Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.05.2000, Síða 7

Bæjarins besta - 24.05.2000, Síða 7
Meistaraflokkur kvenna hjá BÍ tekur þátt í íslandsmótinu í sumar eftir nokkurra ára hlé M/f/Víí)Virar oytftami Uðii getiu öýtvndaÓ mig fi/ nuuin&lcupnum** - scgir IÞögg Lára Sigurgeirsdóttir. þjáljuri og kcnnari viÓ Grunnskólann á ístiýtröi Dögg Lára Sigurgeirsdóttir, þjálfari kvennaliðs BÍ. Knattspyrna kvenna hefur verið í töluverðri lægð á Isa- firði undanfarin ár, en nú skal bætt úr. Meistaraflokkur kvenna hjá Boltafélagi Isa- fjarðar hefur æft stíft í allan vetur og mun taka þátt í knatt- spyrnumótum í sumar af fullri alvöru. Þjálfari kvennaliðsins er Dögg Lára Sigurgeirsdóttir, sem jafnframt er kennari við Grunnskóla Isafjarðar. Dögg Lára er fædd í Reykjavík og uppalin í Vestmannaeyjum. „Ég fæddist í Reykjavík árið 1974, en eins og menn vita var eldgos í Heimaey árið ár- ið á undan og því ekki mjög vistlegt íVestmannaeyjum þá. Þangað flutti ég þó fljótlega aftur með foreldrum mínum og bjó þar allt þar til ég fór í Háskólann í Reykjavík til að nema líffræði. Það nám klár- aði ég ekki, en fór að læra til kennara við Kennaraháskól- ann og útskrifaðist þaðan sem kennari. Hafði aldrei séð Vestfirði Oft hefur reynst erfitt að fá menntaða kennara til smærri staða úti á landi og hafa menn notað ýmis meðul til að lokka til sín fagmenntað fólk. En hvað var það sem dró Dögg Láru vestur? „Ég hafði aldrei séð ísafjörð eða Vestfirði almennilega. Mig langaði til að kynnast svæðinu og fólkinu svo að ég ákvað í fyrrahaust að ráða mig til starfa við Grunnskólann á ísafirði. Núna er ég það sem heitir almennur kennari og umsjónakennari eins af 7. bekkjum skólans. Ég er lærður stærðfræði- og eðlisfræði- kennari, enda virðist alltaf vanta fólk með slíka mennt- un.“ Um starfið í Grunnskólan- um hefur Dögg ekkert nema gott að segja. „Grunnskólinn á fsafirði er góður vinnustaður og ég hef í raun ekkert út á hann að setja. Mér hefur liðið ágætlega í vinnunni og þótt gott að vinna með nemendum og starfsfólki skólans.“ Sótti um þjálfarastöðu Dögg Lára hefur alla tíð haft mikinn áhuga á íþróttum og starfaði mikið með íþrótta- félögum í Vestmannaeyjum. „Ég var í íþróttafélaginu Týr og æfði þar ýmsar íþrótta- greinar, svo sem handbolta og fótbolta. Þegar ég kom vestur hafði ég samband við Björn Helga- son, íþrótta- og æskulýðsfull- trúa ísafjarðarbæjar, og spurð- ist fyrir um þjálfarastöðu í handbolta eða fótbolta. Hann sagði mér að lítið væri um handboltaiðkun í bænum, sér- staklega hjá konum. Ekki vantaði heldur þjálfara í knatt- spyrnuna á þeim tíma, en einum eða tveimur mánuðum seinna var hringt í mig og ég boðuð á fund hjá BÍ. Þá hafði þjálfari kvennaboltans hætt og ég var beðin um að fylla í skarðið. Ég tók verkið að mér og hef ekki séð eftir því.“ Stór og öflugur leikmannahópur Að sögn Daggar Láru fór kvennaboltinn frekar hægt af stað, en eins og sparkfróðir menn vita er áhugi manna á fótbolta heldur minni yfir vetr- armánuðina en á sumrin. „Þær voru ekki margar stelpurnar í haust. Þó hafði myndast nokk- uð sterkur kjarni af stelpum sem voru áhugasamar. Þegar við síðan ákváðum að taka þátt í Islandsmótinu jókst áhuginn mikið og við fórum að fá stelpur á æfingar sem ekki höfðu mætt áður. Einnig fóru þær stelpur að mæta betur sem höfðu mætt illa og úr varð stór og sterkur kjarni. Ég hef því úr miklum fjölda leik- manna að velja og held að þjálfarar annarra kvennaliða geti öfundað mig af þeim fjölda frantbærilegra leik- manna sem er til staðar hjá BÍ.“ Leikirnir töpuðust naumlega Meistaraflokkur kvenna hefur ekki verið á ísafirði í nokkurár. Hverjarætli kröfur- nar séu hjá hinu nýlega við- reista liði? „Sem betur fer er engin pressa á okkur. Menn hafa ekkert til að miða við, þannig að hver leikur sem við vinnum er plús í kladdann, og h ver leikur sem tapast flokkast sem byrjendamistök." Þrátt fyrir þetta segir Dögg Lára að hvergi verði gefið eftir. „Við tókum þátt í innanhús- móti í vor og vorum óheppnar að ná ekki lengra en við gerð- um. Þeir leikir sem við biðum ósigur í, töpuðust svo til allir með einu marki og ég veit að liðið getur gert miklu betur.