Víðförli - 01.02.2002, Qupperneq 2

Víðförli - 01.02.2002, Qupperneq 2
2 VÍÐFÖRLI 21.ÁRG. l.TBL. opna leið sem kann að vera hentugri fyrir suma. Leið til að kynnast þvf betur hvað kirkjan starfar og hvað hún stendur fyrir. Þótt stærsti markhópurinn sé ungt fólk sem hefur til- einkað sér notkun vefsins þá eru margir aðrir hópar sem má gera ráð fyrir að muni nýta sér vefinn. Eldra fólk sem kom- ið er á eftirlaun vafrar um og flettir síðum. Fólk á miðjum aldri sem þekkir það af eigin raun hversu handhægt og öfl- ugt tæki veraldarvefurinn getur verið í starfi. Það er eitt megineinkenni tölvutækninnar að hún krefst enn meiri hraða dag hvern, nýrri upplýsinga, meira aðlað- andi hönnunar. Sá sem ekki spilar með í þeim leik missir einfaldlega af lestinni. Og þarna er nútímanum kannski réttilega lýst. Annars vegar viljum við hafa allt sem nýjast og hraðast, vera fremst og fyrst. Hins vegar erum við þjök- uð af þessum ofsahraða. Fátt fær okkur til að staldra við til íhugunar og uppbyggingar, andinn fær vart hvílst eða nærst. Fátt virðist mikilvægara en annað. Og þá er svo mikilvægt að muna eftir hinu einfalda, eftir kyrrðinni og undraveröldinni sem getur falist í nota- legri stund við kertaljós eða góðum göngutúr um ósnortna náttúru. Þar fæst eitthvað sem gleður og veitir dýpri sýn á veruleikann. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari Endurbættur vefur þjóðkirkjunnar á internetinu Breytt ásýnd kirkjuvefsins Föstudaginn 8. febrúar síðastliðinn opnaði endurbættur vefur þjóðkirkjunnar. Um leið var opnaður nýr vefur Bisk- upsstofu. Vefslóðirnar eru: www.kirkjan.is www.kirkjan.is/biskupsstofa Forsíðan: Fréttir, atburðir og trúmál Forsíða vefsins (www.kirkjan.is) er hugsuð sem vettvangur fyrir fréttaflutning, kynningu á atburðum og trúmálaum- ræðu. Þar má einnig nálgast grunnupplýsingar um sóknir landsins. Þá er hægt að leita að símanúmerum og netföng- um starfsmanna kirkjunnar. Fréttaflutningur á kirkjuvefnum hefur stóraukist. Nýjar fréttir birtast daglega og er reynt að hafa þær sem fjöh breyttastar. Abendingar um fréttir má senda á netfangið frettir@kirkjan.is. I dagbók kirkjunnar er að finna upplýs- ingar um ýmislegt sem er að gerast í kirkjum landsins. Abendingar um viðburði má senda á dagbok@kirkjan.is. Trúmálaefni hefur einnig aukist mikið á vefnum. Nú er því skipt í fjóra flokka: Trúarlífið, siðferði og menning, kenning kirkjunnar og prédikanir. Flokkunum mun fjölga þegar trúmálavefurinn verður opnaður formlega í vor. Nokkrir fastir liðir eru þegar komnir í þennan flokk. Á hverjum laugardegi birtist yfirlit fyrir næsta sunnudag með lestrum, bænum og guðspjallssálmi ásamt leiðbeiningum fyrir daglegan lestur í Biblíunni. Verið er að vinna ítarlega umfjöllun um kirkjulegar athafnir (skírn, fermingu, hjóna- vígslu, útför og messu) sem verður tilbúin á næstu vikum. Þá eru uppi hugmyndir um að birta reglulega prédikanir á vefnum. Að síðustu má nefna umsagnir um áhugaverðar bækur og kvikmyndir. Það er því af nógu að taka. Þá er einnig að finna nýjan lið sem heitir kirkja mánað' arins. Undir þeirri yfirskrift er stefnt