Víðförli - 01.02.2002, Qupperneq 4

Víðförli - 01.02.2002, Qupperneq 4
4 VÍÐFÖRLI 21.ÁRG. l.TBL. Hugleiðingar um Á hverju vori fermast um 4000 ungmenni að undangengn- um fermingarundirbúningi vetrarins. Á prestunum hvílir sá undirbúningur, fermingarfræðslan - og ljóst að áherslur þeirra eru mismunandi. Víðförli leitaði til nokkurra presta og bað þá um að skrifa pistil um fermingarundirbúning, áherslur í fræðslu, óskir og drauma varðandi fermingarmálin. Tveir fyrstu pistlarnir birtast hér. Á að leggja áherslu á utanbókarlær- dóm, á að leggja mesta áherslu á að kunna biblíusögurnar, trúfræðsla í bland við veruleika barnanna, hvaða máli skiptir upplifunin í helgihaldinu og vináttan og traustið við presta og starfsfólk kirkjunnar og hvað má betur fara í út- gáfu á fræðsluefni. Hvað vantar? Hvernig stöndum við okkur í fermingarundirbúningnum? Víðförli hvetur presta til að senda inn efni í næsta Víð- förla sem kemur út fyrir páska varðandi fermingarmálin. Veruleikinn og fermingarfræðslan Þær eru margar óskimar sem koma upp í hugann þegar lit- ið er til fermingarfræðslunnar. Heitasta óskin er að maður finni leið sem nær að hjarta ungmennanna, því tómhyggj- an er mikil sem tröllríður húsum þeirra. Það er ekkert mál að setja upp fínt skipulag með góðar hugmyndir. Vandinn liggur í þvf að ná til unglinganna. Fá þá til að hugsa um sjálfa sig út frá forsendum kristni. Eg held að þar skipti máli að trúfræðslan sé að einhverju leyti ofin inn í veruleika sem þau skilja. Þar hafa sum verkefnin reynst vel úr safn- möppu fermingarstarfsins sem Skálholtsútgáfan gaf út. Börn og unglingar alast upp í margfalt flóknari veruleika en gerðist fyrir tuttugu árum, hvað þá fyrr. Það hafa verið freistingar fyrir unglingana á öllum tímum en nú er áreitið svo mikið og tilboðin stöðug. I nútímafjölhyggjusamfélagi er margs konar hugmyndafræði í gangi. Heimasmíðuð heimsmynd er það sem unglingarnir eru í óðaönn að byggja sér. Byggingarefnið er oft og tíðum hráar hugmyndir sem eru efst á baugi hverju sinni. Mér er áhyggjuefni tómhyggj- an sem skín svo berlega í gegnum afþreyingarefni nútím' ans. Þar er allt leyfilegt og þar virðist sumt nauðsynlegt eins og klám og eiturlyfjanotkun. Þetta er mikil ógnun við heilbrigt gildismat. Þessu er stöðugt þrýst að ungmennun- um svo er nema furða að eitthvað láti undan. Umræðan um dauðann í fermingartíma nýverið kom mér óþægilega á óvart. Þegar ég hlustaði eftir viðhorfum ungmennanna kom m.a. í ljós að sum þeirra töldu það vera skýlausan rétt sinn og heilbrigt viðhorf að taka líf sitt. Eg hef aldrei verið jafn slegin eftir eina kennslustund. Þetta minnti mig á orð heimspekinganna að ef enginn væri Guð væri allt leyfilegt. I tómhyggju nútímans er nauðsynlegt að ná með boðskap kristins siðgæðis og lífsviðhorfs. Eg hef stundum spurt mig eftir fermingartímana hvort að fermingarfræðslu ítroðslan hafi eitthvað að segja. Ef hún er ein og sér held ég að það nái skammt en ef maður nær börnunum til að hugsa er líklegra að sáðkornið fái vökvun sem beri árangur þó að síðar verði. Áður fyrr taldi ég utanaðlærdóm á sálmum lítils virði en eftir því sem ég hugsa meira um það fá þeir aukið vægi. Kjamaatriðum kristni er oft komið haganlega fyrir í meitluðu máli. Forsendu þess að bömin festi sálminn með sér tel ég þó vera að þau skilji merkinguna. Ég fékk Stein- unni Einarsdóttur, listamann í Vestmannaeyjum, til að teikna myndir út frá sálmi Sigurbjöms Einarssonar, Eigi stjörnum ofar. Með því að sýna myndimar um leið og farið var í gegnum sálminn tel ég að hann hafi setið betur í ferm- ingarbörnunum. Eg hef bryddað upp á fleiru sem mér finnst hafa heppnast vel í fermingarfræðslunni. Tónlistarmessur þar sem fermingarbörnin em gerð virkir þátttakendur heppnast vel. Að láta þau færa upp einfalt leikrit úr guð- spjöllunum er skemmtilegt. Einhverju sinni bauð ég þeim sem vildu að búa til leikrit sjálf út frá Gullnu reglunni. Verkefnið var að sýna hvernig Gullna reglan gæti birst í lífi unglinga. Eg uppálagði þeim að leikritið endaði með því að Gullna reglan væri röppuð. Það stóð ekki á unglingunum, þau lögðu til samræður um einelti í unglingahópi. Aldrei hef ég heyrt nein fermingarbörn læra Gullnu regluna jafn vel, þar að auki styrkti þetta sjálfsmynd þeirra þó að fæðing- arhríðirnar tækju á. Þau urðu virkari í æskulýðsfélagi kirkj- unnar og sýndu leikverkið á æskulýðsmóti í Vatnaskógi. Kannski hafa einhverjir háalvarlegir hneykslast á uppátæk- inu að láta ungmennin rappa Guðs orðið. Hitt er ég viss um að ég fékk ungmennin til að skilja orð Krists og hugsa um það af alvöru inn í raunverulegum aðstæðum sínum. Eg hef lagt alúð í að kynna altarisgönguna fyrir ferming- arbörnunum. Þar hef ég notað brauð og djús um leið og fræðslan um sakramentið fer fram og höfða þar til innlifun- ar þeirra í síðustu máltíð Jesú með lærisveinunum. Þetta kynni ég fyrir foreldrunum í bréfi ásamt því að bjóða þeim að ganga til altaris nokkrum vikum fyrir fermingar. Þannig skapast gott tækifæri til að innræta þeim lotningu fyrir sakramentinu. Ágætis viðbót við fermingarfræðsluna er að horfa á bíó- myndir sem í eru kristin minni. Þetta er þó vandmeðfarið því ef árangur á að nást þarf efni myndar að vera þaulkunn- ugt leiðbeinanda svo að hann geti skorið efnið niður á rétt- um stöðum og spurt réttra spurninga. Kosturinn er að ung- lingarnir eru mjög þjálfaðir í að nýta sér myndbönd sem miðil til upplýsingar, fræðslu og skemmtunar. Hér getur fræðslu- og skemmtanagildið runnið saman ef vel tekst til. Annars er ég alltaf að bíða eftir myndbandinu um ævi Jesú sem fræðsludeildin stefndi á að gefa út. Það er grá- upplagt innlegg með kristsfræðinni sem er í Líf með Jesú. Að geta nýtt sér myndbönd markvisst í fræðslunni skapar dýpri sýn og brýtur upp leiða sem oft segir til sín á miðjum vetri. Eg á mér draum um að sjá tölvutækt margmiðlunarefni

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.