Bæjarins besta - 17.11.1999, Side 12
FRÍTTABiaa
Á VTSTTJÖRRUM
besta
Stofnað 14. nótember 1984« Sími 456 4560 *Fax 456 4564 • Netfang: bb@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk
OZON
BA RNASKÍÐA GALLAR
ST/ERÐtR 98-116
V’estuiFÝspðFt
AÐALSTRÆTI 27 SÍMI 456 3602
Básafell hf.
Fækkað á
skrifstofu
Fjórum starfsmönnum
á skrifstofu Básafells hf.
á Isafírði hefur verið sagt
upp störfum með þriggja
mánaða fyrirvara. Starfs-
menn þessir hafa einkum
tengst rækj uvinnslu fyrir-
tækisins.
Eins og fram hefur
komið hefur nýstofnað
fyrirtæki. Miðfell hf.,
keypt rækjuverksmiðj-
una að Sindragötu 1 áísa-
firði af Básafelli. Stærstu
eigendur Miðfells eru
Hraðfrystihúsið - Gunn-
vör hf., Básafell hf. og
Þormóður rammi - Sæ-
berg hf.
íslensk miðlun ráðgerir
að opna starfsstöð á Pat-
reksfirði í nœsta mánuði
íslensk miðlun
Færir út
kvíarnar
Starfsemi á hinum nýju
vinnustöðum Islenskrar
miðlunar hf. í Bolungar-
vík og á Isafirði, sem opn-
aðir voru um fyrri helgi,
hefur farið vel af stað, að
sögn forráðamanna fyrir-
tækisins.
Stöðvar Islenskrar
miðlunar á Vestfjörðum
eru nú orðnar fjórar en
tvær í viðbót eru í undir-
búningi. Stefnteraðopn-
un vinnustaðar á Patreks-
ftrði í næsta mánuði og á
Bíldudal snemmaánæsta
ári. Þá verða starfsmenn
fyrirtækisins á Vestfjörð-
um væntanlega orðnir
nær áttatíu.
Skeifískur hf. á Flateyri leitar nauðasamninga
Aflatregða og bilanlr
gerðu út af við reksturinn
- stefnt að stofnun nýs fyrirtækis í samvinnu við Hraðfrystihús Þórshafnar hf.
Frá höfninni á Flateyri.
Árni Harðarson lögmaður
hjá Deloitte & Touche endur-
skoðun ehf. í Reykjavík hefur
f.h. Skelfisks hf. á Flateyri
ritað kröfuhöfum í fyrirtækið
og farið fram á nauðasamn-
inga og eftirgjöf á kröfum.
Skip fyrirtækisins, Skel ÍS,
hefur verið leigt til Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar og
ganga skelveiðarnar þar miklu
betur en þær gerðu hér vestra.
V öxtur kúskeljar er afar hægur
og virðist svo sem gengið hafi
verið það nærri skelinni á mið-
um á norðanverðum Vestfjörð-
um að þau þurfi mjög langa
hvíld.
I bréfinu til kröfuhafa segir
m.a. að Skelfiskur hf. hafi átt
í greiðsluerfiðleikum um
nokkurt skeið og sé ekki útlit
fyrir að þeim muni linna við
óbreyttar forsendur. „I árs-
byrjun 1999 varfjárhagurfyr-
irtækisins endurskipulagður á
þann veg að 70 milljónir voru
lagðar inn sem nýtt hlutafé og
60 milljónum af eldri skuldum
og vanskilum var breytt í
hlutafé. Fráþví í október 1998
var afli tregur og mikið um
tafir frá veiðum vegna bilana.
Um miðjan febrúar kemur svo
í ljós alvarleg bilun á skrúfu-
öxli og skip félagsins missti
haffærisskírteinið. Skipið fór
í slipp á Akranesi og þar voru
gerðar verulegar endurbætur
á því. Viðgerðin varð þrefalt
dýrari en reiknað var með og
tíminn sem í hana fór tvöfalt
lengri en reiknað var með“,
en skipið var frá veiðum í rúm-
lega hálfan annan mánuð.
