Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.12.2000, Qupperneq 9

Bæjarins besta - 06.12.2000, Qupperneq 9
iða“ af við- rninálum •éfa hf. í Bolungarvík af fyrirhuguðu samstarfi. Við teljum að Vestfirðir bjóði mikla möguleika fyrir fyrir- tæki líkt og okkar enda værum við ekki að hefja þessa starf- semi nema svo væri. Þessi nálægð við verðbréfa- heiminn er Vestfirðingum að miklu leyti ókunn. Islensk verðbréf vinna því töluvert frumkvöðlastarf að mínu mati með því að setja á fót útibú í Bolungarvík. Ég hef eins og aðrir á þessu sviði þurft að kynna mér málin töluvert og var til að mynda í tvo mánuði fyrir norðan í höfuðstöðvum Islenskra verðbréfa áður en ég kom hingað vestur. Þess utan legg ég nú stund á lög- gildingarnám í verðbréfamiðl- un þannig að nóg er framund- an á næstu misserum.“ Ekki bara hlutabréf Unnar segir að verðbréfa- miðlun sé annað og meira en kaup og sala einstakra hluta- bréfa. „Við erum ekki bara að selja hlutabréf í Eimskipum og deCode, þó að vissulega bjóðum við þá þjónustu. Við stundum t.d. viðskipti með skuldabréf, húsbréf, sjóðsbréf og fjölmarga aðra fjárfesting- arkosti. Við erum í samstarfi við mjög öflugt sjóða- og eignavörslufyrirtæki, Aber- deen Asset Management Ltd. Aberdeen er vel kunnugt um allan heim en fyrirtækið var stofnað árið 1876 í Skotlandi. Það er nú með ríflega 2.000 milljarða íslenskra króna í sinni vörslu og starfsstöðvar á níu stöðum í heiminum, m.a. í Englandi, Skotlandi, Banda- ríkjunum, Singapore og Lúx- emborg. Við bjóðum við- skiptavinum okkar mikið úr- val sjóða frá Aberdeen sem margir hverjir hafa skilað mjög góðri ávöxtun í alþjóð- legum samanburði. íslensk verðbréf hf. starf- rækja Hlutabréfasjóð íslands sem ætti að vera athyglisverð- ur kostur fyrir þá sem sækjast eftir minni áhættu en í við- skiptum með einstök félög. Sjóðurinn er til dæmis góður kostur fyrir þá sem hyggjast nýta sér hinn árlega skattaaf- slátt með kaupum á hlutabréf- um fyrir áramótin. Þess utan bjóðum við ýmsar vörur frá Kaupþingi, svo sem Eininga- bréf og ýmis form lífeyris- sparnaðar. Nokkur vakning hefur orðið hérlendis undan- farið í því að nýta sér þau kjör sem bjóðast með því að leggja fyrir viðbótarlífeyrissparnað." Sérþekking ætti að geta nýst „Annað verkefni sem fyrir- tækið hefur verið að vinna fyrir norðan er umsjón með fjárfestingasjóðnum Tæki- færi. I sjóðinn er safnað hluta- fé af Norðurlandi og kernur Byggðarstofnun með tiltekið framlag á móti. Sjóðurinn lán- ar síðan til ýmissa verkefna heima í héraði og eru unt- sóknir metnar meðal annars eftir margföldunaráhrifum sem líkleg eru á svæðinu og að sjálfsögðu eftir ávöxtunar- möguleikum. Þetta verkefni hefur gengið mjög vel á Norðurlandi og ég sé ekkert því til fyrirstöðu að Vestfirðingar reyni að leika það eftir. íslensk verðbréf hf. hafa því óneitanlega nokkra sérþekkingu af því að koma á fót og starfrækja sjóð af þessu tagi og ætti sú þekking að geta nýst hér á Vestfjörðum í góðu samstarfi við hlutaðeig- andi aðila. Ég vil hvetja þá sem vilja kynna sér starfsemi fyrirtæk- isins að líta inn á heimasíðu okkar (www.iv.is'). slá á þráð- inn eða koma á skrifstofu okk- ar í Bolungarvík. Það verður tekið vel á móti öllum.“ Fundur um verkfallsmálið Fundur um verkfallsmálið verður haldinn ífyrirlestrarsalnum í bóknámshúsi Mennta- skólans, fimmtudaginn 7. desember2000 kl. 20:00. Staða nemenda verðurrædd og fyrirspurnum svarað. Allir nemendur og for- eldrar þeirra eru velkomnir á fundinn. Skólameistari. Grunnskólinn á ísafírði fer á Skólatorgið Heimasíður skólans opnaðar - einnig tekin í notkun fartölva og skjávarpi stjóri í Isafjarðarbæ opn- aði formlega vefsíður Grunnskólans á ísafirði í kaffisamsæti sem haldið var á kennarastofu skólans á föstudag. Einnig voru tekin í notkun skjávarpi og far- tölva sem keypt voru fyrir gjafafé frá fyrrverandi nem- endum skólans. Vefsíðurnar eru hýstar á svonefndu Skólatorgi, vef- útgáfukerfi fyrir íslenska grunnskóla. Tæknival og Skýrr annast kerfíð og er það gjöf fyrirtækjanna til grunnskóla landsins. „Það er von aðstandenda Skóla- torgsins að með vefútgáfu- kerfi og upplýsingavef megi nýta nútímatækni til að styrkja samskipti lykilaðila í lífi nemenda og efla í leið- inni íslenskt menntakerfi", segir á aðalsíðu vefútgáfunn- ar. Vefslóð Grunnskólans á Isafirði mun vera nokkuð flókin. Þess vegna ráðlagði Kristinn Breiðfjörð skólastjóri mönnum að fara inn á hana í gegnum Skólatorgið (http:// www.skolatorg.is/) Kristinn Breiðfjörð Guð- niundsson, skólastjóri. Halldór Halldórsson bœjarstjóri opnar heimasíður Grunnskólans d Isafirði. Qpfordtpkkur Q&móréttahLxdbord Qfblrmqjasvcit Qbbicpvn IFblmadóttir spnpnr Qd’ínarsönflócj md undirleik Cbfanpetar ryQjunnarsdóttur Qbbrijid um í vinatvðlsum ðcy polkurn md undirleik ‘Qd'ínarbondsins (jQ)hmlerfur aldomótaejiiréttur ddhoetti (^ontokvenna ad kvöldi nþársdatjs 2001 / (jjfélacjshmiilmu QýGnífsdal oMiOavðrdkr. 3.700,- AMir vtdkommr - QJnatnhwmiskkvdnadur sý€úsid ðpnar kl. 20:00 Miáapantanir í síma 456 3167, 456 7425 & 456 7422 síácl egfis og á kvölclin ttur öif /eikajþnr dansijram á rauda nótt MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000 9

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.