Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.12.2000, Qupperneq 5

Bæjarins besta - 06.12.2000, Qupperneq 5
Sölvi Sólbergsson, deildarstjórí tœknideildar Orkubús Vestfjarða. - Hefur Orkubúið ekki séð sér hag í að virkja litlar ár, til dæmis í Isafjarðardjúpi? „Nei, þær virkjanir held ég að séu miklu betur komnar í höndum einkaaðila. Ég efa stórlega að hagkvæmt væri fyrir Orkubúið að hafa mann á launum við að þjóna minn- stu stöðvunum. Aftur á móti ættu landeigendur sjálfir að standa í slíku. Þeir geta að- lagað gæsluna eftir hentug- leika og litið eftir tækjum og tólum með miklu minni til- kostnaði, búi þeir nálægt raf- stöðinni. Fimm aðilar hafa nú þegar óskað eftir viðræðum við Orkubúið um hugsanlega orkusölu. Rætt er um virkjanir á stærðarbilinu frá 60 kW upp í 500 kW. Hvað verður á eftir að koma í ljós en vonandi komast einhverjar smávirkj- anir á koppinn. Ég held að það hljóti að þjóna hagsmun- um allra að minni virkjunum verði gefín jafnmikil tækifæri og hinum stærri. Að vísu er ekki hægt að borga eins hátt verð fyrir orku fráþessu litlu stöðvum og hin- um stærri. Orkan er ekki eins trygg, því á sumrin er meira vatn í ánum og framleiðsla mikil. Þá er eftirspurnin lítil því að rafkynding, ljósanotk- un og fleira er í lágmarki. Á vetuma er eftirspurn mikil en lítið vatn í ánum og fram- leiðslan í lágmarki." Glámuvirkjun - Hyggst Orkubúið ekki ráðast í frekari virkjanir á Vestfjörðum? „Orkubúið hefur það að markmiði að útvega orku á sem hagkvæmastan hátt. Hingað til hefur verið ódýrast að kaupa megnið af orkunni beint af Landsvirkjun en breytingar hafa orðið þar á. Með aukinni stóriðju hefur orkunotkun aukist gífurlega og umframgeta í raforkukerf- inu ekki lengur til staðar. Því eru menn farnir að velta virkj- unarmöguleikum fyrir sér. Um þessar mundir líta menn hýru auga til Glámuhá- lendis, en þar er annar af tveim stórum virkjunarkostum á Vestfjörðum. Verið er að safna gögnum um málið og beðið er eftir svokölluðu afrennslis- líkani sem Orkustofnun er með í vinnslu og verður tilbú- ið um næstu áramót.“ Umhverfisáhrif í lágmarki „Verið er að kanna mögu- leika á því sem kallað er þak- rennuvirkjun. Þá yrðu boruð 30 km göng hringinn í kring- um Glámu og vatn af hálend- inu látið leka ofan í þau. Eitt stöðvarhús yrði síðan neðan- jarðar og myndi allt vatn fara í gegnum það. Umhverfisáhrif af þess konar virkjun yrðu í algeru lágmarki. Ekkert uppi- stöðulón þarf að gera því nátt- úruleg vötn yrðu nýtt til miðl- unar. Virkjunin yrði öll neðan- jarðar og vart sjáanleg mönn- um. Eitt þarf þó að athuga. Með lagningu „þakrennunnar“ yrði mikill tilflutningur á vatni frá mörgum fjörðum í einn. Ferskvatn hefur aldrei verið fært á milli fjarða á þennan hátt og er því ekki vitað með vissu hvaða áhrif slíkt myndi hafa á umhverfið. Þó held ég að áhrifm þurfi ekki öll að vera neikvæð." Eftirspurn hefur aukist gífurlega „Yrði þessi virkjun að veru- leika myndi hún sennilega framleiða um 70 megawött. Þess má geta að Mjólkárvirkj- anir framleiða samanlagt rúm 8 megawött og myndi Glámu- virkjun ein framleiða tvöfalt meiri orku en Vetfirðingar nota í dag. Frumathuganir gera ráð fyr- ir því að þessi virkjun myndi kosta um