Afli í maí og fram um miðj-
an júlí var sáratregur og til
viðbótar héldu áfram bilanir
af ýmsum toga, smáar og
stórar. „Ágúst er eini mánuð-
urinn þar sem afli hefur verið
viðunandi eða um 900 tonn af
skel. Stjórn félagsins íhugaði
að stöðva reksturinn um mán-
aðamót júlí-ágúst en frestaði
því þar sem aflaútlit var betra.
Ástæðan fyrir hinum tregu
aflabrögðum var lengi talin
vera vegna tæknilegra örðug-
leika en síðan hefur komið í
ljós að um ofnýtingu er að
ræða á þeim svæðum sem
heimilt er að veiða á til út-
flutnings til USA“, segir í
bréfinu til kröfuhafa.
„Þar sem ljóst er að félagið
mun ekki án utanaðkomandi
aðstoðar ná að vinna úr rekstr-
arerfiðleikum sínum og standa
skil á þeim skuldum sem fé-
lagið er komið í, hefur verið
ákveðið að stofna nýtt fyrir-
tæki með nýrri innborgun
hlutafjár sem tæki hugsanlega
við hluta af þeim skuldum nú-
verandi kröfuhafa og væri í
stakk búið að standa skil á
þeim. Því hefur verið ákveðið
að fara fram á það við kröfu-
hafa félagsins að skuldir er
nemi fjárhæðum umfram
750.000 verði gefnar eftir og
þær afskrifaðar á hendur fé-
laginu að 80% þannig að
kröfuhöfum greiðist 20%
krafna sinna umfram greindar
750.000 krónur. Um leið er
farið fram á að þeim kröfum
sem eftir yrðu væri skuld-
breytt og þær kæmu til greið-
slu 12 mánuðum síðar og
bæru ekki vexti á þeim tíma.
Greiðandi þeirra krafna yrði
hið nýja hlutafélag, sem stofn-
að yrði. Áætlað er að hlutafé
hins nýja félags verði kr.
120.000.000 og að Hraðfry sti-
stöð Þórshafnar verði eigandi
að 50% hlut í hinu nýja fé-
lagi.“
Fram kemur, að skuldir
Skelfisks hf„ aðrar en veð-
skuldir, nema liðlega 101
milljón króna. Overðtryggðar
skuldir umfram kr. 750.000
nemasamtalsliðlega91 millj.
króna en skuldir undir því
marki samtals um 10 milljón-
um. Af því máráða, að margir
kröfuhafareiga kröfu á hendur
félaginu að lægri fjárhæð en
kr. 750.000 og stefnt að því
að þeir fái fulla greiðslu. í
samræmi við þessa beiðni um
eftirgjöf skulda er ráðgert að
færa hlutafé félagsins niður
um 85%.
Fíkniefnamál á ísafirði
Stóru málin byrj-
uðu fyrir tíu árum
Stofnun rannsóknardeildar
lögreglunnar á Isafirði árið
1981 markaði upphaf að
rannsóknum fíkniefnamála í
umdæminu, að því er fram
kemur í nýbirtri skýrslu Rík-
islögreglustjóra.
Þar segir að fyrstu árin hafi
mjög fá mál komið til rann-
sóknar, flest smávægileg og
vörðuðu nánast öll neyslu á
kannabisefnum.
Seinni árineðafrá 1989 fór
hins vegar að bera á stærri
málum, þar sem innflutningur,
ætluð sala og neysla amfeta-
míns kom meðal til sögunnar.
Sjá nánar á bls. 5.
Fyrst eftir stofnun rannsóknardeildar lögreglunnar á ísa-
firði vörðuðu nánast öll fíkniefnamál neyslu á kannahis.
Vió
erum
ykkar
fólk
Daglegar ferðir
tilogfrá Reykjavík
* FMV
www.samskip.is
Sindragötu 11,400 ísatjöróur,
sími 456 4000, fax 456 4009
Virka daga
kL 09 - 21
Laugardaga
kl. 10 - 18
Sunnudaga
kl. 12 - 18
(/íw<?
AUSTURVEGl 2 • SÍMI 456 5460
Sam vinnuferðir
Landsýn
SOIusMstota • Hafnarstrætí 7
isafiríi • Simi 456 5390