Bæjarins besta - 09.02.2000, Síða 2
*
Utgefandi: H-prent ehf.
Sólgötu 9, 400 ísafjörður,
sími 456 4560, fax 456 4564
Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is
Ritstjóri: SigurjónJ. Sigurðsson,
sími 892 5362, netfang: bb@bb.is
Blaöamaður: Hlynur Þór Magnússon,
sími 862 1874, netfang: blm@bb.is
Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson,
sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is
Stafræn útgáfa: www.bb.is
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið
Að erfa sjálfan sig
Sennilega verður engu logið upp á okkur Islendinga í
þeim efnum að við erum öllurn fremri í að halda takti í
þeim kerfum. sem löggjafinn burðast við að setja í því
augnamiði að halda uppi röð og reglu í samfélaginu. Og
reyndar gott betur því áreiðanlega fyrirfinnast engin lög
þar sem við nýtum ekki hverja einustu smugu til hins
ýtrasta til að ,,hafa sem mest út úr ríkinu“ eins og það
heitir í daglegu máli.
„Eg arfleiddi sjálfan mig að helmingi eigna minna“
segir faðir, stoltur af börnum sínum, um leið og hann
stekkur með útbreiddan faðmmót heitri Flórídasólinni,
reyndar aðeins í auglýsingu frá fasteignasölu á Reykja-
víkursvæðinu.
Ut af fyrir sig kann það að vera hið besta mál að menn
arfleiði sjálfa sig í stað þess að láta börnin eða aðra fjar-
skyldari ættingja rífast um reyturnar þegar þar að kemur.
Með þessu móti er hægt að fyrirbyggja leiðindi sem
sagan segir okkur að sundrað hafí mörgum fjölskyldum.
Ekki fer heldur á milli mála sá stórkostlegi ávinningur
fyrir viðkomandi, sem felst í því að erfa sjálfan sig. Með
þessu snjallræði getur hann t.d. byggt upp sinn eigin
ferðasjóð, því ekki ferðast menn mikið á efri árum fyrir
eftirlaunin, tvísköttuðu.
Það er einnig hið besta mál fyrir þá sem hafa lifibrauð
af því að selja eignir annarra, að sem allra flestir geti sem
oftast keypt allar þær fasteignir, sem hugurinn stendur til
hverju sinni. Slíkt örvar viðskipti og eykur streymi pen-
inganna, sem manni skilst að vegi þungt í hagkerfinu.
Sem sagt: Við fyrstu sýn virðist það hið besta mál að
framvegis erfi menn bara sjálfa sig.
A hinum síðustu dögum og vikum hafa stjórnvöld
ítrekað áminnt almenning og þá ekki síður sveitarstjórnir
um nauðsyn aðhalds í framkvæmdum af öllu tagi undir
kjörorði sínu: Sparnaður er dyggð. Bankar hafa fengið
ákúrur fyrir útlánaaustur. I ljósi þessa vaknar spurning
og skal henni beint til þeirra, sem mestar áhyggjur hafa af
fjáraustri almennings og bruðlinu í sveitarfélögunum á
landsbyggðinni: Er eðlilegt að ríkisstofnun dæli tak-
markalaust út fjármunum til íbúðakaupa, þegar svo er
komið að upphafleg markmið með liðveislu ríkisins við
almenning, að eignast þak yfir höfuðið, eru ekki einungis
fyrir bí heldur opinberlega auglýst að menn geti nýtt sér
niðurgreidd byggingalán ríkisvaldsins við spilaborð
verðbréfamarkaðarins? Er eitthvert vit í þessu?
Er kannske næst á dagskrá að stofnuð verði hagsmuna-
samtök þeirra sem erfa sjálfa sig með lánum frá Ibúða-
lánasjóði ríkisins? s /,
OÐÐ VIKINNAD
Syn
Islensk varðskip hafa jafnan borið nöfn ása (Oðinn,
Týr, Þór o.s.frv.) en flugvélar Gæslunnar nöfn ásynja
(Gná, Syn, Rán o.s.frv.).
Þessi einfalda venja þvælist furðumikið fyrir ýmsum.
Þannig virðist það frekar regla en hitt að gæsluþyrlan TF
Syn sé nefnd TF Sýn.
„Heilsubærínn Bolungarvík á nýrri öld“ opnunarhátíð á laugardag
Ábyrgð gagnyart eigín heilsu
Hátíðahöld verða í Bolung-
arvík á laugardag, þegar
„Heilsubærinn Bolungarvík"
verður kynntur. Hér er um að
ræða forvarnaverkefni sem á
sérallmikinn aðdraganda. Þátt
í því taka stofnanir, skólar,
félagasamtök og fyrirtæki og
bæjarfélagið sjálft en sérstök
framkvæmdanefnd hefur unn-
ið að rnálinu frá því snemma
á síðasta ári. Helsta markmið-
ið er að hver og einn finni til
ábyrgðar gagnvart eigin heilsu
og geti jafnframt átt þátt í
ákvörðunum um heilbrigðis-
þjónustu og nýtingu fjár-
magns í heilbrigðiskerfínu.
Merki Heilsubœjarins Bol-
ungarvíkur.