það bil 14 milljarða. Það gefur auga leið að við höfum ekki fjármagn til að kosta slíkt verkefni og þurfum að fá aðra aðila inn í dæmið. Heppilegast væri að sjálfstætt hlutafélag yrði stofnað um byggingu og rekstur slíkrar virkjunar. Hvort aðrar orku- veitur sem eiga takmarkaða virkjanakosti eða aðrir aðilar vilji tjárfesta á eftir að koma í ljós. Orkubúið fengi grunn- rannsóknir til margra ára metnar sem stofnframlag í hið nýja hlutafélag. I hönd fara spennandi tímar í orkumálum. Eftirspurn eftir orku hefur aukist gífurlega á síðustu fimm árum og mun halda áfram, sérstaklega ef stóriðjuáætlanir ríkisstjórnar- innar standast. Glámuvirkjun yrði heppilegur kostur og myndi sennilega ekki fara mikið fyrir brjóstið á umhverf- isverndarsinnum." Tryggari orka með Glámuvirkjun „KostirGlámuvirkjunareru augljósir fyrir Vestfirðinga. I dag kaupum við um 70% af okkar orku frá Landsvirkjun, en gallinn við það fyrirkomu- lag er ótrygg orkuafhending. Vestfirðireru eini landshlutinn sem hefur bara eina flutnings- leið inn á svæðið. Þar að auki liggur þessi eina lína, svo- kölluð Vesturlína, um erfitt landssvæði veðurfarslega séð og er sú bilunargjarnasta í eigu Landsvirkjunar. Við Vestfírð- ingar búum því við minnsta afhendingaröryggið á landinu. Glámuvirkjun bætir upp þennan ókost og ótímabærir útslættir yrðu miklu færri en þeir eru í dag.“ Megum ekki láta forræðið af hendi Margir spakir menn hafa að undanförnu sagt skoðun sína á því hvort selja eigi Orkubú Vestfjarða úr höndum heimamanna eða ekki. „Snemma í haust leit út fyrir að Orkubúið yrði slegið af án umræðu og selt ríkinu. Nú er umræða um þessi mál farin rækilega í gang og er það af hinu góða. Þeir sem eru á móti sölunni hafa bent á að hægt væri að nota fyrirtækið á allt annan hátt en nú er gert gert. Heimur orkumála er að opnast upp á gátt og fjölmargir möguleikar eru í stöðunni. Hægt væri til dæmis að sameina fyrirtækið RARIK án þess að láta for- ræðið af hendi eða hafa það áfram sjálfstætt. Ég er hræddur um að ef forræðið færi til annarra, muni þeir menn sem taka við Orku- búinu lítaframhjáokkarvirkj- unarkostum á meðan þeir hafa aðra tiltæka. Því er það mín skoðun að forræði í orkumál- um sé eitthvað sem Vestfirð- ingar megi ekki láta af hendi. Við verðum að athuga hvað við gerum Vestfirðingum framtíðarinnar með sölunni, því þá afsölum við okkur enn einni auðlindinni." Heyrnatól i miklu úrvali geislaspilara Verð frá kr. 5.990.- stgr. Ferðatæki með PMIUÞi 14" sjónvörp Verö frá kr. 16.990.• stgr. 20" sjónvörp Verð frá kr. 19.990.- stgr. Casio hljómborö Allt frá leikföngum til hljómsveita. Tilvaliö i píanónámiö Frábært verö á Ijósaslöngum. Playstation leikjatölvan Sú allra vinsælasta. Verð kr. 11.990.- stgr. Allir nýjustu PC og Playstation leikirnir Balívörurl Glæsilegt úrval af „ööruvísi“ gjafavöru Þaö sem unglingarnir vilja! Casio G-Shock úr Philips myndbandstæki Verð frá kr. 16.990.- stgr. Inni - úti - allsstaöar Hlægilega ódýrar jólaseríur. T.d. 20 Ijósa innisería á kr. 270.- Opiö laugardag frá kl. 10-18 PÓLUNN HF. AÐALSTRÆTI 9 - ÍSAFIRÐI - SÍMI 456 3092 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000 5

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.