Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.12.2000, Síða 2

Bæjarins besta - 06.12.2000, Síða 2
Önnur umræða um fjárlagafrumyarp ríkisstjórnarinnar Skjólskógaverkefninu á Vest- fjöróum verður flýtt um eitt ár ísaflörður Tölvuvæðing í tónlistargerð Tónlistarskóli Isafjarðar er að festa kaup á tveimur tölv- um af gerðinni I-mac 450G3. Saman kosta þær um 300.000 krónur og kemur féð frá styrktarsjóði skólans. „Tölv- urnar verða líklega bæði not- aðar við reksturinn og til kennslu“, segir Kristinn Ní- elsson, starfandi skólastjóri Tónlistarskólans. Á döfinni er að halda nám- skeið í notkun tölva við tón- listargerð. „Þessar tölvur verða væntanlega notaðar í þá kennslu. Við höfum fengið mjög öflugt tónlistarforrit og hyggjumst hefja námskeiða- hald í janúar“, segir Kristinn. Bolungarvík Sex Vestfjarða- met slegin á sundmóti Sex Vestfjarðamet voru sett á Jórunnarmóti sem haldið var í sundlauginni í Bolungarvík á laugardag. Fjögur metanna setti Bragi Þorsteinsson, Sundfélaginu Vestra á fsafirði, eða í öllum þeim greinum sem hann keppti í. Svala Sif Sigur- geirsdóttir, Bolungarvík, setti Vestfjarðamet í 50 m skrið- sundi meyja og Hjalti Rúnar Oddsson, Vestra, setti Vest- fjarðamet í 50 m flugsundi drengja. Vestfjarðametin sem Bragi setti voru í 50 m flugsundi, 50 m baksundi, 50 m bringusundi og 50 m skriðsundi sveina. Mjög góð þátttaka var í mót- inu og lofar árangurinn góðu um framhaldið í sundinu hér vestra en framundan er langt og strangt keppnistímabil. Qeni^áiJcnlfmdwv íaLwuju 456 4560 Meðal breytingartillagna frá meirihluta fjárlaganefndar Alþings sem fram komu við upphaf annarrar umræðu um fjárlagafrumvarp ríkisstjórn- arinnar í síðustu viku eru nokkrar sem snerta Vestfirði beint eða óbeint. Þar má nefna,aðlagtertilað lOmillj- ónir króna renni til uppbygg- ingar Vatneyrarbúðar á Pat- reksfirði. Þar eru minjar um merka sögu en miðað er við endurgerð eins og var þegar rekstur stóð þar í mestum blóma. Lagt er til að 15 milljónir renni til Galdrasýningar á Ströndum. Fyrsti áfangi hefur verið opnaður í gömlu pakk- húsi á Hólmavík en áætlað er að byggja upp sýningarstaði í Hrútafirði, Bjarnarfirði og Árnesi. Lagt er til að 2,5 milljónir renni til Sjóminjasafns íslands til að gera upp hundrað ára gamlan uppskipunar- og flutn- ingabát (bringingarbát), Frið- þjóf, en hann var síðast notað- ur fyrir hálfri öld. Ráðgert er að flytjabátinn fráMiðhúsum í Reykhólasveit til Bolungar- víkur og gera hann upp þar. Lagt er til að 6 milljónir renni til endurbóta á Faktors- húsinu í Neðstakaupstað á ísa- firði. Lagt er til að 10 milljónir renni til uppbyggingar á skíða- svæði ísfirðinga í Tungudal við Skutulsfjörð. Lagt er til að framlag til Skjólskóga á Vestfjörðum hækki um 9 milljónir og verði 30 milljónir. Framgangur verksins verðurhraðari en gert var ráð fyrir þar sem undir- búningsvinnan í ár nægir til að taka nýliða hraðar í verk- efnið og flýta þannig áætlun um eitt ár. Lagt er til að 10 milljónir renni til að ljúka hagkvæmn- isathugun á kalkþörunga- vinnslu íArnarfirði og í Húna- þingi. Á síðasta ári runnu 4 milljónir í þessar rannsóknir í Arnarfirði. Verkið er unnið á vegum Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða hf. Einnig er lagt til að félagið fái eina milljón króna til að safna gögnum og hefja mælingar við innanvert ísafjarðardjúp með tilliti til nýtingar á auðlindum svæð- isins. Lagt er til að framlag í Jöfn- unarsjóð sveitarfélaga hækki um 1.800 milljónir. Þar af eru 1.100 milljónir ætlaðar til að jafna tekjutap einstakra sveit- arfélaga vegna lækkunar á fasteignaskattstekjum í kjöl- far breytinga á álagningar- stofni mannvirkja. Síðan er ætlunin að ráðstafa 700 millj- ónum króna í samræmi við tillögur Tekjustofnanefndar sem skilaði áliti til félags- málaráðherra í október. Lagt er til að 7 milljónir renni til stofnunar nýbúamið- stöðvar á Vestfjörðum í sam- ræmi við þingsályktunartil- lögu sem samþykkt var í vor. Lögð til til einnar milijónar króna hækkun á framlagi til að kosta sérútbúna bifreið í Árneshreppi í þeim tilgangi að hana megi nota til að aka yfir Trékyllisheiði að vetrar- lagi og auka þannig öryggi fólks í hreppnum. Lagt er til að 51 millj. króna renni til að mæta kostnaði við Opnað hefur verið sameig- inlegt leikfanga- og fagbóka- safn á vegum Svæðisskrif- stofu málefna fatlaðra og leik- skólannaí Isafjarðarbæ. Safn- ið verður opið á þriðjudögum fyrir fólk sem vinnur að sér- kennslu í leikskólum. Þar að áætlunarflug innanlands sam- kvæmt samningi sem áformað er að gera í kjölfar undan- gengins útboðs. Lagt er til