Bæjarins besta - 13.10.1999, Side 8
ísafjörður
Gamla
sjúkrahús-
ið friðað?
Menntamálaráðuneytið
hefur sent bæjaryfirvöldum í
Isafjarðarbæ bréf þar sem
greint er frá því að ráðuneytið
hafi nú til meðferðar tillögu
húsafriðunarnefndar ríkisins
um friðun gamla sjúkrahúss-
ins á ísafirði.
í tillögunni er gert ráð fyrir
að friðunin taki til ytra borðs.
ísafjarðarbæ er gefmn kostur
á að koma á framfæri athuga-
semdum og skulu þær berast
ráðuneytinu fyrir I. nóvember.
ísaflarðarbær
Fundir í
sjónvarpi
Forsvarsmenn Skjá-Varps
hafa sent bæjaryfirvöldum í
Isafjarðarbæ bréf þar sem fyr-
irtækið býðst til að senda út
tvo bæjarstjórnarfundi án þess
að gjald verði tekið fyrir.
Með þessu vill Skjá-Varpið
gefa Isafjarðarbæ tækifæri til
að kynna sér þennan mögu-
leika nánar og sjá sér hag í
því að nýta sér miðilinn í auk-
inni þjónustu við bæjarbúa.
Bæjarstjóra var falið að
ræða við bréfritara.
ísaflörður
Brúðuleik-
luis á ferð
Brúðuleikhúsið Sögusvunt-
an er á leið til Isafjarðar með
nýjustu sýningu sína sem ætl-
uð er börnum á aldrinum 2-6
ára.
Sýningin sem heitir ,,Ertþú
mamma mín" verður sýnd í
Edinborgarhúsinu á laugardag
kl. 14:00 og 15:30. Miðasala
á sýningarnar hefst kl. 13:00
sama dag í Edinborgarhúsinu
en einnig er tekið á móti pönt-
unum í síma 456 5444.
ísafjörður
Námskeið
í Merkaba
Helgina5.-7. nóvember nk.
gefst Vestfirðingum í fyrsta
sinn kostur á að taka þátt í
námskeiði í Merkaba hug-
leiðslutækni og Shamballa
heilunartækni.
A námskeiðinu verður m.a.
farið í undirstöðuatriði and-
legrar iðkunar auk þess sem
kenndar verða jákvæðar stað-
festingar og hvernig hægt er
að breyta lífinu með jákvæðu
hugarfari og breyttu hugarfari.
Námskeiðið mun fara fram
í Hnífsdal. Allar nánari upp-
lýsingar fást hjá Björk í síma
456 4559 og hjá Lilju og Ella
í síma 566 7748.
Soffía ásamt eiginmanni sínum, Roland Smelt.
bænum. Hann ætti jafnvel að
búa hér til starf atvinnu- og
markaðsráðgjafa eða hvað
ætti að kalla það, starf sem
hefði það hlutverk að finna
hugmyndir að nýrri atvinnu-
starfsemi. Mér þætti ekki
óeðlilegt að sparisjóðurinn
legði fram fé í slíkt starf, að
minnsta kosti að einhverjum
hluta. Hann gæti lagt fram
tvær milljónir á ári í þessu
skyni. Bærinn áþessa peninga
ekki til. Það er mjög erfitt
fyrir fólk sem er í fullu starfi
og kannski einu og hálfu starfi
að vera að reyna að finna nýjar
hugmyndir og koma þeim í
framkvæmd. Það vantar ein-
hvern sem hefur tíma til að
hugsa, því að hugsun er til
alls fyrst. Sparisjóðurinn er
einhver mikilvægasti þáttur-
inn hér í þróun nýrra tækifæra
í atvinnumálum. Það á ekki
að vera neitt lögmál að pen-
ingar til þeirra hluta séu sóttir
út fyrir bæinn. Það hlýtur að
vera hans hagur að það flytji
fólk í bæinn. Hann á líka að
taka þátt í markaðssetningu
þess, hvað það er gott að vera
hér. Hann verður að taka
áhættu alveg eins og aðrir. Og
mér finnst það ekki mega
heyrast frá bankastofnun í
Bolungarvfk að hún vilji ekki
taka veð í húseignum í sínu
eigin bæjarfélagi á þeirri
forsendu að þær séu verðlaus-
ar. Bærinn okkar hefur mjög
litlar tekj ur um þessar mundir.
Við sem hér búum erum
venjulegt launafólk. Okkur
vantarmeiri tekjur inn í bæinn.
