Bæjarins besta - 13.10.1999, Qupperneq 9
Básafell hf við Sindragötu á ísafirði.
Listi Frjálsrar verslunar yfir 100 stærstu fyrirtæki landsins 1998
Básafell var stærsta
fyrirtæki estflarða
- Gunnvör hf. / íshúsfélag ísfirðinga hf. greiddi hæstu launin á Vestfjöröum á síðasta ári
Básafell hf. er stærsta fyrir-
tæki Vestfjarða, miðað við
veltu, samkvæmt nýjum lista
Frjálsrar verslunar yfir 100
stærstu fyrirtæki landsins.
Listinn er miðaður við upp-
lýsingar fyrir síðasta ár og því
gæti hann verið breyttur ef
miðað er við síðustu samein-
ingar fyrirtækja í fjórðung-
num. Hraðfrystihúsið hf. í
Hnífsdal hefur ekki veitt upp-
lýsingar til útgáfufyrirtækis
Frjálsrar verslunar og er því
ekki með á listanum nú frekar
en áður.
Velta Básafells hf. á síðasta
ári nam 2.760 milljónum
króna og var fyrirtækið í 60.
sæti yfir stærstu fyrirtæki
landsins. Gunnvör hf. / Ishús-
félag ísfirðinga hf. er í öðru
sæti yfir stærstu fyrirtæki
Vestfjarða með veltu upp á
1.874 milljónir, þá kemur
Orkubú Vestfjarða með 832
milljóna króna veltu, þá
Hólmadrangur hf. á Hólmavík
með 720 milljónir og Oddi
hf. á Patreksfirði er í fimmta
sæti með 559 milljóna króna
veltu. í 6.-10. sæti listans eru
Sparisjóður Bolungarvíkur
með 313 millj óna króna veltu,
Kaupfélag Steingrímsfjarðar
með 286 milljónir, Mjólkur-
samlag ísfirðinga með 160
milljónir, Eyrasparisjóður
með 151 milljón og Póls hf.
með 146milljónakrónaveltu.
Ef litið er á lista yfir þau
fyrirtæki sem greiddu hæstu
meðallaunin kemur í ljós að
Gunnvör hf. / íshúsfélag ís-
firðinga hf. er í 10. sæti með
meðallaun 4.925 þús. krónur.
Fara þarf aftur í 93. sæti á
listanum til að finna annað
vestfirskt fyrirtæki en það er
Orkubú Vestfjarða sem
greiddi 3.047 milljónir króna
í meðallaun á síðasta ári. A
lista yfir þau fyrirtæki sem
skiluðu mestum hagnaði fyrir
skatta er Sparisjóður Bolung-
arvíkur í 84. sæti með 76 millj-
óna króna hagnað. Ef miðað
er við hagnað sem hlutfall af
veltu er Sparisjóður Bolung-
arvíkur í 15. sæti með 24%
hagnað af veltu. Sparisjóður
Þingeyrarhrepps er aftur á
móti í 12. sæti þess lista með
26% hagnað af veltu.
Á lista yfír stærstu vinnu-
veitendurna er Básafell hf. í
36. sæti með 297 starfsmenn
að meðaltali. Á lista yfir þau
fyrirtæki sem eiga hvað mest
eigið fé í krónum talið er
Orkubú Vestfjarða í 22. sæti
með eigið fé upp á 3.832 millj-
ónir króna og í 48. sæti er
Básafell hf. með eigið fé upp
á 1.560 milljónir króna.
Mannskaðinn á Dýrafírði fyrir einni öld
IVIinnisvarðinn vígður
Minnisvarði um Dýrfirð-
ingana þrjá sem fórust fyrir
einni öld, þegar Hannes Haf-
stein, sýslumaður ísftrðinga,
reyndi að taka breskan togara
inni á Dýrafirði fyrir landhelg-
isbrot, var vígður við eyðibýl-
ið Bessastaði í Dýrafirði sl.
sunnudag. Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra var við-
staddur athöfnina, en ríkis-
stjórnin styrkti gerð og upp-
setningu minnisvarðans.
Landhelgisgæslan sendi
varðskip inn á fjörðinn og var
skolið af fallbyssum skipsins
í virðingarskyni við þá sem
fórust.
Höfundur mi nnisvarðans er
Jón Sigurpálsson, myndlistar-
maður á Isafirði. Frumkvæði
að gerð hans áttu afkomendur
Jóhannesar Guðmundssonar
á Bessastöðum í Dýrafirði, en
hann var formaður á bátnum
sem Hannes Hafstein fékk lil
að fara út að togaranum og
einn þeirra sem fórust. Hinir
tveir voru Jón Þórðarson frá
Meira-Garði og Guðmundur
Jónsson frá Lækjarósi.
Þrjár hressarLandsbankakonurað snœðingi. F.v. Bryn-
dís Baldursdóttir, Þórdís Olöf Eysteinsdóttir og Arndís
Finnbogadóttir.
Árshátíð Landsbankans
Bankastjóri Landsbankans Brynjólfur Þór Brynjólfsson
var að sjálfsögðu á árshátíðinni. Hér hlustar hann af
athygli á Steindór Ogmundsson. Til vinstri við Brynjólf
er eiginkona hans, Ragnheiður Jónsdóttir.
Þröstur Kristjánsson, Inga María Guðmundsdóttir og
Kristján Haraldsson, orkubússtjóri taka lagið.
Starfsfólk Landsbankans
á ísafirði hélt árshátíð sína
um fyrri helgi og var henni
slegið saman við að fara á
frumsýninguna á Hippum,
gleði ogglimmerí Krúsinni.
Ekki var annað að sjá en
bankafólkið og ektamakar
þess nytu hátíðarinnar og
kynnu því vel að rifja upp
tónlistina sem rfktí fyrir ald-
arfjórðungi og þá stemmn-
ingu sem henni fylgdi.
Kannski ekki laust við að
>S K
. ■ ■ ■ Éf
^ í
gamalt værðarlegt hippablik
tæki sig upp í augum prúð-
búins miðaldra bankafólks
og minningar vöknuðu um
þá tíma, þegar hálsbindi
voru bannvara en í staðinn
voru blóm í hári og víðar.
Elínborg Sigurðardóttir
spilaði undir fjöldasöng.
Með hippa-
blik í augum
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999 9