þar í nokkrar vikur, þá gerði ég mér grein fyrir því að staða þess fyrirtækis var miklu alvarlegri en lýst hafði verið fyrir mér þegar ég tók verkefnið að mér. Þá má segja að ég hafí gert svipað og ég gerði í Dala- byggð - ég reyndi að greina ástandið og koma með tillögur til lausnar á vandanum. Mér virðist að nánast allt sem þar var lagt til hafi verið gert. Eins og ástandið er núna á Djúpa- vogi, þá hygg ég að þar hafi verið stigin farsæl skref í at- vinnumálum. Ef fólk man hvernig fréttaflutningur frá Djúpavogi var fyrir og um síð- ustu áramót, þá var mikill hamagangur sem fjölmiðlar voru ákafír að búa til og koma á framfæri. Aftur á móti þegar hjólin fara að snúast, þá er eins og fjölmiðlarnir rnissi áhugann. Við fórum í gegnum miklar hremmingar og erftð- leika, þurftum að selja skip og segja upp áhöfnum. A þessu höfðu fjölmiðlarnir mikinn áhuga. Eg man vel þegar ég var að segja upp áhöfninni áSunnutindi. Egfór um borð áður en skipið hélt í veiðiferð og þegar ég ætlaði að fara að ræða við áhöfnina niðri í matsal, þá eru þar allt í einu komnir menn frá Sjón- varpinu og það átti að fara að taka upp þessa athöfn. Eg ósk- aði vinsamlegast eftir því að það yrði látið vera. Þeir gerðu það reyndar og létu nægja að taka viðtöl við menn sem voru að fá uppsagnarbréf. En þegar allt var yfirstaðið á Djúpavogi, búið að fara í gegnum allar nauðsynlegar aðgerðir og menn farnir að átta sig á því að hlutirnir væru farnir að þróast á jákvæðan hátt, þá boðuðum við til blaðamanna- fundar. Við boðuðum alla helstu fjölmiðla á landsvísu og í héraði en þegar við at- huguðum hverjir ætluðu að konta á fundinn, þá reyndust þeir bara vera tveir. Við urðum að leggja töluverða vinnu í að fáfleiri til að koma. Það virðist ekki vera neitt gaman að segja fréttir þegar eitthvað jákvætt er að gerast. Eg held að blaða- menn og fréttamenn eigi tals- verðan þátt í hinni neikvæðu umræðu um landsbyggðina.“ Það má nefna í þessu sam- bandi, að í nýútkomnu tölu- blaði af héraðsfréttablaði á Austurlandi getur að líta frétt með eftirfarandi fyrirsögn: Uppgangur á Djúpavogi - öll íbúðarhús að fyllast af fólki. Einkarekstur á Djúpavogshöfn - Þú átt upptökin að einka- væðingu Djúpavogshafnar... „Ég lagði til að sameina rekst- ur hafnarinnar og ftskmark- aðarins. Það var ljóst að þessar einingartvær voru mjög óhag- stæðar í rekstri hvor í sínu lagi. A álagstímum er þörf á miklum mannskap, yfirleitt á morgnana eða á kvöldin, en síðan kemur dauður tími. Að mínu niati er það ntjög einfalt að samhæfa þessi verkefni, þannig að sami maðurinn get- ur unnið bæði fyrir höfnina og markaðinn í stað þess að höfnin sé með einn mann og markaðurinn með annan. I stað tveggja er hægt að ráða einn. Fiskmarkaðir hafa átt erfitt uppdráttar úti á landi, vegna þess að þeir þurfa ákveðinn mannskap en traff- íkin er ekki nógu mikil. Með samrekstri af þessu tagi er hægt að spara höfnunum kostnað og gera jafnframt hagkvæmt að reka fiskmark- aði á smærri stöðum. Nú rekur Fiskmarkaður Djúpavogs höfnina samkvæmt samningi við sveitarfélagið. Við þetta lækkar m.a. launakostnaður- inn við rekstur hafnarinnar urn að minnsta kosti helming. Þar með er hægt að lækka þjón- ustugjöldin og/eða hafa meira afgangs til framkvæmda. Við sjáum að nú þegar hefur umferð um höfnina í Djúpa- vogi aukist verulega. Þetta er eini staðurinn á landinu þar sem þetta hefur verið gert, enn sem komið er, en ég sé fyrir mér að það muni gerast víðast hvar á landinu þegar menn átta sig á hagræðingunni. Samrekstur af þessu tagi má einnig hugsa sér með öðrum hætti, til dæmis gætu þeir sem annast þjónustu við skipafé- Haraldur Líndal Haraldsson hagfræðingur er