Okkur vantar meira af há-
tekjufólki sem greiðir meira
til bæjarins og okkur vantar
fleira af fólki sem greiðir til
bæjarins. Okkur vantar ein-
faldlega fleiri atvinnutæki-
færi. Markaðurinn erekki bara
Bolungarvík og ef til vill ísa-
fjörður, heldur allur heimur-
inn. Smáfyrirtæki sem skapa
ef til vill tvö-þrjú störf geta
skapað heilmiklar tekjur fyrir
bæinn. En það verðureinhver
að hafa tíma og peninga til að
kanna hvað við getum gert og
hvað við getum fengið.“
Bolungarvík og sérkennin
„Eg fæ aldrei nóg af því að
segja hvað mér finnst Bolung-
arvík fallegurbær. Eitt kvöldið
kom samstarfsfólk mitt í báð-
um skólunum og vinir saman
í smávegis gleðskap hérna
heima. Við borðuðum saman
og ég bauð þeim út á sólpall-
inn og sagði: Hér ætla ég að
sýna ykkur dálítið sem Þjóð-
verjar borga þrjú hundruð þús-
und fyrir að fá að sjá en þið
fáið það frítt. Veðrið var svo
dásamlegt þetta kvöld og
norðurljósin dönsuðu um
himininn í fjallahringnum
okkar en á milli mátti sjá
stjörnumerkin hvert á sínum
stað. Mérfinnst að við verðum
að muna hvaða verðmæti
felast í því að hafa aðgang að
svona fallegu umhverfi, og
hann frían. Svo vil ég að við
varðveitum og styrkjum þau
sérkenni sem við höfum hér.
Til dæmis vil ég að sjómanna-
dagurinn fái aftur fyrri reisn,
ég vil að kirkjan sé troðfull af
sjómönnum og fjölskyldum
þeirra við sjómannadags-
messu, ég vil almennilega
keppni í róðri og netahnýting-
um og beitningu, allir með
fána og merki og Geir í hátal-
arakerfinu og svo ball um
kvöldið og allir fullir sem vilja
vera fullir og þeir sem vilja
syngja sjómannalög geri það.
f stuttu máli: Mér finnst að
við verðum að styrkja ein-
kennin okkar, draga fram það
sem gerir okkur Bolvíkinga
sérstök og það tengist auðvit-
að sjávarútveginum og sjó-
mennskunni. Þessi atvinnu-
grein er að vísu mjög breytt
frá því sem áður var og að-
stæðurnar aðrar. Allir eru alltaf
að keppast við að veiða fisk-
ana sem þeir mega veiða á
meðan þeir mega veiða og
taka sér þá helst aldrei frí. En
ég vil segja við sjómenn:
Horfið líka á þau verðmæti
sem felast í því að gera sér
glaðan dag með fjölskyldun-
um ykkar. Við Bolvíkingar
verðum að horfast í augu við
þau vandamál sem hér er við
að etja. En við verðum lrka að
sjá kosti þess að eiga hér
heima. Þeir eru miklu fleiri.“
Vesturfrakt
Sjálfstæðir
Vestfirðingar
flytja með okkur! jg™
Afgreiðsla á ísafirði:
Ásgeirsgata 3 (við hiiðina á Vestra-húsinu)
Amar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
F asteignaviðskipti
Eftirtaldar eignir eru einungis sýnishorn úr sölu-
skrá okkar, leytið nán’ari upplýsinga á skrifstofu.
ÍSAFJÖRÐUR:
Grundargata 2: Rúml. 60 fm 2ja
herb. íbúð á I. hæð.
Verð kr. 3.800.000,- Laus.
Hlíðarvegur 16: Lítil 3ja herb. íbúð
á 2. hæð í tvíbýlishúsi. Verð kr.
3.800.000,- Lausþ. 1/1 I nk.
Hafnarstræti 6: 5-6 herb. íbúð á 2.
og 3. hæð. Getur verið laus strax.
Verð kr. 6.800.000,-
Hlíðarvegur 14: Einbýlishús -
kjallari, hæð og óinnréttað ris.
Grunnflötur ca. 90m2. Húsið er
nýuppgert að mestu.
Verð: 10.400.000,-
Heiðarbraut 12: Rúmlega 220m2
tvílyft einbýlishús ásamt bílskúr. Geta
verið tvær íbúðir. Laust fljótl. Verð
kr. I 1.500.000,- Skipti á minni eign
koma til greina.
Mánagata 6: Efri hæð I55m2 5-6
herbergja. Laus.
Mjallargata 6, norðurendi: Lítil 3-
4 herb. íbúð ásamt tvöföldum bílskúr.
Laus.
Pólgata 4: 5 herbergja íbúð á 3.
hæð. Verð: 3.600.000,-
Smiðjugata I la, rúmlega 150 fm
einbýlishús, tvær hæðir, ris og kjallari
ásamt litlum bílskúr
Aðalstræti 13: Efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt hálfum
kjallara og tvöfóldum bílskúr.
Hjallavegur 7, Suðureyri. Húsið er /76 fm. Á jarðhæð er
séríbúð ca 60 fm. Selst í einu lagi. Húsið er laust.
Stórholt II: 3ja herbergja íbúð á
3. hæð fýrir miðju. Laus.
