Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.10.1999, Síða 12

Bæjarins besta - 13.10.1999, Síða 12
ÚLPUR OG ANORAKKAR Útgerð Æsu ÍS-87 dæmd skaðabótaskyld fyrír Héraðsdómi Vestfjarða Kolbrunu og Qölskyldu dæmd- ar 6,7 milljónir í skaðabætur Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt Skelfisk hf. á Flat- eyri, sem gerði út skelveiði- skipiðÆsu ÍS-87, til að greiða Kolbrúnu Sverrisdóttur, eftir- lifandi sambýliskonu Harðar Sævars Bjarnasonar skip- stjóra, sem fórst með skipinu 25. júlí 1996 á Arnarfirði og þremur börnum þeirra á aldr- inum þriggja til átján ára tæpar 6,7 milljónir króna í bætur vegna tjóns af völdum fyrir- vinnumissis. Stefnandi (Kolbrún) taldi að meginorsakir slyssins hefðu verið þær að búnaði og stöð- ugleika skipsins hefði verið áfátt og hefði skipið ekki verið stöðugleikaprófað eftir breyt- ingar sem á því voru gerðar frá því það var afhent og þar til það fórst í blíðskaparveðri og sléttum sjó. Stefndi (Skel- fiskur hf.) taldi hins vegar að fullyrðingar stefnanda um or- sakir slyssins væru rangar og taldi að slysið hafa orðið vegna óhappatilviljunar, sem hann hefði ekki getað komið í veg fyrir. Taldi stefndi að ýms- ir þættir hefði getað valdið tjóninu svo sem vanræksla skipstjórans. I áliti rannsóknarnefndar sjóslysa, sem lagt var fyrir dóminn, kom fram að ekki hefðu fengist viðunandi upp- lýsingar um allar breytingar sem framkvæmdar hefðu ver- ið á skipinu. Teldist það ámæl- isvert að ákveða og/eða fram- kvæma breytingar á skipi, sem fallnar væru til að rýra öryggi þess án vitundar eða sam- þykkis opinberra eftirlitsaðila. Héraðsdómur Vestfjarða komst að þeirri niðurstöðu að útgerðin væri skaðabótaskyld vegna tjónsins þar sem skip- stjóra skipsins hefði ekki mátt vera ljóst að stöðugleiki skips- ins væri varhugaverður þar sem ekki hefði verið nægilega upplýst á hvern þátt breyting- arnar á skipinu hefðu hugsan- Kolbrún Sverrisdóttir. lega átt í ófullnægjandi stöð- ugleika þess. Dóminn kvað upp Erlingur Sigtryggsson, héraðsdómari. Meðdómendur voru Hjalti M. Hjaltason og Sigurður Ring- sted. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar. **.tr\ 1 p r. , Garðurinn Skrúður í Dýrafirði Nokkrir aðilar eru þessa dagana að ganga frá kaupum á þremur vinnsluhúsum Básafells að Sindragötu 5, 7 og 11. 2,6 mllljón- ir söfnuðust í júní sl. var efnt til söfn- unarátakstil stofnunarsjóðs til að standa undir árlegri starfrækslu, viðhaldi og endumýjun á Skrúði íDýra- firði sem er einn elsti garður landsins. Söfnunarátakinu var beint til Vestfirðinga al- mennt, gamalla nemenda á Núpi sem og fyrirtækja og samtaka í fjórðungnum. Alls söfnuðust 2,6 millj- ónir króna í átakinu. 550 einstaklingar gáfu um 1,7 milljónir króna og 22 fyrir- tæki gáfu 900 þúsund krón- ur. Nöfn einstaklinga og fyr- irtækja sem hafa lagt söfn- uninni lið verða skráð í Hollvinabók Skrúðs sem liggja mun frammi í Skrúð næsta sumar. Stjórn fram- kvæmdasjóðs vill koma á framfæri þakklæti til allra hlutaðeigandi sem lagt hafa málefninu stuðning. Þá hefur stjórn sjóðsins ákveðið að söfnun í sjóðinn haldi áfram þar sem mark- miðið er að vextir af sjóð- num standi fyrir viðhaldi garðsins. Leitað verður til fyrirtækja auk þess sem ein- staklingum gefst áfram kostur á að leggja sitt af mörkum. Reikningsnúmer söfnunarinnar er 1175-26- 757 hjá Sparisjóði vélstjóra. Nýir aðilar kaupa vinnslulms Básafells á ísafirði Stefiit m.a. að sushi-framleiðslu - ráðgert að framleiðslan fari í sölu innanlands og í Evrópulöndum. Fjársterkir aðilar koma að rekstrinum, þeirra á meðal Arnar Kristinsson, fyrrum framkvæmdastjóri Básafells Nýir aðilar eru þessa dag- ana að ganga frá kaupum á þremur af vinnsluhúsum Básafells á Isafirði, þ.e. hús- eignunum að Sindragötu 5, 7 og 11. Frumkvæðið kemurfrá ívari Pálssyni hjá Sameinuð- um útflytjendum hf. í Reykja- vík. Hefur hann og fyrirtæki hans fengið fjársterka aðila hér vestra ti 1 Iiðs við sig, þar á meðalArnar Kristinsson, fyrr- um framkvæmdastjóra Bása- fells. I byrjun þessarar viku var unnið að því að ná sam- komulagi við veðhafa en í framhaldi af því stóð til að stofna eignarhaldsfélag um húseignimar svo og fyrirtæki til framleiðslu á sushi, sem eru réttir úr hráum fiski og hafa þekkst lengi í Austur- löndum. Ekki mun þó ætlunin að hið nýja fyrirtæki framleiði fyrir Austurlandamarkað, heldurtil sölu innanlands og í Evrópu- löndum. Sameinaðir útflytj- endur hafa unnið að undirbún- ingi sushi-framleiðslu um langt skeið og verður sam- kvæmt heimildum blaðsins ekki farið af stað fyrr en tryggilega hefur verið gengið frá öllu er varðar bæði fram- leiðslu og markaðsmál. Sameinaðir útflytjendur hf. hafa annast sölu sjávarafurða, þar á meðal fyrir Vestfirðinga. NÁMSKEIÐ HAFIN Silfurgötu 6 * ísafirði Sími 456 4229 o Virka daga kl. 09 - 21 Laugardaga kl. 10 - 18 Sunnudaga kl. 12 - 18 (/éþf^/tf AUSTURVEGI 2 • SÍMI 456 5460 TILBOÐ Super WC eldhúsrúllur 8 stk./ kr. I38,- Super hveiti 2 kg./ kr. 49,- Gaffalbitar kr. 50,- Nýmjólk og lettmjolk kr. 67,- iisIm'iö Mtiáá'f

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.