Bæjarins besta - 13.10.1999, Page 3
Fjórðungsþing Vestfirðinga haldið á Tálknafirði
Kvöldflug á f safirði
Brýnt er að hraðað verði
undirbúningi þess að kvöld-
flug um ísafjarðarflugvöll
verði mögulegt, að áliti Fjórð-
ungsþings Vestfirðinga. Þá
ítrekaði þingið nauðsyn trygg-
ra flugsamgangna milli Isa-
fjarðar og suðursvæðis Vest-
fjarða, en þær eru einu sam-
göngurnar milli þessara
svæðayfir veturinn. Jafnframt
var áréttuð nauðsyn þess að
flugvöllurinn í Dýraftrði verði
gerður að fullgildum varaflug-
velli.
„Með því að útbúa kvöld-
flugsaðstæður á ísafjarðar-
flugvöll og gera Þingeyrar-
flugvöll að fullgildum vara-
flugvelli er um leið verið að
auka öryggi samgangna milli
Isafjarðarbæjar og Vestur-
Barðastrandarsýslu", segir
m.a. í greinargerð.
Fjórðungsþing
Minkinn
burt
FjórðungsþingVestfirð-
inga sem haldið var um
síðustu helgi skoraði á
landbúnaðarráðherra og
ríkisvaldið að hefjast nú
þegar handa við að eyða
mink úr íslensku lífríki
„með árangursríkum,
markvissum og óyggjandi
aðferðum“. Sérstaklega
verði leitað nýrra leiða á
sviði líftækni og erfða-
fræði til að útrýma mink.
I greinargerð segir m.a.:
Mikilvægt er að leita allra
leiða í þessari baráttu. Þar
koma mjög til álita leiðir í
líftækni og erfðavísindum.
íslenskt hugvit og íslensk-
ir vísindamenn eru að
skipa sér í fremstu röð í
erfðavísindum. Leitað
verði leiða með færustu
vísindamönnum til að
finna einfalda og örugga
leið til að eyða minknum
úr lífríkinu á þennan hátt.
Slíkar aðferðir hafa rutt sér
til rúms erlendis við eyð-
ingu vargs sem veldur bú-
sifjum við ræktun nytja-
jurta.
Framtíð Fjórðungssambandsins
Samstarfið
í hættu?
„Framundan eru breyttir
tímar. Kjördæmabreytingin á
eftir að breyta mynstrinu í
samstarfi sveitarfélaga. Línur
munu færast til, áherslur
breytast og átök um sameig-
inleg hagsmunamál taka á sig
nýjar myndir sem við sjáum
ekki fyrir. Við skulum stíga
hvert skref varlega. Við þurf-
um að skoða allar hliðar
breyttrar kjördæmaskipunar
og skoða gaumgæfilega hvort
hætta sé á að samstarf sveitar-
félaga á Vestfjörðum sé í
hættu. Mun framtíðin bera það
í skauti sér að Vestfirðir verði
þríklofnir í nýju kjördæmi, þar
sem Barðastrandarsýsla ey kur
samstarf sitt við Snæfellsnes,
Reykhólar við Dalasýslu og
Strandirnar við Húnavatns-
sýslur?"
Þannig komst Haukur Már
Sigurðarson, formaðurstjórn-
ar Fjórðungssambands Vest-
lirðinga, m.a. að orði á Fjórð-
ungsþingi um síðustu helgi.
Hann minnti á að bráðlega
muni reyna á það, hvort Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga
verði í framtíðinni „aðeins
samstarfsvettvangur sveitar-
félaganna um þrýsting á
ákveðin pólitísk málefni eða
regnhlíf sveitarfélaganna í
samrekstri þeirra að málum
sem tengja saman hagsmuni
allra byggða á Vestfjörðum“.
Krílið til sölu
Krílið, Sindragötu 6 á ísafirði, gott fyrírtæki
í fullum rekstrí er til sölu.
Uppiýsingar veitir Sesselja í símum 897
4196 og 456 4726.
Til sölu
er húseignin Vita-
stígur 9, Bolungarvík,
sem er tvíbýlishús ú
tveimur hœðum, 80
fm. hvor hœð.
Húsið er klætt með Steni-plötum og einangrað.
Allir gluggar nýir með þreföldu gleri.
Húsið er allt nýuppgert og allar vatns- og
rafmagnsleiðslur nýjar ásamt nýju vatns- og
rafmagnsinntaki.
Parket á öllum gólfum.
Falleg baðherbergi á hvorri hæð.
Ath! Einnig kemur til greina að leigja húsið
Húsið er laust nú þegar. Sjón er sögu rikari.
Á sama stað er einnig til sölu sófasett, sófaborð, skápur, hillusamstæða, síma
borð með spegli, eldhúsborð og ísskápur. Motorola bílatalstöð fyrir Gufunes
radíó ásamt tveimur loftnetum og Lansing 3 tonna lyftari í góðu standi og vel
útlítandi.
Allar nánari upplýsingar gefur Ármann Leifsson í síma 456-7148.