Opnunarhátíðin verður í
íþróttamiðstöðinni Arbæ og
hefst kl. hálftvö eftir hádegi
og stendur frani eftir degi. Þar
verður margt til skemmtunar.
r
Boltafélag IsaQarðar
Halldór Ingí æfir með
unglingalandsliðinu
Halldór Ingi Skarphéðins-
son úr 3ja flokki karla hjá
Boltafélagi Isafjarðar hefur
verið valinn til að taka þátt í
æfingum með unglingalands-
liði Islands, 16 ára og yngri, í
knattspyrnu.
Halldór Ingi er einn af
þremur markvörðum sem
valdir hafa verið til æfmganna
og er valið mikill heiður fyrir
hinn unga knattspyrnumann.
Halldórlngi ermjögefnilegur
íþróttamaður og hefur stund-
að knattspyrnu af miklum
dugnaði. Hann var valinn
knattspyrnumaður BI fyrir
árið 1999. Fyrstu æfingar
Halldór Ingi Skarphéðins-
son.
Halldórs Inga með unglinga-
landsliðinu verða 12. og 13.
febrúar nk.
Löggiltir endurskoðendur ehf.
Opna skrifstofu
á Hólmavík
Löggiltir endurskoðendur
Vestfjörðum ehf. opnuðu
skrifstofu á Hólmavík þann
1. febrúar sl. Starfsmaður
skrifstofunnar er Jónína Páls-
dóttir en forstöðumaður er
Bjarki Bjarnason, endurskoð-
andi.
Starfssvið skrifstofunnar er
eins og vænta má, framtals-
aðstoð við einstaklinga, rek-
straraðila og fyrirtæki, skatta-
ráðgjöf, bókhaldsvinnsla,
launavinnsla, reikningsskil og
endurskoðun. Með opnun
skrifstofunnar á Hólmavík,
sem opin er alla virka daga
frá kl. 9-12, eru starfsstöðvar
fyrirtækisins orðnar þrjár, við
Aðalstræti 24 á ísafirði, Hafn-
argötu 37 í Bolungarvík og
Hafnarbraut 31 á Hólmavík.
Hægt er að ná sambandi
við skrifstofuna í síma 45 I
5366. Netfangið er holma-
vik@lev.is
svo sem söngur, dans og
íþróttir. Meðal annars er
íþróttaálfurinn Magnús Sche-
ving væntanlegur í fagnaðinn.
A næstu mánuðum og allt
fram á nýja öld verður síðan
öðru hverju efnt til einhverra
viðburða, skemmtana og
kappleikja til þess að halda
fólki við efnið og koma
fræðslu til skila, enda er hið
formlega heiti átaks þessa
„Heilsubærinn Bolungarvík á
nýrri öld".
Að sögn Sigrúnar Gerðu
Gísladóttur hjúkrunarfræð-
ings, formanns framkvæmda-
nefndarinnar, og Steingríms
Þorgeirssonar sjúkraþjálfa,
sem sæti á í nefndinni, er
áhersla lögð á að fólk hafi
gleði og gaman af því að sinna
um eigin heilsu. „Við viljum
ekki skipa fólki fyrir, heldur
stefnum við að því að allir
læri ogfínni aðþeirgetasjálfir
aukið þrek sitt og mótstöðuafl
gegn sjúkdómum. Og hafi
gaman af því líka.“
Verkefni þetta er að sögn
SigrúnarGerðu og Steingríms
í samræmi við ákveðna heil-
brigðisstefnu sem Alþjóða
heilbrigðisstofnunin hefur
barist fyrir um árabil. „Þetta
grundvallast á markvissu for-
varnastarfi og heilsubæjaverk-
efnum sem stofnunin hefur
komið af stað víða um heim.
Þau hafa skilað góðum árangri
í bættu heilsufari fólks og þar
með minni tilkostnaði við
heilbrigðismál. Iheilsubæjum
er stefnt að því að tryggja jafn-
ræði allra, stuðla að virkni
einstaklinganna og koma á
samvinnu ólíkra afla í bæjar-
félaginu til þess að skapa ný
viðhorf til heilsu og heilbrigð-
isþjónustu."
Auk Sigrúnar Gerðu og
Steingríms eiga sæti í fram-
kvæmdanefndinni þau Elínbet
Rögnvaldsdóttir, Petrína Sig-
urðardóttir og Flosi Jakobs-
son. Þetta fólk var valið vegna
mikillarogmismunandi reyn-
slu þess á sviði forvarna og
áhuga á verkefninu.
í forvarnastarfí eins og hér
um ræðir er lögð áhersla á
manneldismál, líkamsrækt,
tóbaksvarnir og slysavarnir.
Einnig og ekki síst er lögð
áhersla á heilsueflingu á
vinnustöðum, sem beinist
ekki aðeins að því að koma í
veg fyrir heilsutjón, heldur
ekki síður að því að bæta
heilsu og líðan starfsfólksins.
ÍSAFJARÐARBÆR
FORELDRAR ATHUGIÐ!
Fimmtudaginn 10. febrúar verður
kynning á aðalnámskrá grunnskóla.
Fulltrúarfrá menntamálaráðuneytinu
kynnaaðalhlutanámsskrárinnar, lífs-
leikni og upplýsinga- og tæknimennt.
IKynninginhefstkl. 20:30 ísal Grunn-
skólans á ísafirði.
Frœðslunefnd ísafjarðarbœja r.
Starfsmaður óskast
Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf. óskar eftir
starfsmanni til starfa við skipaþjónustu sína.
Starfið felst í viðhaldi og þjónustu við skip
fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar í síma 450 4620.
2
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRUAR 2000