Víðförli - 01.06.2001, Blaðsíða 5
JÚNÍ 2001
VÍÐFÖRLI
5
en þeirra er kærleikurinn mestur“
Hvemig birtist það í lífi og starfi kirkjunnar og í samskipt-
um okkar innbyrðis að kærleikurinn sé innsta eðli Guðs og
megininntak hins kristna boðskapar? Trúðarnir Barbara og
Ulfar, sem leikin eru af Halldóru Geirharðsdóttur og Bergi
Þór Ingólfssyni, munu flytja spunaleik á lokakvöldvökunni
um óðinn um kærleikann eins og hann birtist í fyrra bréfi
Páls postula til Korintumanna. Málstofan fjallar um þenn-
an texta og gefst okkur þá tækifæri að eiga samræður um
textann í nærveru trúðanna sem þeir munu nýta sér í túlk-
un sinni á kvöldvökunni. Umsjón: Sr. Þorvaldur Karl
Helgason. Kl. 10.00-11.00, stofu 3 í Vörðuskóla.
Hjónaband, samskipti kynja
Hjónabandssamningurinn
Við hjónaband tekur ákveðinn samningur lagalegt gildi.
En jafnframt hefur orðið til annar samningur sem felur í sér
gagnkvæmar væntingar, óskir og kröfur. Hvemig uppfyll-
um við þann samning og hvað hefur brot á honum í för
með sér? Málshefjandi: Elísabet Berta Bjarnadóttir, félags-
ráðgjafi hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar. Kl. 13.30, stofu
X á 4. hæð Iðnskóla.
Góðar samræður
Farið verður yfir nokkur helstu atriði sem einkenna góðar
samræður hjá hjónum og sambúðarfólki og geta stuðlað að
nánu sambandi og hjálpað við lausn ágreiningsefna. Einnig
er bent á hvað getur hindrað góðar samræður. Umsjón:
Benedikt jóhannsson, sálfræðingur hjá Fjölskylduþjónustu
kirkjunnar. Kl. 11.00, stofu 7 í Vörðuskóla.
Umræður um hirðisbréf biskups
1 birtu náðarinnar
Fjórir guðfræðinemar munu ræða um hirðisbréf biskups ís-
landog þá sýn á íslensku kirkjuna og framtíð hennar sem
þar birtist. Þeir munu flytja stuttar framsögur og leiða um-
ræður í framhaldi af þeim. Málshefjendur: Eygló Bjarna-
dóttir, Gunnar Jóhannesson, Gunnar Þórðarson og Sigrún
Rún Tryggvadóttir. Kl. 17.00, stofu 2 í Vörðuskóla.
Horft fram á veg í birtu náðarinnar
Fjallað verður um hirðisbréf biskups Islands. Kl. 13.30: Um-
ræða fólks sem gegnir embættum í kirkjunni. Málshefjend-
ur: Jóhann Þorsteinsson, framkvæmdastjóri sóknamefndar,
Rósa Kristjánsdóttir djákni, sr. Þórhallur Heimisson. Fund-
arstjóri: Drífa Hjartardóttir, sóknarnefndarformaður og al-
þingismaður. Kl. 14-30: Umræða leikmanna. Málshefjend-
ur: Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi, Arni
Sigfússon forstjóri og Jónína Bjartmarz alþingismaður.
Fundarstjóri: Sr. Jakob Agúst Hjálmarsson. Kl. 13.30-
15.30, stofu 6 í Vörðuskóla.
Kvennaguðfræði og jafnréttismál
Kvennaguðfræði í önn dagsins
Markmið kvennakirkjunnar er að vefa saman líf og trú svo
að trúin á Guð gefi okkur traust á sjálfar okkur, aðrar
manneskjur og lífið. Þegar við tölum um Guð tölum við
um lífið og þegar við tölum um lífið tölum við um Guð.
