Víðförli - 01.02.2002, Side 6

Víðförli - 01.02.2002, Side 6
6 VÍÐFÖRLI 21. ARG. l.TBL. Ný kirkja í Tálknafirði Þegar ég var í guðfræðideildinni fyrir ekki svo ýkja löngu var stundum rætt um það hvað það væri nú slæmt þegar peningar sóknanna færu í steinsteypu í stað þess að efla starfið. Að mörgu leyti virðingarvert viðhorf, en á hitt ber þó að líta að án aðstöðunnar verður lítið úr starfinu. Ann- ars erum við hér í Tálknafirði ekki með steinsteypumóral, því nýja kirkjan okkar er af timbri gjörð. Sannast sagna man ég ekki hvenær timburkirkja var síðast byggð hérlend- is og væri gaman að fá fregnir af því. Flestum Tálknfirðingum fannst orðið tímabært að þeir fengju kirkju í þorpið. Stóra-Laugardalskirkja er í um 7 km fjarlægð frá Sveinseyri og var lengstum um erfiðan veg að fara þangað úteftir. Sl. vetur mátti fella niður allmargar messur eða færa helgihaldið heim í bílskúr vegna þess að ófært var í Stóra-Laugardal, ýmist af snjóa völdum eða aur- bleytu. Að geta farið torfærulaust til messu, að maður nefni nú ekki að geta farið fótgangandi, verður Tálknfirðingum gleðileg og áður ókunn reynsla þegar nýja kirkjan verður tekin í notkun. Það er að sjálfsögðu alvörumál fyrir lítinn söfnuð eins og Stóra'Laugardalssókn að ráðast í kirkjubyggingu. Enginn annar kostur var samt fyrir hendi. Engin hreinlætisaðstaða er í gömlu kirkjunni, auk þess sem hún er orðin svo óþétt að ef hreyfir vind að vetrarlagi verður illþolanlegt þar fyrir kulda. Annað starf, s.s. barnastarf og fermingarfræðsla, fór fram í bílskúrnum við prestsetrið. Tálknfirðingar hafa verið duglegir að styðja kirkjubygg- inguna; má heita að hvert heimili borgi mánaðarlega í byggingarsjóðinn, með VISA raðgreiðslum eða á annan hátt. Fyrirtækin hafa einnig stutt myndarlega við fram- kvæmdirnar, hreppurinn og Jöfnunarsjóður sókna, sem hef- ur gert mjög vel við okkur. En þrátt fyrir allan þennan stuðning er ljóst að við eigum nokkuð eftir til að komast fyrir vind. Ekki síst vegna þeirra efnahagslegu breytinga sem orðið hafa í þjóðfélaginu frá því við hófum verkið. Þess var samt gætt að við reistum okkur ekki hurðarás um öxl. Kirkjan er hóflega stór; grunnflötur byggingarinnar er 210 fm og þar að auki er söngloft, vel rúmt. Safnaðar- heimili er afstúkað með þili sem renna má frá við fjöl- mennari athafnir. Þess utan er hreinlætisaðstaða, skrifstofa fyrir prest og eldhúskrókur. Arkitekt er Elísabet Gunnars- dóttir á ísafirði. Nú hillir undir að hægt sé að vígja kirkjuna. Stefnt er að þvf að vígslan fari fram 5. maí og eru þá liðin tvö ár frá því að Karl Sigurbjörnsson tók fyrstu skóflustunguna, en það var 6. maf 2000. Aðeins er eftir að setja upp hurðir og verið er að útbúa altari og prédikunarstól, sem verður tilbú- ið von bráðar, auk þess sem eftir er að gera altaristöflu. Höfundur að útliti altaris, prédikunarstóls og altaristöflu er Hreinn Friðfinnsson listamaður. Að vígslu lokinni verður allt starf, sem nú fer fram í samkirkjulegu trúboðsmiðstöðinni við prestsetrið (þ.e. bíl- skúrnum mínum) flutt í nýju kirkjuna. Er óhætt að segja að hér vestra sé horft með feginsamleik og gleði til komandi tíðar, þó ekki án eilítillar fjármálaáhyggju. Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur Leikamannaskóli þjóðkirkjunnar Lærum um lífið Við lifum í flóknum heimi sem gerir okkur stundum ráð- þrota. Við horfum í allar áttir og okkur finnst umhverfið framandi. Hver er ég? Hver er tilgangur lífs míns? Hvernig fæ ég svar við öllum þessum spurningum sem leita á huga minn eða hvernig fæ ég hjálp til að leita svara? Kristin trú á ekki svör við öllum spurningum en hún hjálpar okkur oft til að vera færari um að takast á við lífið. Kristin trú hvetur okkur í raun til að vera óhrædd við að spyrja spurninga sem varða líf okkar. Jesús sjálfur spurði oft spurninga og skildi fólk eftir án svara. Við eru hvött til að stunda þekk- ingarleit til að næra okkur sjálf. Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar er leið til að fá svar við spurningum eða til að spyrja spurninga og leita frekari þekkingar. Boðið er upp á námskeið sem fjalla um sálgæslu, hvernig við mætum þeim sem syrgja eða okkar eigin sorg. Sjálfstyrkingarnámskeið eru líka í boði fyrir konur og unglinga. I Leikmannaskólanum hefur líka verið boðið upp á námskeið sem benda okkur á leiðir til að skoða t.d. kvik- myndir í nýju ljósi, trúarlegu ljósi. Siðfræði og siðferði eru þættir sem við í samtímanum glímum meira og meira við. Öll þessi endalausu álitamál, bæði varðandi vísindi og ákvarðanir daglegs lífs. Af kristinni siðfræði mál læra sitt- hvað um uppbyggilega sjálfsrýni. Til að plægja þennan akur hefur bæði hefur verið boðið upp á Biblíulestra sem snúast um siðfræði sem og námskeið sem er til þess ætlað að fræða um hvernig við tökum siðferðilegar ákvarðanir í ljósi kristinnar trúar og gilda sem hún miðlar okkur. Þetta er aðeins brot af þeim námskeiðum sem boðið hefur verið upp á. Þau hafa verið fjölsótt, ekki síst þau sem nýtast við störf innan kirkjunnar, s.s. meðhjálpurum og sóknarnefndarmönnum. Leikmannaskólinn nærist á okkar eigin áhuga og löng- un til að leita fræðslu. Tökum þátt í námskeiðum sem í boði eru og sýnum áhuga á starfi skólans með ábendingum um það sem betur má fara. A vef Leikmannaskólans má finna upplýsingar um þau námskeið sem eru á dagskrá og slóðin er: www.leikmannaskoli/kirkjan.is Irma Sjöfn Óskarsdóttir, verkefnisstjóri

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.