um þessar mundir ráðunautur Isafjarðarbæjar í atvinnumálum Þingeyrar. Hann er fjarri því að vcra ókunnugur hér vestra, því að hann var bæjarstjóri á Isafirði um liðlcga tíu ára skeið á árunum 1981-1991. A þeim tíma sem síðan er liðinn hefur Haraldur komið víða við. Fyrst var hann í nokkur ár framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Þorgeirs og Ellerts á Akranesi en síðustu fimm árin hefur hann tekið að sér ýmis tímabundin verkefni, einkum úti á landsbyggðinni þar sem við sérstaka erfiðleika er að glíma. Eftir hann liggur viðamikil úttekt á málefnum Dalabyggðar ásamt tillögum til úrbóta, sem nú eru sem óðast að verða að veruleika. Þar á meöal er flýting á lagningu nýs vegar um Bröttubrekku, sem á vissulega eftir að nýtast Vestfirðingum vel. Umskipti hafa orðið í atvinnumálum á Djúpavogi síðasta hálfa árið, en Haraldur var kvaddur þar til þegar allt var í kaldakoli. Djúpavogshöfn er nú rekin af Fiskmarkaði Djúpavogs, fyrsta höfnin hérlendis sem sveitarfélag hefur fengiö einkaaðila til að reka, en það er hugmynd Haralds. Bylting hefur verið gerð í félagslega íbúðakerfinu, en Haraldur lagði fram hugmyndir í þá veru á ráðstefnu um fjármál sveitarfélaga fyrir tæpum þremur árum. Fyrir nokkrum árum gerði Haraldur úttekt á gjaldþrotum á Islandi, sem mikla athygli vakti. Varðandi fjölskylduhagina er þess að geta, til fróðleiks fyrir gamla vini og kunningja, að Haraldur er nýorðinn afi (og Ijóinar allur í framan þegar það ber á góma). Ragnheiður dóttir þeirra hjóna, Olafar Thorlacius og Haralds, eignaðist drcng í mars, en hún er í þann mund að Ijúka námi í sálfræði við Háskóla Islands. Arnar Haraldsson er eins og vænta má í grunnskóla en Haraldur Líndal Haraldsson yngri er í þann veginn að hefja nám í margmiðlun. Ragnheiður býr á stúdentagarði cn strákarnir eru enn í foreldrahúsum. lög einnig tekið að sér rekstur hafnanna.“ Dylting í félagslega húsnæðiskerfinu - Þú hefur einnig markað þín spor í róttækum breyting- um á félagslega húsnæðiskerf- inu, sem gerðar voru í byrjun þessa árs... „Ég tel það mikið heilla- skref þegar þ ví kerfi var breytt, sérstaklega fyrir landsbyggð- ina. Eins og kerfið var, þá virkaði það ekki fyrir lands- byggðarfólk. Það kom vel út fyrir staði eins og Reykjavík- ursvæðið og Akureyri, en ann- ars staðar var þetta hreinlega íþyngjandi fyrir fólk. A lands- byggðinni var orðið tvenns konar verð á húsnæði, annars vegar á hinum almenna mark- aði og hins vegar á félagsleg- um íbúðum, þar sem verðið byggðist á framreikningi. Þannig voru íbúðir í félagslega kerfinu sums staðar á lands- byggðinni tvöfalt dýrari en íbúðir á almennum markaði og greiðslubyrðin langtum þyngri. Ég fullyrði að nýja kerfið mun styrkja byggð úti á landi, þegar fólk fer að átta sig á því. Ef við höldum okkur við landsbyggðina, þá getur fólk núna farið á hinn almenna markað og keypt fbúð t.d. á fjórar milljónir, sem hefði kostað átta til tíu milljónir í gamla kerfinu, og fengið 90% lán til a.m.k. 40 ára. Þetta er veruleg kjarabót fyrir hinn vinnandi mann á landsbyggð- inni og ég fullyrði að þetta mun auka eftirspurn eftir hús- næði þar. Eins og ástandið er á höfuðborgarsvæðinu í dag, þar sem verð hefur rokið upp úr öllu valdi, þá hlýtur fólk að fara að horfa til þess að geta komið út á land og keypt hús- næði á þessum kjörum. Eins og félagslega íbúðakerfið var, þá stóð það landsbyggðinni stórlega fyrir þrifum.