Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.12.2000, Qupperneq 3

Bæjarins besta - 06.12.2000, Qupperneq 3
IYIetnaðarfull hugmynd að ger- breyttum samgöngum við Vestfirði „Leiðin til Reykja- víkur oæti farið úr 500 km í um 400 km“ Kristinn Bergsveinsson í Görðum skrifar Nú í haust kom fram á Al- þingi þingsályktunartillaga frá Guðjóni A. Kristjánssyni urn samgöngumál á Vestfjörðum. Lagt er til að fela samgöngu- ráðherra að láta gera athugun á því að leggja veg um fjörur Þorskafjarðar, Djúpafjarðar og Gufufjarðar ásamt því að gera jarðgöng úr botni Isa- fjarðar í Djúpi í Kollafjörð. Þetta er metnaðarfull hug- mynd og myndi þetta gjör- breyta samgöngum við norð- ur- og vestursvæði Vestfjarða. Vegalengdir myndu stytt- ast, t.d. gæti leiðin til Reykja- víkur farið úr um 500 km í um 400 km. Erfiðir fjallvegir, heiðar og hálsar yrðu úr sög- unni og snjómokstur yrði hverfandi lítill. Fleiri mögu- leikar væru í dæminu síðar á þverun Hestfjarðar og Mjóa- fjarðar í Djúpi. Metnaðarley si ráðamanna á Vestfjörðum er með ólíkind- um. Þeir virðast gera sér að góðu óbreytt ástand varðandi þær leiðir sem nú eru farnar. Ég skrifaði smágrein um þessi mál í tilefni af opnun Gils- fjarðarbrúar. Við henni urðu engin viðbrögð. Þar vitnaði ég í orð Guðmundar Inga Kristjánssonar skálds á Kirkjubóli, þegar Vestfjarða- vegur um Dynjandisheiði opnaðist til umferðar og Isa- fjörður og nærliggjandi byggðir kornust í akvegasam- band við aðra landshluta: Nú skal fagna nýjum vegi, nýrri sókn með hverjum degi, láta Vesturfirði fá frama þann sem völ er á. „Síðan eru liðin tæp 40 ár“, sagði svo í greininni. „Lengst af var lítið gert til að bæta upphaflegu vegina, sem mest voru ruðnings-skeringar, snjó- þungir og erfíðir. Nýbygging vega með styttingu vegaleng- da hófst er Vöðin í Önundar- firði voru brúuð. Annar stór áfangi varð við þverun Dýra- fjarðar. Mest munaði þó um Vestfjarðagöngin. Allt eru þetta verk sem hafa sannað gildi sitt. Nú er stórurn áfanga náð með „þverun“ Gilsfjarðar. Því verki er að ljúka með glæsibrag. Þá kemur í hugann hvert verði næsta verk í vega- gerð til að stytta leiðir og koma Vesturbyggð og Isa- fjarðarsvæðinu í alvöru vega- samband. Ég lærði það ungur, að ef ég ætlaði suður, þá fór ég ekki í norður. Það er nú það sem þingmenn og sveitar- stjórnarmenn Vestfirðinga gera með því að beina umferð, sem ætlar suður, norður á Strandir. Það er slæmt þegar pólitískir ráðamenn ákvarða slíkt. Það sem ég tel að þurfi að gera, er að fela einhverjum hlutlausum aðila athugun á því. hvar og hvernig megi halda áfram á þeirri braut að stytta vegalengdir og byggja vegi þannig að þeir séu heils- ársvegir. Ég er alinn upp við það að ferðast á hestum austur sveitina í Króksfjarðarnes og víðar. Þá var ávallt reynt að „hafa fjöru“, fara yfir fjöru á Djúpafirði og Þorskafirði. Svo var einnig um Gufufjörð og innanverðan Kollafjörð. Það sama gildir um vegina. Þar yrðu þeir miklu styttri, snjóléttari og í betra veðurlagi en á hálsunum. Þegar að því kemur að taka ákvörðun um endurbyggingu frá Bjarka- lundi, þarf að skoða vel þann möguleika að „þvera“ Þorska- fjörð, Djúpafjörð og Gufu- fjörð og losna við Hjallaháls og Ódrjúgsháls. Styttingin yrði um 20-25 km. Ég gæti haldið svona áfram vestur sýsluna. Þar ríður á að færa vegina úr mestu snjóabælun- um. Það sem ég hefi hér minnst á kostar bæði stóran pening og mikinn undirbúning. Það er ekki seinna vænna að byrja að ræða og skoða hlutina. Varðandi kostnaðarhliðina er því til að svara, að ég tel að þjóðin hafi vel efni á þessu. Nú er flutt á vegum óhemja af fiski og allt sláturfé afVest- fjörðum, auk allra aðdrátta. Ferðamannastraumur á eftir að aukast næstu árin. I sumar varð mikil umferð eftir að Gilsfjörður opnaðist, bæði vestur og norður yfir Þorska- fj arðarheiði. Það er til skamrn- ar að ekki skuli neitt gert til að lagfæra þann veg sem sum- arveg. Ég vil að lokum þakka það stórverk sem „þverun“ Gils- fjarðar er. Dalamenn og Aust- ur-Barðstrendingarunnu sam- an að því að þoka því áleiðis. Gilsfjarðarnefnd hafði þar sitt að segja, uns tregða sumra þingmanna í báðurn kjördæm- um var yfirunnin og þeir lögð- ust á sveif með heimamönn- um.