Þetta verður umræðuefni málstofunnar, sett fram með
stuttum framsögum og umræðum. Málshefjendur: Elína
Kristjánsdóttir guðfræðinemi og sr. Auður Eir Vilhjálms-
dóttir. Kl. 13.30, stofu 3 í Vörðuskóla.
Um mál beggja kynja í Biblíunni og helgihaldi
Ein af megináherslum jafnréttisáætlunar kirkjunnar er að
unnið skuli „að endurskoðun málfars í kirkjulegri boðun og
starfi“. Um framkvæmd þessa eru skiptar skoðanir. Eru
bræður kannski systur og konur líka menn? Er leyfilegt að
breyta orðalagi Biblíunnar og helgihaldsins? Við þessar
spurningar og fleiri skyldar verður glímt í málstofunni.
Málshefjendur: Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, dr. Auður
Eir Vilhjálmsdóttir, dr. Gunnlaugur A. Jónsson og sr. Krist-
ján Valur Ingólfsson. Fundarstjóri: Sveinbjörg Pálsdóttir
guðfræðingur. Kl. 14-30, stofu 3 í Vörðuskóla.
Umhverfismál og mannréttindi
Trú, umhverfismál og mannréttindi
Fjallað verður um mannréttindahugtakið, hvernig það
tengist trú og trúarlærdómum. Ennfremur um efnahagsleg
og félagsleg réttindi og skoðað hversu á þeim er tekið á
vettvangi Lútherska heimssambandsins þar sem umhverfis-
mál falla undir þann málaflokk. Málshefjandi: Sr. Þorbjörn
Hlynur Árnason. Kl. 17.00, stofu 4 í Vörðuskóla.
Umhverfisvernd og Guðs góða sköpun
Allir hlutar náttúrunnar, bæði lifandi og dauðir, eru gjafir
Guðs, og í eðlilegri hringrás efna og orku gegna allar lífver-
ur ákveðnu hlutverki. Við erum því kölluð til að auðsýna
kærleika og umhyggju okkar náttúrulega og mennska um-
hverfi, í nútíð og framtíð, í nánd og í fjarlægð. Málshefjend-
ur: Dr. Bjami Guðleifsson náttúrufræðingur, Tryggvi Felix-
son landfræðingur, framkvæmdastjóri Landverndar, dr.
Einar Sigurbjömsson guðfræðingur, formaður stjómar Guð-
fræðistofnunar. Fundarstjóri: Guðrún Edda Gunnarsdóttir,
náttúrufræðingur og sóknarprestur. Ábyrgðaraðilar: Land-
vernd og Guðfræðistofnun. Kl. 13.30, stofu 7 í Vörðuskóla.
Ofbeldi gegn konum og börnum
og áratugur kirkjunnar gegn ofbeldi
Ofbeldi karla gegn konum og bömum er vandamál í öllum
löndum heims. Hverjar eru afleiðingar þessa ofbeldis,
hvernig má skýra það og hvað er hægt að gera til að út-
rýma því? Hver er hlutur kristinnar kirkju í að viðhalda
þessu ofbeldi? Fyrirlesari: Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir sið-
fræðingur. Kl. 13.30, stofu 2 í Vörðuskóla.
María guðsmóður í íslensku samhengi
Vegsemd og virðing Maríu guðsmóður í íslensku samhengi
hefur risið og hnigið. Hátt rfs mynd hennar á íslenskum
miðöldum þar sem hún vakir yfir hverri sál: brjóstbirtan
sanna sem kaldir veggir áttu eftir að skilja nafnlausa í orð-
um og myndum. Nú rís birta hennar aftur: ljós í myrkri
mannhaturs og kvennakúgunar. Fyrirlesarar: Dr. Amfríður
Guðmundsdóttir lektor, dr. Einar Sigurbjörnsson prófessor
og dr. Jón Ma. Ásgeirsson prófessor. Ljóðalestur: Dr. Svan-
hildur Öskarsdóttir. Fundarstjóri: Ásdís Guðmundsdóttir
skrifstofustjóri. Kl. 10.00, stofu 2 í Vörðuskóla.