Bæjarins besta - 17.11.1999, Qupperneq 3
Afmæli í Holti í
Þess var minnst í kirkjunni
í Holti í Önundarfirði sl.
sunnudag, að 130 ár eru liðin
frá því að núverandi kirkja
var reist á þessu fornfræga
höfuðbóli og kirkjustað. Með-
al gesta var sr. Sigurður Sig-
urðarson, vígslubiskup í Skál-
holtsstifti.
Séra Gunnar Björnsson,
sóknarprestur í Holti, flutti
ágrip af sögu staðarins og
kirkjunnar og verður hér
stuðst við samantekt hans.
Talið er að kirkja hafi verið
reist í Holti fljótlega eftir lög-
töku kristni á Islandi um árið
1000. I kaþólskum sið var
Holtskirkja helguð heilögum
Lárentíusi.
Holt í Önundarfirði var um
aldir eitt tekjumesta og eftir-
sóttasta brauð landsins. Bæj-
arstæðið er á hæð nær miðju
eins mesta undirlendis Isa-
fjarðarsýslu og sér þaðan til
allra bæja í Holtssókn utan
Efstabóls í Korpudal, sem nú
er í eyði.
Núverandi kirkja, sem snýr
rétt við áttum, er upphaflega
timburhús, reist árið 1869 að
frumkvæði sr. Stefáns Step-
hensens, sem var prestur og
prófastur í Holti 1855-1884.
Árið 1937 voru byggðir utan
um kirkjuna steinsteyptir
veggir og nokkru síðar var
steypt í hana gólf og það klætt
með timbri. Árið 1969, á
hundrað ára afmælinu, var
byggð forkirkja úr timbri með
steyptu gólfi.
í Holti fæddist árið 1605
Brynjólfur Sveinsson, sem var
biskup í Skálholti 1639-1674,
einnmesturhöfðingi íslenskr-
ar kirkju í lútherskum sið,
mikill lærdómsmaðurog safn-
ari fornra handrita. Hann gaf
Danakonungi Flateyjarbók,
sem Danir skiluðu síðan Is-
lendingum aftur árið 1971.
Sr. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup í Skálholti og sr.
Gunnar Björnsson íHoltifyriraltari íHoltskirkju sl. sunnu-
dag.
Þegar liðin voru 300 ár frá honumminnisvarðaáhólnum
andláti Brynjólfs árið 1975 norðan kirkju og kirkjugarðs
reistu Lionsmenn á Flateyri í Holti.
Vinnueftirlit
ríkisins ísafirði
Námskeið
Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og
öryggisverði, sem frestað var í október sl.,
verðurhaldið í Sigurðarbúð (húsiSVFÍ á ísa-
firði) dagana 24. og 25. nóvember 1999.
Miðvikudaginn 24. nóvember kl. 09-16.
Fimmtudaginn 25. nóvember kl. 09-16.
Verð kr. 12.000 pr. mann.
Upplýsingar og skráning í síma 456 4464
milli kl. 08:00-12:00 og í síma 567 2500
milli kl. 08:30-16:00.
Vinnueftirlit ríkisins, ísafirði.
Bílatangi hf.
Suðurgötu 9, ísafirði, sími 456 3800
Nú hefur nýtt fyrirtæki veríð opnað
sem sérhæfir sig í tölvuviðgerðum
og sölu á öllu sem tilheyrir tölvum.
Þú hringir og við mætum. Við komum einnig heim og kenn-
um þér undirstöðuatriðin á Internetinu, sé þess óskað.
Síminn er 867 4384.
Seljum allt sem viökemur tölvum! Setjum upp
Internet og e-mail! Stækkum gamlar tölvur.
Gerum við tölvur. Aðstoðum við Internetió
og tölvuna!
P.s. Hafðu samband og kynntu þér málin.
Við erum við símann allan sólarhringinn!
Vikan
framundan
17. nóvember
Þennan dag árið 1913 birtust
fyrstu íslensku fréttamynd-
irnar í Morgunblaðinu. Þetta
voru dúkristur sem voru
gerðar vegna morðmáls í
Dúkskoti í Reykjavík.
18. nóvember
Þennan dag árið 1920 lést
Matthías Jochumsson skáld
og prestur, rúmlega 85 ára.
Hann hefur verið talinn eitt
mesta skáld rómantísku
stefnunnar á íslandi. Matt-
hías orti m.a. þjóðsönginn Ó
Guð vors lands og samdi
leikrit, t.d. Útilegumennina,
en það var síðar nefnt
Skugga-Sveinn.
19. nóvember
Þennan dag árið 1974 hvarf
Geirfmnur Einarsson í
Keflavík. Þar með hófst
rannsókn umfangsmesta
sakamáls síðari tíma. f
febrúar 1977 lágu fyrir játn-
ingar þriggja manna um að
þeir hefðu orðið Geirfinni að
bana. Dómur yfir þeim og
tveimur öðrum var kveðinn
upp í febrúar 1980.
20. nóvember
Þennan dag árið 1993 fór
fram atkvæðagreiðsla um
sameiningu sveitarfélaga.
Þeim hefði getað fækkað úr
196 í 43 en aðeins ein tillaga
af 32 var samþykkt.
21. nóvember
Þennan dag árið 1984 voru
kynntar niðurstöður könn-
unar Hagvangs á gildismati
og mannlegum viðhorfum.
Þær sýndu að fslendingar
væru hamingjusamasta þjóð
í heimi, mjög trúhneigðir og
stoltir af þjóðemi sínu.
22. nóvember
Þennan dag árið 1907 voru
Vegalög samþykkt. Þá var
ákveðið að hér á landi skyldi
vera vinstri umferð. Það var
einkum gert vegna ríðandi
kvenfólks sem notaði söðla
og sat með báða fætur á
vinstri síðu hestsins. Ekki
var skipt í hægri umferð fyrr
en 26. maí 1968.
23. nóvember
Þennan dag árið 1939 var
fyrsta orrusta herskipa í
seinni heimsstyrjöldinni háð
undan suðausturströnd ís-
lands. Þýsku skipin Scharn-
horst og Gneisenau sökktu
breska skipinu Rawalpindi.
Um 270 menn fómst en 23
var bjargað.
Áii'wlgfíÉnlHiiÍffiHnMraTÍi
Auglýsingar
og áskrift
sími 456 4560
v
MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1999 3