að því að kynna kirkjuhúsin út um landið og þá starfsemi sem þar fer fram. Annan hvern mánuð verður kynnt gömul kirkja í samstarfi við Þjóðminjasafn Islands, en hinn mánuðinn verður kast- ljósinu beint að einhverri yngri kirkju. Fie Edit Wew Favortes Tools Help □ ’ ■* • '& íá £; 3 i : Address |-g) http://www.lqrkjan.is/ _li 1 tirks -jBvtingur tfjKrtjan IjBiskuosstofa eJKrfdustarf gjKlrkJuþing ^JPrestaSstl :g)VefirHugv jjJVehrtarkju gjKorkar j/)Dec ” ÚÍiQiáiKjiiS^lþan jan 'i' þjónandi Forsíða r KIRKJAN.IS ■ Fvrirspurnir Simanúmer og netfðng Um vefinn Blskupsstofa taugavegí 31,150Rvk. Siml 535 1500, fax 551 3284 klrkianglkirkian.is Alkirkjuráðið Á ársfundi samkirkjunefndar, sem haldinn var fyrir skömmu siðan, kynnti sr. Bemharður Guðmundsson, rektor Skálhottsskóla, Alkirkjuráðíð : (World Council of Churches) og starfsemi | þess. Kynningu hans má nú lesa á vef : Biskupsstofu. ' Lesa áfram ,. ■ ; Árrii Svanur Dariielsson, 2002-02-Í9 : í Leikmannskólanum er framundan áhugavert námskeið um áhrif Guðrfðar Sfmonardóttur á skáldskap Hallgrfms Péturssonar. Námskeiðið nefnist Hjónin í Saurbæ og það er Steinunn : Jóhannesdóttir rithöfundur sem kennir. ; Lesa áfram .. j Irme Sjofn óskarsrkittlr, 2002-02-19 Dagskrá málþings um ungllngastarf : Er unglingastarf kirkjunnar árangursríkt eða ; er það úrelt og staðnað? Mánudaginn 25. : febrúar n.k. verður haldið málþing f : Grensáskirkju um unglingastarf kirkjunnar. : Yfirskrift málþingsins er "Er æskulýðsstarf : tfmaskekkja?” og lögð verður áhersla á að fjalla um unglingastarfið út frá þörfum : unglinga f dag. Tiúin oij hftó Arnfriður Einarsdóttir, logfræðingur og stjómarmaður f BibiÁjfélaginu, hefur lesið allar Potterbaskumar fy rir sfna st ráka - aftur og aftur. Hún hefur skoðun á gidi bókanra og hvað bömum sé bjóðandi. Meira efni Englar alheimsins Myndltst á kirk juvefnum é fðstu 2002 ; JJpp, upp mfn sál .,.* Passfusálmarnlr -1rúarlíflð Fvrsti sunnudaaur f fðstu - trúarlffið Meira um irúna oq (W Fleiri atburðir Kiikj.1 m.iii.id.irins Kirkja mánaðarins er Grafarktrkla á Hðfðastrónd í Skagafirði. Grafarkirkju má telja til elstu húsa sem enn standa á ísiandt. Gfsli Porláksson Hólabiskup (1657- 1684) mun hafa látið reisa kirkjuna... Kirkiuárlð - fastan Fastan, endumviunartfmar | | ;Q Trusted sites Forsíða vefs kirkjunnar. Vefur Biskupsstofu: Upplýsingavefur Vefur Biskupsstofu (www.kirkjan.is/biskupsstofa) er upplýs- ingavefur um kirkjustofnunina og geymir m.a. upplýsingar um skipulag kirkjunnar og kirkjustjómarinnar, um biskup Islands, kirkjuráð, stofnanir kirkjunnar o.fl. Einnig verða þar ítarlegri upplýsingar um einstök prófastsdæmi, presta- köll og sóknir. Vefur kirkjuþings, sem opnaður var í októ- ber á síðasta ári, mun falla undir vef Biskupsstofu. Nú þegar er að finna miklar upplýsingar á vef Biskups- stofu, en meira á eftir að bætast við. Til að mynda verða settar inn ítarlegri upplýsingar um sóknir og prestaköll, stofnanir kirkjunnar og ýmsar nefndir. Verið er að vinna að einum gagnagrunni með grunnupplýsingum um starfsfólk

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.