Bæjarins besta - 25.08.1999, Qupperneq 3
Handleiðsla eða afar sérkennileg tilviljun?
Vikan
framundan
Sá fyrst hús afa síns
daguin sem það hvarf
- Gústav Arnar verkfræðingur kom til ísafjarðar að skoða æsku-
heimili föður síns og hefði ekki mátt vera degi seinna á ferðinni
„Þetta var dálítið sérkenni-
leg upplifun. Væntanlega má
kalla þetta tilviljun en hún er
þá óneitanlega sérstæð og
skemmtileg“, sagði Gústav
Arnar yfirverkfræðingur í
Reykjavík í samtali við Bæj-
arins besta.
I byrjun síðustu viku kom
Gústav vestur á Isafjörð, að
heita má fyrirvaralaust og
samkvæmt skyndilegri hug-
dettu, til þess að skoða í góðu
tómi æskuslóðir föður síns og
sjá hvar afi hans hafði búið
ásamt fjölskyldu sinni. Gústav
vissi þá ekki hvaða hús þetta
var og því síður að einmitt þá
dagana var verið að ráðast í
niðurrif hins meira en aldar-
gamla húss. Sagt var frá nið-
urrifi hússins í BB í síðustu
viku.
Afi Gústavs var Björn Páls-
son ljósmyndari á ísafirði og
húsið sem um ræðir stóð við
Aðalstræti 32. Björn byggði
sér þetta hús árið 1891 en
eftir að hann dó árið 1916
fluttist fjölskyldan til Reykja-
víkur. Þar á meðal var faðir
Gústavs, Ottó Björnsson, en
hann tók sérættarnafniðArnar
og var landskunnur undir
nafninu Ottó B. Arnar.
Gústav Arnar, sem fæddur
er árið 1933, hefur komið til
Isafjarðar nokkuð oft, „en ég
hef þá alltaf verið að vinna og
ekki haft tíma til að huga neitt
að fortíðinni hér. En eiginkona
mín, sem er frá Skotlandi, fór
síðan að impra á því við mig
fyrir einu eða tveimur árum
að það væri gaman að fara á
ísafjörð og skoða þar hin
gömiu heimkynni fjölskyldu
minnar. Þetta frestaðist nú
sífellt og eyddist, en svo fór
það skyndilega að leita á mig
fyrir skömmu að gera nú eitt-
hvað í þessu. Við fórum síðan
vestur án þess að vita þá neitt
frekar um húsið hans afa og
byrjuðum að spyrjast fyrir
Aðalstrœti 32 á Isafirði.
hvar það væri.“
Gústav og eiginkona hans
fengu inni á Gistiheimili
Aslaugar á gömlu Hæsta-
kaupstaðarlóðinni við Aðal-
stræti og spurðust þar fyrir
um húsið hans afa. Það leið
ekki á löngu áður en þeim var
sagt, að hús Björns Pálssonar
ljósmyndara væri við Aðal-
stræti 32, aðeins steinsnar þar
frá, og byrjað væri að rífa það
og allra síðustu forvöð að sjá
það. „Við rukum út með
myndavélina og náðum að
mynda húsið, sem var nú að
vísu farið að láta mikið á sjá.
Það leyndi sér þó ekki, að
þetta hefur verið mjög glæsi-
legt hús á sínum tíma. Okkur
þótti mjög skemmtilegt að
geta litið það augunt í síðasta
sinn áður en það hvarf. Okkur
fannst þetta dálítið einkenni-
legt, vegna þess að þetta fór
allt í einu að leita á mig og
það var bara á sunnudags-
kvöldið sem við ákváðum að
fara vestur strax næsta dag.
Okkur fannst eins og það hefði
verið eitthvað sem stýrði okk-
ur þangað. En að sjálfsögðu
er hægt að flokka þetta sem
algera tilviljun.