að 7 milljónir renni til vinnuhóps hjá nátt- úrustofum og heilbrigðiseft- irliti áVestfjörðum, Austfjörð- um og Norðurlandi vestra til að gera úttekt á skólpmengun við litla þéttbýlisstaði við sjávarsíðuna og skipuleggja vöktun á mengun við sömu staði. Árið 1997 hófst sam- starf milli Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða, Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra og Nátt- úrustofu Vestfjarða um sýna- tökur og mælingar en vegna fjárskorts hefur ekki verið hægt að ganga frá niðurstöð- um. auki geta foreldrar fatlaðra barna komið alla daga vikunn- ar og fengið þroskaleikföng og fagrit lánuð. Á myndinni er Helga Björk Jóhannsdóttir, forstöðumaður safnsins ásamt þremur böm- um við leikföngin. Jálafundur JólafundurSlysavarnadeildarkvenna á /sa- firði verður haldinn þriðjudaginn 12. des- ember kl. 20:00 í Sigurðarbúð. Munið eftir pökkunum. Stjórnin. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Leikfanga- og fagbókasafn Fáein orð um frelsi og forsjár- hyggju og hugtakið að axla ábyrgð Af skrifum sumra sem láta að sér kveða í þjóðmálaumræðunni má ráða að því sem við í daglegu tali köllum frelsi og forsjárhyggju verði með engu móti kom- ið fyrir á sama bekk. Annað hvort njóta menn frelsis eða þeir eru hnepptir í fjötra forsjárhyggjunnar. Ekkert hér um bil, enginn millivegur. Fregnir herma að í viku hverri árið um kring megi rekja dauða eins ungmennis hér á landi til neyslu vímuefna. Þrátt fyrir þessa dapurlegu niðurstöðu er rætt um það í fúlustu alvöru hvort ekki sé rétt að leyfa frjálsa sölu á tilteknum eiturlyfjum, þar sem boð og bönn (forsjárhyggja) hafi það eitt í för með sér að markaðsverð eiturlyfjanna hækki, glæpum tengdum neyslunni fjölgi og þeir verði stöðugt hrottalegri. Fréttir af slysum í umferðinni eru nánast eins og daglegt brauð. Hver dauða- fregnin rekur aðra. Almenningur er flemtri sleginn. Yfirvöld ráðalítil. Og svo höfum við það helst til málanna að leggja að lögleiða beri aukinn hraða á veg- um úti þar sem við brjótum hvort sem er öll lög um hraðatakmarkanir! Þegar farmenn verða uppvísir að smygli á áfengi og tóbaki eru þeir látnir taka pokann sinn. I þessari stétt þjóðfélagsins eru menn taldir ábyrgir gjörða sinna og þá ábyrgð beri þeim að axla. Þar verður ekki bæði haldið og sleppt. Ár eftir ár eyða stofnanir hins opinbera miklu meira fé en til þeirra er varið á fjárlögum. Þetta er eins og hver annar kækur og þykir ekki lengur orð á gerandi þótt svona sé staðið að málum. Þegar uppvíst varð að endurbæturnar á Bessastöðum kostuðu mörg hundruð milljónir króna umfram áætlun var rasandi almúginn afgreiddur með skælbrosi og orðavaðli í sjónvarpi. Búið mál. Þingmenn segja blákalt að okkur komi það ekki við þótt þeir skreppi í fótboltaferð til útlanda á kostnað almennings. Lax- veiðar ráðherra í boði fyrirtækja sem hafa mikilla hagsmuna að gæta koma almenningi heldur ekkert við. Farmaðurinn, opinberi embættismaðurinn og pólitíkusinn eru ekki undir sama hatti. Hjá hinu opinbera taka menn ekki pokann sinn hvað sem tautar og raular. Hjá hinu opinbera felst merking þess að bera ábyrgð og axla hana í því einu að gera bara betur næst. Tíminn fram til jóla er vel til fallinn til að velta fyrir sér hvers við leitum í frelsinu og hvað við viljum forðast með forsjárhyggjunni og merkingu þess gamalgróna hugtaks að axla ábyrgð. s Frá útgefendum: Umboðs- aðilar BB Eftirtaldir einstaklingar sjá um sölu og dreifingu á BB á þétt- býlisstöðum utan ísafjarðar: Bolungarvík: Nikólína Þor- valdsdóttir, Hjallastræti 38, sími 456 7441. Súðavík: Sindri V. Gunnarsson, Holtagötu 11, sími 456 4982. Suðureyri: Deborah Anne Ólafsson, Aðal- götu 20, sími 891 7738. Flat- eyri: Gunnhildur Brynjólfsdótt- ir, Brimnesvegi 12a, sími 456 7752. Þingeyri: Valdís Bára Kristjánsdóttir, Hlíðargötu 43, sími 456 8263. Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 • Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is • Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, netfang: bb@bb.is • Blaðamenn:Hlynur Þór Magnússon, sími456 7322, netfang: blm@bb.is og Hólfdón Bjarki Hólfdónsson, sími 863 7655, netfang: halfdan@bb.is • Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is • Stafræn útgáfa: www.bb.is • Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m. vsk. • Áskriftarverð er kr. 170 eintakið m. vsk. • Veittur er afslóttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti • Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annars efnis er óheimil nema heimildar sé getið. 2 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.