“ Stjúrnsýsluhúsið Að lokum víkur talinu að Stjórnsýsluhúsinu á ísafirði. „Ég er mjög ánægður að hafa tekið þátt í því að Stjórnsýslu- húsið á ísafirði varð til“, segir Haraldur. „Ég átti mjög gott og lærdómsríkt samstarf við aðra þá sem sæti áttu f undir- búningsnefnd og síðan bygg- ingarnefnd hússins, þá Högna Þórðarson, Jóhann T. Bjarna- son og Brynjólf Sigurðsson prófessor, sem er gamall Is- firðingur. Það sem mér fannst einna jákvæðast varðandi Stjórnsýsluhúsið, var að það virtist ríkja alger samstaða hér heinta unt byggingu þess. Það er mín skoðun, að mjög vel hafi tekist til og ákvörðunin unt að efna til samkeppni hafi verið farsæl. Hér stendur nú mjög glæsilegt hús, sem er eins konar kjarni í samfélag- inu.“ Sendiherrann og steinbítshausinn Haraldur segir að það hafi verið mikil umskipti þegar bæjarskrifstofurnar fluttust í Stjórnsýsluhúsið, en áður voru þær á efri hæðum Kaup- félagshússins. „Sérstaklega var aðkoman þar heldur leið- inleg. Það þurfti að fara inn í skot á bak við til að komast inn og þar var oft nokkuð ósnyrtilegt.“ Honum er minn- isstætt þegar sendiherra Breta á Islandi var eitt sinn í heim- sókn á Isafirði á fögrum og sólbjörtum sumardegi. Sendi- herrann og bæjarstjórinn eru á leiðinni út af bæjarskrifstof- unum og þegar þeir koma út í skotið, þá blasir þar við stór og illilegur steinbítshaus fyrir fótum þeirra og var ekki laust við að sendiherranum væri nokkuð brugðið. Enn er sólbjartur sumardag- ur, nánar tiltekið laugardagur fyrir hádegi, þegar við Har- aldur L. Haraldsson höldum að Stjórnsýsluhúsinu á ísafirði til þess að taka eina eða tvær myndir. Það er sá staður sem hann kýs sér helst til mynda- töku fyrir þetta viðtal. Og ekkert undarlegt. - Hlynur Þór Magnússon. Hollustuvernd ríkisins Breyting á starfsleyfi fyrir Gná hffisk- mjölsverksmióju, Bolungarvík, frá 2. desember 1997 / samræmi við 6. gr. í I. kafla laga nr. 7/ 1998, um hollustuhættiogmengunarvarnir, liggj'a frammi til kynningarbreyting á starfs- leyfi fyrir Gná hf., fiskmjölsverksmiðju, Bolungarvík, frá 2. desember 1997, á bæjarskrifstofunum, Aðalstræti 12, Bol- ungarvík, til kynningar frá 16. júlí 1999 til 10. september 1999. Skriflegar athugasemdir við starfsleyfis- tillögurnar skulu hafa borist Hollustuvernd ríkisins fyrir 10. september 1999. Rétt til að gera athugasemdir við starfs- leyfistilögurnar hafa eftirtaldir aðilar: 1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi, svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi. 2. íbúarþess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar. 3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar. Einnig er hægt að nálgast tillögurnar á heimasíðu Hollustuverndar ríkisins http:// www. hollver. is/mengun/mengun.html. Hollustuvernd ríkisins, Mengunarvarnir, Ármúla la. Löcfreglan á Isafirði Skotvopnanámskeið Fyrirhugað erað halda skotvopnanámskeið á ísafirði dagana 19.-21. ágúst 1999 ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið hefst kl. 17 fimmtudaginn 19. ágúst í Stjórnsýsluhúsinu á ísafirði. Umsækjandi um skotvopnaleyfi þarf að upþfylla eftirtalin skilyrði, skv. 2. gr. reglu- gerðar nr. 787/1998 sbr. lög nr. 16/1998. 1. Að hafa náð 20 ára aldri og hafa ekki verið sviptur sjálfræði. 2. Að hafa ekki gerst brotlegur við ákvæði almennra hegningarlaga, áfengislaga, laga um ávana- og fíkniefni, vopnalaga eða laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum. 3. Að hafa nægUega kunnáttu til þess að fara með skotvopn, vera andlega heilbrigður og vera að öðru leyti hæfur til þess að fara með og eiga skotvopn. Umsóknareyðublöð um þátttöku á nám- skeiðinu liggja frammi á lögreglustöðinni á ísafirði. Umsóknarfrestur er til 17. ágúst 1999. Námskeiðsgjald er kr. 8.000.- og greiðist við upphaf námskeiðs. Lögreglan á ísafirði. MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999 7

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.