“ Síðan þetta var skrifað fyrir hálfu þriðja ári hefur orðið nær tvöföldun á olíukostnaði. Ekkert getur sparað meira í flutnings- og ferðakostnaði íbúa á landsbyggðinni en að losna við heiðar og hálsa og stytta leiðir. Þingmenn og ráðamenn í héraði þurfa að átta sig á sínu hlutverki og leita allra leiða til að þetta verði að veruleika á næstu 10- 15 árum. Kristinn Bergsveinsson, Görðum, Reykhólum. Gunnlaugur Gunnlaugsson hafnarvörður Ráðinn „landamæravörður“ hjá Fiskistofu á ísafirði Gunnlaugur Gunnlaugsson, hafnarvörður á Isafirði, tekur um áramót við starfi veiðieftirlitsmanns og „landamæravarðar“ á landamærastöð Fiskistofu á Isafirði. I starfi landamæravarðar felst að taka út þann afla, einkum rækju, sem kemur með skipum frá löndum utan Schengen-svæðisins. Isafjörður er eina höfnin á Vestfjörðum þar sem landa má slíkum afla. Enginn hefur verið í þessu starfi á Isafirði frá því snemma í sumar, þegar Jón Ellert Guðjónsson veiðieftirlitsmaður fluttist til Akureyrar. Eftirliti þessu hefur síðan verið sinnt að sunnan. Yfir vetrartímann mun Gunnlaugur sinna veiðieftirliti á norðanverðum Vestfjörðum en á sumrin þegar samgöngur eru greiðari nær eftirlitssvæði hans til Hólmavíkur og Patreksfjarðar. Gunnlaiigur Gunnlaugs- son. Hugsanleg sala á Orkubúi Vcstfjarða Bæjarstjóra afhent- ar 957 iindirskriftir „Við mótmælum því að OrkubúVestfjarða verði notað til að borga niður skuldir vegna félagslega íbúðakerfis- ins. Orkubú Vestfjarða er stöndugt fyrirtæki í eigu Vest- firðinga og fráleitt er að láta sér detta í hug að glata þessu fjöreggi. Við trúum því ekki að óreyndu að bæjarstjórn Isa- fjarðar láti sér detta í hug að fara þessa leið í þeim tilgangi að þýðast stjórnvöld, því þessi Nú, hann er þá ekki í neinu í grein minni í BB fyrir hálfum mánuði síðan lýsti ég áhyggjum af því að um- ræðan um framtíðarskipan Orkubús Vestfjarða færi fram áður en fyrir lægju grundvallarupplýsingar. Sem betur fer hafa nokkrar upplýsingar komið fram síðan þó svo að enn vanti frekari svör. Eru spurningar mínar hér með írekaðar. í grein minni undraðist ég einnig þögn stjórnarfor- manns Orkubúsins í málinu en skilja hefur mátt af frétt- um að hann hafi skipt um skoðun í málinu. I síðasta BB rauf hann hinsvegar þögnina og skeiðar fram á rit- völlinn. Því miður var hann ekki í stakk búinn til þess að ræða málefnalega um framtíð Orkubúsins. Ekki hvarflar að mér að svara grein stjórnarformanns- ins. Hún opinberar hinsvegar rökþrot hans í þessu mikil- væga máli. Einnig lýsir hún hugarástandi hans sem rétt er að hafa áhyggjur af. Þrátt fyrir að hann skrifi greinina í nafni stjórnarformanns Orkubúsins vona ég að hún lýsi ekki við- horfi fyrirtækisins í garð þeirra sem áhuga hafa á framtíð þess ágæta fyrirtækis. Ég skora á forystumenn „Grein stjórnarfor- mannsins opinberar rökbrot hans“ Halldór Jónsson, fiskverkandi á ísafirði skrifar vestfirskra sveitarfélaga að leiða umræðuna um framtíð Orkubúsins til lykta af meiri geðprýði og rökhyggju en sýnt er að sjórnarformaður Orku- búsins hefur yfir að ráða. Þeir sem eiga allt sitt undir því að vestfirsk byggð blómgist treysta því að þannig verði haldið á málum. Halldór Jónsson, fiskverkandi á Isafirði. Halldór Halldórsson, bœjarstjóri tekur við listanum frá Bergljótu Halldórsdóttur. leið getur alls ekki þjónað hagsmunum Vestfirðinga," segir á haus undirskriftarlista sem957 íbúarísafjarðarbæjar skrifuðu undir til að mótmæla hugsanlegri sölu á Orkubúi Vestfjarða. Halldóri Halldórssyni bæjar- stjóra Isafjarðarbæjar var af- hentur undirskriftarlistinn en þeir lágu frammi í helstu versl- unum bæjarins. Að sögn að- standenda listans var ekki gengið í hús til að afla undir- skrifta heldur vareinungis um frjálsa undirritun að ræða í verslunum. Að afhendingu lokinni ræddi bæjarstjóri við þrjá af þeim íbúum sem stóðu fyrir undirskriftarsöfnuninni um þetta heita málefni. MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000 3

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.