Víðförli - 01.02.2002, Blaðsíða 11

Víðförli - 01.02.2002, Blaðsíða 11
FEBRÚAR 2002 VÍÐFÖRLI ll Bækur frá Skálholtsútgáfunn Væntanlegar bækur frá Skálholtsútgáfunni Hönd í hönd - styrkur og leiðsögn á erfiðum stundum kemur út um miðjan marsmánuð og verður hún fáanleg í öllum helstu bókaverslunum. Erfiðleikar sækja alla heim einhvern tímann á lífsleið- inni. Þessi bók er sem útrétt hönd til allra þeirra sem standa frammi fyrir óvæntu áfalli, hvort heldur það er hjónaskilnaður, alvarlegur sjúkdómur, atvinnuleysi, andlegt álag af ýmsum toga eða dauðsfall. Afallið kemur okkur iðu- lega í opna skjöldu og oft virðist fátt um ráð. Um fimmtíu einstaklingar sem reynt hafa ýmislegt á lífsleiðinni gefa góð ráð öllum þeim er standa frammi fyrir lífsvanda og eru um stund ráðvillt og jafnvel örvæntingarfull. Frásagnir þeirra eru stuttar og vekjandi, huggandi og leiðbeinandi. Öll þau sem orðið hafa fyrir óvæntum áföllum fá í þess- ari bók trausta hjálp og raunsæja frá fólki sem hefur komist yfir ótrúlegustu erfiðleika. Það vill rétta öðrum hönd sem eru í vanda stödd. Bókin verður að öllum líkindum þeim kærkomin sem vilja sækja styrk og visku til þeirra sem hafa náð áttum á ögurstundum lífsins. A leið til Jerúsalem, eftir Jón Bjarman, kemur út í byrjun marsmánaðar. Þessi litla bók inniheldur fjórar íhuganir fyr- ir föstu og páska. Þar er nútímamaðurinn leiddur úr erli daglegs lífs í djúpa kyrrð á helgum slóðum. Skyndilega er hann í för með fólki sem fylgir meistaranum frá Nasaret, en ferðinni er heitið til borgarinnar Jerúsalem. A leiðinni suð- ur landið gerist margt, nútímamaðurinn stendur við hlið höfundar og hlýðir á ódauðleg orð og verður vitni að mátt- arverkum. Nærvera og návist eru orð sem fólki kemur í huga þegar það les það sem Jón Bjarman skrifar. Hann segir gjarnan frá því sem honum er nákomið og hann þekkir vel. Þetta er augljóst bæði í sögum hans, ljóðum og hugleiðingum. Þess- ar fjórar hugleiðingar bera þessu öllu ljóst vitni og verða til þess að lesandinn - nútímamaðurinn - staldrar við og íhugar stöðu sína í hringiðu dagsins. Að lestri loknum er hann sterkari en ella, reiðubúinn að glíma við sjálfan sig og dýpstu spurningar lífsins. Bókin verður fáanleg í öllum helstu bókaverslunum og vitanlega í Kirkjuhúsinu á Lauga- vegi 31.

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.