ÍSAFJARÐARBÆR
LEIKSKÓLAKENNARAR ÓSKAST
Leikskólakennarar óskast á leikskól-
ann Eyrarskjól á Isafirði. Um er að
ræða þrjár 50% stöður eftir hádegi.
Á Eyrarskjóli eru fjórar aldursskiptar
deildir með sveigjanlegum vistunar-
tíma og er aðaláherslan lögð á hreyf-
ingu og hollustu. Einnig kemur til
greina að ráða annað uppeldismenntað
fólk eða starfsfólk með reynslu í vinnu
með börnum.
Nánari upplýsingar gefa Valgerður
Hannesdóttir, leikskólastjóri, Sigur-
lína Jónasdóttir, aðstoðarleikskóla-
Istjóri í síma 456 3685 eða Rósa Þor-
steinsdóttir, skóla- og menningarfull-
trúi í síma 456 3722.
f
Aðaifundur
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í ísafjarðarbæ verður haldinn þriðju-
daginn 19. októbernk. kl. 20:30 að Hafnar-
stræti 12 (2.hæð) á ísafirði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Alþingismennirnir Einar K. Guðfinnsson
og Einar Oddur Kristjánsson flytja ávörp.
3. Önnur mál.
Allirsem rétt hafa til setu í fulltrúaráði eru
hvattir til að mæta.
Stjórnin.
ílN
EILBRIGÐISSTDFNUNIN ISAFJARÐARBÆ
Bókhaldsstörf
- tölvuumsjón -
Starfsmaður óskast í 75% starf að Heil-
brigðisstofnuninni, ísafjarðarbæ með aðset-
ur í Fjórðungssjúkrahúsinu.
Verkefnin eru á sviði bókhaidsumsjár og
almennra skrifstofustarfa. Skilyrði erað um-
sækjandi hafi reynslu á þessu sviði. Jafnframt
er æskilegt að sami starfsmaður hafi þekk-
ingu og kunnáttu á tölvubúnaði. Mögulegt
er að sami starfsmaður annist umsjón með
tölvukerfi hússins og er þá um 100% starf
að ræða. Stofnunin leitarað áreiðanlegum
og reglusömum einstaklingi með framtíðar-
starfíhuga. Heilbrigðisstofnunin, ísafjarðar-
bæ er reyklaus vlnnustaður.
Umsóknarfrestur er til 29. október nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu stofnunarinnar hjá Guðjóni
S. Brjánssyni, framkvæmdastjóra, vs. 450
4513 eða Sigrúnu Halldórsdóttur, fjármála-
stjóra í vs. 450 4503.
Vikan
framundan
13. október
Þennan dag árið 1987 synti
kýr yfir Önundarfjörð, frá
Flateyri að Kirkjubóli í Val-
þjófsdal. Hún hafði verið
leidd til slátrunar en reif sig
lausa og lagðist til sunds.
Kýrin hét Harpa en eftir af-
rekið var hún kölluð Sæunn.
14. október
Þennan dag árið 1964 kom
rafreiknir Háskólans til
landsins. Hann var með „40
þúsund stafanúmer" og þótti
afkastamikill. Nokkrum
dögum áður fengu Skýrslu-
vélar mun minni tölvu. Þá
sagði í Vísi: „Fyrsti rafheil-
inn kominn. Vinnur verk
hundruða skrifstofumanna."
15. október
Þennan dag árið 1975 var
fiskveiðilögsagan færð út í
200 sjómflur. Hafsvæði inn-
an lögsögunnar er 758 þús-
und ferkílómetrar en var 216
þúsund ferkflómetrar þegar
hún var 50 sjómílur. Deilum
við Breta lauk með samn-
ingum íjúní 1976.
16. október
Þennan dag árið 1890 var
sími sem lagður hafði verið
milli Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðar vígður af lands-
höfðingja. Þetta var fyrsta
„málþráðarlagning" hér á
landi, segir í Fjallkonunni.
17. október
Þennan dag árið 1755 hófst
Kötlugos. Því fylgdi feikna-
legt jökulhlaup og öskufall.
Þetta er talið mesta ösku-
gosið í Kötlu á sögulegum
tíma. Það stóð fram í
febrúar.
18. október
Þennan dag árið 1980 hófst
sjötta hrina Kröfluelda, sú
þriðja á sama árinu. Hún
stóð í fimm daga. Alls urðu
goshrinurnar níu, frá 1975
til 1984.
19. október
Þennan dag árið 1994 kom
Guðbjörg, fullkomnasta
skipið í íslenska flotanum til
heimahafnar á Isafirði. Skip-
ið kostaði um 1,5 milljarð
króna.
Afmælís-
blað BB
BB verður 15 ára sunnu-
daginn 14. nóvember nk. Af
því tilefni hefur verið ákveð-
ið að gefa út sérstakt afmæl-
isblað sem dreift verður
ókeypis í öll hús föstudag-
inn 12. nóvember. Skila-
frestur auglýsinga er föstu-
daginn 29. október.
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999 3