Víðförli - 01.02.2002, Síða 8

Víðförli - 01.02.2002, Síða 8
VÍÐFÖRLI 21. ÁRG. 1. TBL. Skrifað frá Skálholti ... - Ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því hvað á að hafa í mat- inn, hvernig á að bera það fram eða hvað þá að vaska upp. Þetta er bara dásamlegt, sagði konan með áherslu. — Nú finnst mér allt í lagi að hann Matti fari á alla þessa sóknar- nefndarfundi, bætti hún við og skellihló. Sóknarnefndin í myndarsöfnuði hér sunnanlands var á helgarfundi í SkáL holti ásamt mökum sínum. Nefndarmenn voru að skipu- leggja safnaðarstarfið næstu árin, hlýddu á fræðsluerindi og tóku þátt í umræðum. Makarnir tóku þátt í hluta af dag- skránni, en voru annars á eigin vegum, hvíldust, kynntust vel innbyrðis og undirbjuggu kvöldvökuna í sameiningu. - Þetta er góð fjárfesting, sagði sóknarpresturinn sem var með hópnum, nú eru nefndin og makarnir orðin eins og ein fjölskylda og það gjörbreytir starfinu heima. Það hafa verið allmargar heimsóknir sóknarnefnda hingað í Skálholt í vetur. Það hefur verið fróðlegt að fylgj- ast með fundunum, sem eru skilvirkir og skemmtilegir. Hingað hafa líka komið allmargir Alfahópar en það starf hefur náð verulegum rótum í söfnuðunum. Margt af Alfa- fólkinu hefur haft mjög takmörkuð kirkjuleg tengsl en er nú að uppgötva kirkjuna - kyrrðarstundirnar í Skálholts- kirkju eru þar sérstaklega verðmætar. Kyrrðin í Skálholti Þegar borgarmaður eins og ég flytur upp í sveit, skynjar hann vetrarmyrkrið með allt öðrum hætti en í borginni. Stjörnur og norðurljós verða hluti af hversdagnum og myrkrið gæti verið erfitt, ef ekki væri blessuð kirkjan flóð- lýst á kvöldin. En tignarleg lýsir kirkjan útfrá sér og bregð- ur birtu á nágrennið. Ég bý nú á kirkjustað í fyrsta sinn t nær 40 ára prestskap og það eru beinlínis forréttindi, sér- staklega þar sem við syngjum kvöld- og morguntíðir alla virka daga í kyrrð kirkjunnar. Þetta verður sérstaklega áberandi á Kyrrðardögunum sem við efnum til mánaðarlega yfir veturinn. Fólk kemur til helgihalds í kirkjunni og vill helst ekki fara þaðan, vill hvílast í kyrrð hennar og hinni kærleiksrfku þögn sem ríkir meðal þátttakenda. Ég hef sjálfur tekið þátt í mörgum kyrrðardögum, bæði hér heima og erlendis, t.d. á þeim fræga stað Taizé, en enginn staður hefur slík áhrif á mig til kyrrðar og íhugunar sem Skálholt. Ég er reyndar sannfærð- ur um að Kyrrðardagar í Skálholti er ein mikilvægasta þjónusta sem kirkjan getur veitt sínu fólki, sem verður að takast á við flókna tilveru, streitu og amstur á hlaupum hversdagsins. Sumir prestar hafa einmitt bent fólki á Kyrrðardagana sem úrræði til hjálpar í sálgæslustarfi sínu og hefur það borið góðan árangur, sýnist mér. Við vildum gjarnan sjá fleiri námskeið hér fyrir starfs- fólk safnaðanna. Þeir sem „vinna í fólki“ eru sífellt að gefa af sér og verða að gæta þess að tæmast ekki. Væri ekki gott að koma hingað til hleðsluviku þar sem sálgæsla, hand- leiðsla, örvandi umræður og notadrjúg fræðsla væru í boði og við kæmum endurnærð til starfa á ný. Og það þarf ekki að vera heil vika. Allir þurfa á símenntun að halda; kirkju- verðir, húsmæður í safnaðarheimilum, æskulýðsstarfsfólk, meðhjálparar, fræðslufólkið — að maður tali ekki um org- anista, djákna og presta. Væri ekki ráð að söfnuðir eða pró- fastsdæmi byðu fólki sínu til stuttra námskeiða þar sem menn kynnast innbyrðis, verða betur að sér í starfi sínu og njóta sfn þess vegna betur í starfi. Það felst líka ákveðin viðurkenning í því og umbun að vera send á slík námskeið — mörg okkar fá ekki of mikið af slíku í starfi sínu. Það verður fornleifauppgröftur hér í sumar og væntan- lega byggð ný gistiálma í Skálholtsskóla svo að það verður töluvert um að vera. Við fengum líka stuðning frá Kristni- hátfðarsjóði við verkefnið að miðla reynsluarfinum til nýrr- ar kynslóðar. Það verður í formi málþinga þar sem rædd verða og greind hin siðrænu gildi sem nauðsynleg eru á nýrri öld sem endranær og hvernig megi koma þeim á framfæri, til skila. Þess vegna fögnum við umræðudögum eldri borgara hér á bæ. Hana nú-hópurinn í Kópavogi kemur innan skamms og fjallar um Kristnihald undir Jökli út frá eigin reynslu. Hópur Tungnamanna las einmitt þessa bók undir leiðsögn forvera míns, dr. Péturs Péturssonar, og þeim verður boðið að taka þátt í umræðum Kópavogsbú- anna. Þar verður umræðan um lífsgildin trúlega lífleg. Bókun í Skálholtsbúðir og hingað í skólann er nú á einni hendi og er dagskráin nokkuð þétt. En „enn er rúm“ eins og í kvöldmáltíðinni miklu og við bjóðum ykkur öll hjartan- lega velkomin til Skálholts í hópi eða sem einstaklinga til að njóta þess sem þessi yndislegi staður býður upp á. Bernharður Guðmundsson, rektor Skálholtsskóla Ráðstefna á Álandseyjum Uppspretta lífsumþenkingar I vændum er ráðstefna á vegum NKS, Nordisk Kirkelig Studierád, um bókmenntir sem uppsprettu lífsumþenkingar (Litteraturen som kilde til livsreflektion). Ráðstefnan er haldin í tengslum við norrænt rithöfundaþing á Alandseyjum og stendur yfir dagana 21.-24. mars nk. Islendingum stend- ur til boða að senda einn til tvo fulltrúa á ráðstefnuna, auk stjórnarmeðlima, en Island er í forystu NKS um þessar mundir. Áhugafólk um bókmenntir í starfi kirkjunnar er hvatt til að leita nánari upplýsinga hjá formanni NKS, sr. Bernharði Guðmundssyni (rektor@skalholt.is), eða ritara samtakanna, sr. Maríu Ágústsdóttur (maria@hallgrimskirkja.is). Ráðstefn- ur NKS eru sérstaklega ætlaðar fólki sem starfar við full- orðinsfræðslu í söfnuðunum, leiku og lærðu. Kostnað greið- ir hver fyrir sig, en prestum er bent á Starfsmenntunarsjóð BHM (www.bhm.is) þangað sem hægt er að sækja allt að 70 þús. kr. til greiðslu á far- og ráðstefnugjaldi annað hvert ár. Þá má geta ráðstefnu um ofbeldi sem er í undirbúningi á vegum (slandsdeildar NKS. Hún verður haldin í Skálholti dagana 16-18. ágúst nk. og er fyrirhugað að ganga píla- grímsgöngu dagana á undan frá Nesjavöllum til Skálholts þar sem ofbeldis aldanna af ýmsum toga verður minnst.

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.