Verð: 4.300.000,-
Stórholt 13:4ra herb. íbúð á 2. hæð
ásamt bílskúr. Skipti á ódýrari eign
eðajafnvel bíl koma til greina. Ibúðin
er laus. Verð kr. 7.800.000
Strandgata 5: Hnífsdal, 2ja herb.
íbúð 65 m2 á 2. hæð í sambýlishúsi.
íbúðin er laus. Verð kr. 1.000.000
íbúðir. Verð: 1,5 til 3 milljónir.
Traðarland 10: Einbýlishús ásamt
bílskúr. Verð: 7,2 milljónir.
Vitastígur 9: 2 x 75m2 parhús.
Nýuppgert og mjög vandað.
Völusteinsstræti 28: I50m2 ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
bílskúr. Verð: 7.000.000,-
Völusteinsstræti 3: Einbýlishús
ásamt bílskúr.
BOLUNGARVÍK:
Hafnargata 7: Efri hæð í tvíbýlis-
húsi.
Verð: 2.800.000,-
Höfðastígur 6: Rúmlega 170m2 íbúð
á efri hæð og séríbúð í kjallara. Selst
sitt í hvoru lagi.
Þuríðarbraut 9: Rúmlega I20m2
einbýlishús úr timbri ásamt mjög
stórum bílskúr (hátt til lofts). Húsið
getur verið laust fljótlega. Hagstæð
greiðslukjör - engin útborgun.
Búðarkantur 2: Rúmlega 200m2
stálgrindarhús.
Holtabrún 5: Ca. I40m2 einbýlis-
hús ásamt bílskúr.
Stigahlíð 2 og 4: 2ja og 3ja herb.
Sætún 6: Raðhús. Laust.
Hjallavegur I I: Einbýlishús, 160-
170m2, illa farið. Verð kr. 2 millj., allt
áhvílandi.
ÞING EYRI
Fjardargata 34a, rúmlega 100 fm
parhús. Húsið er laust. Verð kr.
1.700.000.
lH.HI.miT1
Dalbraut 12, I 13 fm einbýlishús.
Laust. Verð kr. 4.800.000.
Vestfirðir
Líflegt
námskeið
VáVest hefur ákveðið að
efna til námskeiðs fyrir stjórn-
ir foreldrafélaga, foreldraráð
og bekkjarfulltrúa grunnskól-
anna á norðanverðum Vest-
fjörðum. Námskeiðið verður
haldið að Holti í Önundarfirði
laugardaginn 16. október kl.
10-15.
Á námskeiðinu verður m.a.
reynt að svara eftirfarandi
spurningum: „Til hvers er ætl-
ast af mér sem stjórnarmanni
í foreldrafélaginu? Hvernig
get ég tekið virkari þátt í starf-
inu? Hvert er hlutverk mitt í
foreldraráðinu? Til hvers er
ætlast af mér sem bekkjar-
fulltrúa? Hvernig get ég gert
starfið í foreldrafélaginu
skemmtilegra og auðveldara?
Fyrirlesarar á námskeiðinu
verða þau Soffía Vagnsdóttir,
Edda S. Óskarsdóttir, Kjell
Hymer, Rósa Þorsteinsdóttir
og Jón Björnsson. í hádeginu
verður léttur málsverður í boði
Sparisjóðs Önundarfjarðar.
Námskeiðinu verður stjórnað
af félögum í JC-Vestfirðir.
Þátttökugjald er ekkert, en
áhugasömum er bent á að til-
kynna þátttöku til tengiliðs
foreldrafélaganna, Ingibjargar
Vignisdóttur í síma 869 7667.
ísaijörðiir
ísaQarðar-
leið verður
Eimskip
innanlands
Þrjú landflutningafyrirtæki
í eigu Eimskips, Isafjarðarleið
ehf. á ísafirði, Dreki hf. á Ak-
ureyri og Viggó hf. á Nes-
kaupstað, hafa verið samein-
uð. Þau starfa héðan í frá sem
ein rekstrareining undir nafn-
inu Eimskip innanlands hf.,
dótturfyrirtæki Eimskips.
Með sameiningunni næst
betri nýting átækjakosti, hag-
ræðing í starfsmannamálum
og samræmd þjónusta til
hagsbóta fyrir viðskiptavini
og jafnframt verður tekið í
notkun nýtt farmskrárkerfi, að
því er segir í tilkynningu frá
Hf. Eimskipafélagi íslands.
waRfiFVERK
* I ‘tlílílactm 4 . . S
EHFt rDi
lig 4 • Bolungarvik • S: 456 7373
Atvinna
Rafvirki óskast til
starfa sem fyrst.
Mikil vinna.
Upplýsingar í
símum 898 1875
og 456 7373
J*®
R6FVERK ehf,
I Skólastíg 4 • Bolungarvik • S: 456 7373
8
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999