Ottó B. Arnar skýrði upphaf
ættarnafnsins þannig á sínum
tíma fyrir syni sínum, að hann
hefði ógjarnan viljað að börn-
in hans hétu Ottósson eða
Ottósdóttir. „Mér finnsl þetta
reyndar nokkuð langsótt skýr-
Björn Pálsson.
ing“, segir Gústav sonur hans.
„Eg held að skýringin sé frek-
ar sú, að á þeim tíma þegar
faðir mi nn tók upp ættarnafnið
Arnar á öðrum áratug aldar-
innar, var mjög í tísku á Islandi
að taka upp ættarnöfn. Þá var
hann nýfluttur til Reykjavíkur
og Arnar-nafnið er komið að
vestan þar sem það er til í
örnefnum í mörgum samsetn-
ingum.
Eg held að það muni sitja í
minningunni að hafa fengið
að sjá húsið rétt áður en það
hvarf. Þótt ekki hefði liðið
nema einn dagur, þá hefði það
verið of seint.“
Björn Pálsson kom víða við
í bæjarlífinu á Isafirði á sínum
tíma og var meðal hinna
þekktustu manna bæjarins.
Auk þess að vera Ijósmyndari
kenndi hann dans, var í frem-
stu röð góðtemplara og var
bæjarfulltrúi á tímabili.
ÍSAFJARÐARBÆR
LEIKSKOLINN SOLBORG
Starfsfólk óskast á leikskólann Sól-
borg.
Um er að ræða 100% afleysingar-
stöðu, 69% skilastöðu frá kl. 13:00-
18:15 og 87,5% stöðu aðstoðarmanns
matráðs, frá kl. 9-16.
Umsóknareyðublöð er að fá á bæjar-
skrifstofu Isafjarðarbæjar sem og á
leikskólanum Sólborg. Umsóknar-
frestur er til 9. september.
Nánari upplýsingar gefur leikskóla-
stjóri í síma 456 3185.
SKEMMTILEGT STARF MEÐ BÖRNUM
Við Grunnskólann á ísafirði vantar
tvo starfsmenn til að annast börnin í
heilsdagsskólanum (e.k. skóladag-
heimili).
Vinnutímifrákl. 12:40 til 17:00(60%
starf) og kl. 12:40 til 15:00 (30%
starf).
Upplýsingar gefa skólastjóri, aðstoð-
arskólastjóri og Herdfs Hiibner, kenn-
ari í síma 456 3044.
Trenamskeiö!
Ef næg þátttaka fæst verð ég með tré-
námskeið helgina 3., 4. og 5. september.
í boði eru tvennskonar námskeið:
1. Málun á tré sem sett erá krans. Verð kr.
4.500, - Allt efni innifalið þ.e. kransinn,
málning, stenslar, sagað tré og lakk.
2. Tréfígúra tilbúin til málunar. Verð kr.
3.500. -Alltinnifaliðþ.e. söguðfígúra, máln-
ing, stenslar og lakk.
Námskeiðin verða haldin að Völusteins-
stræti 4 í Bolungarvík. Skráning er fyrir 31.
ágúst í eftirtöldum símum:
423 7569 og 898 2117 (Adda)
456 7122 (Guðjóna)
456 7487 (Valrún)
Auglýsingar og áskrift
sími 456 4560
senda plastið í Funa. Hann
leggur þó áherslu á, að plastið
sé samanþjappað og mjög gott
og hreinlegt í flutningi og hafi
að því leyti sérstöðu gagnvart
almennu sorpi. Hann segir
mjög dýrt að láta eyða sorpi í
Funa, en taxtinn í Sorpu er
aðeins lítill hluti af því sem er
íFuna. „En vissulega varFuni
dýr í byggingu og stöðin er
fullkomin og góð“, segir
Ágúst.
Súðavíkurhreppur er afar
víðlendur og strjálbýll og
vegalengdir miklar. Nú eru
hreppsyfirvöld að skoða
hverjir kostir muni vera heppi-
legastir í sorphirðumálum í
Djúpinu.