“ Nú hefur ferðakostnaður alltaf verið vandamál hjá litl- um félögum úti á landi? „Við náðum að semja við Knatt- spyrnusamband Islands unt að fá að spila tvo úlileiki í einu, og við það fækkaði ferðunum um helming. í ofanálag fáum við ódýr fargjöld hjá Flugfé- lagi fslands svo að ferðakostn- aðurinn verður aðeins minni en gífurlegur." Allir á völlinn Dögg Lára segir fyrirtæki í bænum hafa verið mjög dug- leg við að styrkja liðið. „Ég var svolítið kvíðin þegar við fórum að safna, því ég veit að menn eru alltaf að banka upp á hjá fyrirtækjum og snfkja peninga fyrir hinu og þessu. Það kom mér því verulega á óvarl hversu vel var tekið á móti okkur. Flestir voru fúsir að gefa og útlit er fyrir að stelpurnar þurfi ekki að borga nema lítinn hluta ferðakostn- aðarins sjálfar.“ Heimaleikir liðsins verða allir spilaðir á grasvellinum á Torfnesi. „Við fáum að spila okkar leiki á grasvellinunt og nú er bara að vona að fólk láti sjá sig á leikjum. Ég býst ekki við því að rukkað verði inn á völlinn og því ætti fólk að eiga auðvelt með að mæta og hvetja okkur. Fyrsli heima- leikurinn er, að ég held, 3. júní nk. Annars hefur KSI breytt dagskránni oft, aðal- lega út af okkur.“ Fær reynslubolta frá fyrri tíniuni Að sögn Daggar koma leik- menn liðsins ekki einungis frá Isafirði. „Það eru stelpur frá Bolungarvík, Þingeyri og fleiri stöðum að spila með okkur. Þeim á líklega eftir að fjölga eitthvað í sumar þegar stelpur koma í sumarfrí úr skólum að sunnan. Við höfum spilað tvo æf- ingaleiki í sumar. Annar leik- urinn var við FC Kareoke sem fór illa með okkur, en hinn leikurinn var við hinn gamla kvennaflokk BÍ. Þareru konur komnar á fertugsaldur sem stóðu sig mjög vel og voru okkur erfiðar. Ég er að reyna að fá nokkra reynslubolta úr gamla flokknum til að spila með okkur.“ Ætlaði aldrei að vera í sumar „Mér hefur liðið mjög vel á Isafirði í vetur og hef eignast marga nýja vini. Ég ætlaði ekki að vera hér í sumar, en ákvað síðan að ekki væri nóg að sjáVeslfirði að vetri til þeg- ar snjór er yfir öllu. Þjálfara- starfið hjá BÍ spilaði líka mik- ið inn í, en félagið allt og stjórn þess sérstaklega, hafa reynst mér mjög vel og ég fæ allt sem vil. Það eru margir kraftmiklir menn innan fé- lagsins og mjög gott að vinna með öllu þessu fólki. Þrátt fyrir þetta á ég mína fjölskyldu og æskuvini íVest- mannaeyjum, þannig að ég reikna ekki með því að búa hér á Isafirði í framtíðinni. Ég fer í burtu í haust og þá líklega til útlanda til að læra eða leika mér.“ Orkubú Vestfjarða Útboð í jarövegsvinnu Þverárvirkjun í Steingrímsfirði, stíflu- gerð o.fl. Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboðum í stíflugerð og fleira við Þverárvirkjun í Stein- grímsfirði. Verkið felst í að hlaða jarðstíflu úr efnum sem að mestu leyti verða tekin innan lónstæðisins í Þiðriksvallavatni, leggja og lagfæra vegi, breikkun farvegar Húsadaisár,; grafa skurð í árfarvegi, steypa umhverfis nú- verandiþrýstivatnspípu, leggja botnrásarpípu og steypa umhverfis hana, reisa lokahús með nauðsynlegum tengingum ásamtöðrum verkliðum. Verkinu skal lokið 1. nóvember 2000. Áætlaðar helstu magntölur við verkið eru: - sprengingar um 5.000 m3 - fyllingar, heildarmagn, 48.000 m3 - steypa, heildarmagn, 540 m3 Væntanlegir bjóðendur eru hvattir til þess að kynna sérrækilega aðstæðurá staðnum. Á tímabilinu 24. til 31. maí 2000 mun verkkaupi standa að sameiginlegri vettvangs- skoðun þeirra bjóðenda sem áhuga hafa á að kanna svæðið. Tilkynna skal verkkaupa um áformaða þátttöku í vettvangsför en hann mun upþlýsa nánar um hvenær ferðin sé áformuð og hvernig henni verði háttað. Útboðsgögn eru til sölu á kr. 5.000.- á skrifstofu Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi 1, 400 ísafirði, og á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, Ármúla 4, 108 Reykjavík. Tilboð skulu hafa borist til Orkubús Vest- fjarða, Stakkanesi 1, 400 ísafirði, fimmtu- daginn 8. júní2000 kl. 11:00 og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska eftir að vera viðstaddir. Orkubú Vestfjarða - beislað náttúruafl MIÐVIKUDAGUR 24. MAI2000 7

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.