Víðförli - 15.10.1999, Side 2
VÍÐFÖRLI
OKTOBER 1999
Leikmannaskólinn
Leikmannaskóli kirkjunnar hefur hafið nýtt starfsár.
I boði eru tugir námskeiða, bæði í Reykjavík og á
landsbyggðinni. Meðal þeirra sem þegar eru hafin er
námskeið í kvennaguðfræði í umsjá sr. Auðar Eirar
Vilhjálmsdóttur og Inngangsfræði Nýja testamentisins í
umsjá Gunnars Jóhannesar Gunnarssonar lektors.
Meðal þeirra námskeiða sem boðið er upp á á
haustönn eru eftirfarandi:
Hvar er Guð í þjáningunni? er yfirskrift námskeiðs
um glímu mannsins við böl og þjáningu í heimi Guðs.
Námskeiðið fer fram á ensku. Kennari er Dr. Daniel
Simundsson, prófessor við guðfræðiskólann Luther í
Minnesota. Dr. Simundsson er af íslensku bergi brot-
inn og dvelur hér á landi á haustmisseri 1999. Nám-
skeiðið er fjórskipt, þriðjudagana 12. okt. til 2. nóv.
Kennt er í Háskóla Islands.
Lifandi steinar kallast námskeið um uppbyggingu
messunnar og leyndardóma. Af hverju er messan eins
og hún er? Námskeiðið hefur verið haldið í nokkrum
söfnuðum á liðnum árum og þátttakendur hafa lokið
upp einum munni um að það hafi opnað þeim alveg
nýja sýn á guðsþjónustulíf safnaðarins og tilbeiðsL
unnar. Kennarar eru sr. Tómas Sveinsson og Jónanna
Bjömsdóttir. Kennt er í Háteigskirkju átta mánudags-
kvöld kl. 18-20 og hefst námskeiðið 18. október.
Auðlindir. Rætt verður um verðmætamat og lífs-
gildi, tilvistar- og siðfræðispurningar er varða um-
gengni mannsins við sköpunarverkið. Trúarleg upp-
lifun af náttúrunni/sköpuninni. Náttúran sem
uppspretta listsköpunar. Náttúruvernd í sögulegu
samhengi. Ohefðbundið verðmætamat. Kennarar
verða Geir Oddsson, forstöðumaður Umhverfisstofn'
unar HÍ, sr. Lára G. Oddsdóttir og sr. Örn Bárður
Jónsson. Kennt verður í Háskóla Islands, fjóra
fimmtudaga, 21. okt — 4. nóv., kl. 20-22.
Nánari upplýsingar eru veittar á fræðsludeild
kirkjunnar, Biskupsstofu, Laugavegi 31, Reykjavík.
Sími 535-1500, netfang frd@ismennt.is. Vefsíða
www.kirkjan.is./leikmannaskoli.
Alfa-námskeið
Leikmannaskólinn býður upp á Alfa-námskeið víða
um land á vormisseri. Alfa er 10 vikna námskeið um
grundvallaratriði kristinnar trúar. Áhersla er lögð á
samfélag þátttakenda með sameiginlegum máltíðum,
fyrirspurnatímum ásamt því að farið er í helgarferð í
lok námskeiðs. Kennsla hvers dags hefst með sameig-
inlegri máltíð og að henni lokinni er stuttur fyrirlest-
ur. Síðan eru umræður. Biblíuskólinn við Holtaveg
kennir líka Alfanámskeið á haustönn og er skráning
hjá KFUM og K í síma 588-8899.
Kirkjuþing 1999
Kirkjuþing, hið 31. í röðinni, verður í safnaðarheimili Há-
teigskirkju dagana 11.-20 október 1999. Á kirkjuþingi
eiga sæti 21 þingfulltrúi, 12 leikmenn og 9 prestar. Rétt til
setu á kirkjuþingi eiga einnig biskup Islands og vígslubisk-
upar, kirkjuráðsmenn, kirkjumálaráðherra eða fulltrúi hans
og fulltrúi guðfræðideildar Háskóla Islands. Hafa þeir allir
málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hafa þeir ekki.
Undirbúningur kirkjuráðs og forseta kirkjuþings stendur nú
yfir. Fyrirhugað er að fjalla um drög að ýmsum nýjum starfs-
reglum. Má þar nefna starfsreglur um embættiskostnað
presta, um tillögur að breytingum á skipan sókna, presta-
kalla og prófastsdæma, svo og um ýmislegt varðandi fram-
tíðarskipan þeirra mála, um fjármálastjórn sóknarnefnda,
um organista, fræðslu fyrir leikmenn innan þjóðkirkjunnar,
um söngmál og tónlistarfræðslu kirkjunnar, Fjölskylduþjón-
ustu kirkjunnar, leikmannastefnu og vígslubiskupa. Þá verð-
ur fjallað um frumvarp til laga um trúfélög. Þá verða kosnir
tveir aðalmenn í stjórn prestssetrasjóðs auk tveggja vara-
manna. Fjallað verður um fjárhagsáætlanir sjóða og að sjálf-
sögðu verða fastir liðir eins og skýrsla kirkjuráðs og ársreikn-
ingar sjóða 1998. Þá geta bæst við fleiri mál, t.d. mál sem
einstakir þingmenn kunna að vera með. Þingmaður 9. kjör-
dæmis hefur boðað flutning mála er varða skipan ýmissa
nefnda á vegum kirkjuþings og um kirkjuráð.
Áheyrendum er heimill aðgangur ef húsrúm leyfir, nema
annað verði ákveðið af kirkjuþingi.
Brúðuleikhús
Brúðubíllinn býður upp á fjölbreyttar sýningar sem henta
vel fyrir barnastarf kirkjunnar. Sýningarnar eru af ýmsu tagi
en allar snerta þær efni eins og vináttu, hjálpsemi við aðra
og vekja áhuga barna á náttúrunni. Helga Steffensen er
stjómandi Brúðubílsins. Hún hefur starfað við brúðuleik-
hús í 30 ár, bæði í Brúðubílnum, Leikbrúðulandi og í sjón-
varpinu, þar sem hún sá um Stundina okkar á árunum
1987 til 1993. Hún býr til allar brúðurnar og semur handrit
eða þýðir. Hún leikstýrir og stjómar brúðunum ásamt öðr-
um brúðuleikara. Hún hefur þegar sýnt í nokkrum kirkjum
við góðar undirtektir og býður upp á sýnikennslu á brúðum
eftir sýningarnar og umræðu um innihald sýninganna.
Sýningar Brúðubílsins eru fyrir yngstu áhorfenduma og
samanstanda af litlum leikþáttum, söng og sögum. Lengd
sýninga er mismunandi, allt frá 7 mínútum til 30 mínútna.
Sem dæmi um sýningar má nefna:
Guð gafmér eyra. Sköpunarguðfræðin fyrir yngstu böm-
in og unnið með efni þessa þekkta söngs (7 mín.). Beðið eft~
ir mömmu. Lítill ungi kemur út úr eggi og lendir í hættu
þegar hann fer að leita að mömmu sinni (14 mín.). Dýrin í
Afríku (7 mín.). Úlfurinn og kiðlingarnir (15 mín.). Gullbrá
og bangsarnir þrír (6 mín.). Brúður, tröll og trúðar (30. mín.).
2