Það er Ijóst, að Súðvíkingar
munu halda áfram að skoða
alla möguleika til þess að
Ágúst Kr. Björnsson, sveit-
arstjóri í Súðavík.
losna við það sem til fellur á
sem ódýrastan og vistvænast-
an hátt, hvort sem það verður
í Funa eða annars staðar.
Þessa dagana er verktakqfyrirtœkið Grœðir í Önundarfirði aö undirbyggja veginn um
Hvilftarströnd og breikka iiann þar sem þörfkrefur fyrir nýtt og breiðara bundið slit-
lag. Þarna er um að rœða um þriggja og hálfs kílómetra kajla sem verið hefur með ein-
breiðu slitlagi, sem auk þess var víða orðið holótt og lasið. Innan tveggja vikna œtti að
vera komið nýtt og tvíbreitt slitlag á þennan kafla. Grœðir annast undirbygginguna en
Vegagerðin mun sjálf annast lagningu klœðingarinnar á veginn. Eins og sjá má á
myndinni er vegurinn heldur leiðinlegur ineðan á framkvœmdum stendur, eins og
vonlegt er, en Jljótlega verður liann orðinn miklu betri en áður.
Miðvikudagur 25. ágúst
Þennan dag árið 1970 var
stífla í Miðkvísl í Laxá í
Suður-Þingeyjarsýslu
sprengd til að mótmæla
stækkun Laxárvirkjunar.
Samkomulag tókst í Laxár-
deilunni í maí 1973.
Fimmtudagur 26. ágúst
Þennan dag árið 1991 tók
Island formlega upp stjórn-
málasamband við Eistland,
Lettland og Litháen, fyrst
allra ríkja.
Föstudagur 27. ágúst
Þennan dag árið 1946
komst fyrsti bíllinn yfir
Siglufjarðarskarð. Þar með
var einangrun Siglufjarðar
rofín, en vinna við veginn
hafði staðið yfír í ellefu ár.
Vegurinn um Strákagöng
leysti Skarðsveginn af hólmi
árið 1967.
Laugardagur 28. ágúst
Þennan dag árið 1986 hóf
Bylgjan útsendingar. Bylgj-
an var fyrsta útvarpsstöðin í
einkaeign sem tók til starfa
eftir að einkaréttur Ríkisút-
varpsins var afnuminn. fs-
lenska útvarpsfélagið rekur
nú Bylgjuna auk fleiri út-
varps- og sjónvarpsstöðva.
Sunnudagur 29. ágúst
Þennan dag árið 1944
veiddist túnfiskur á ísa-
fjarðardjúpi og vó hann um
300 kg. Næstu daga á eftir
veiddust fjórir aðrir túnfisk-
ar í Djúpinu.
Mánudagur 30. ágúst
Þennan dag árið 1967
brunnu tvær stórar vöru-
skemmur Eimskipafélagsins
við Borgartún í Reykjavík
en í þeim voru þúsundir
tonna af vörum. Eldurinn
kom upp skömmu fyrir mið-
nætti þennan dag og börðust
slökkviliðsmenn við hann í
röskan sólarhring. Þetta var
mesta eignatjón í eldi lil
þess tíma.
Þriðjudagur 31. ágúst
Þennan dag árið 1994
lauk lengstu viðureign skák-
sögunnar hér á landi með
jafntefli eftir 183 leiki. Þetta
var skák Jóhanns Hjartar-
sonar og Jóns Garðars Við-
arssonar á Skákþingi Islands
í Vestmannaeyjum. Eldra
metið var frá 1988, 163
leikir.
Atvinna
Oskum eftir að ráða um-
boðsaðila fyrir BB á Þing-
eyri. Viðkomandi þarf að
geta hafíð störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurjón í síma 456 4560.
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999 3