Bæjarins besta - 06.12.2000, Blaðsíða 16
Menntaskólinn á ísafirði
Engin fullveld-
ishátíð í ár
Fullveldishátíð féll niður
hjá Menntaskólanum á ísa-
firði að þessu sinni. Að sögn
Jóhanns Friðgeirs Jóhanns-
sonar, ritara Nemendafé-
lags MI, varð sambland
gleymsku og óheppni til
þess að hátíðin datt upp fyr-
ir. Venja er að allar bekkjar-
deildir skólans og kennarar
skemmti á hátíðinni.
„í fyrstu gleymdist að
auglýsaeftiratriðum. Þegar
nær dró fullveldisdegi jókst
vonleysi meðal manna og
talið var að mæting yrði
dræm vegna verkfalls kenn-
ara. Akveðið var því að slá
hina hefðbundu hátíð af en
bjóða í staðinn einhvers
konar sárabætur. Til stóð að
halda litla skemmtun í Skíð-
heimum en þá vildu húseig-
endur ekki lána skálann",
sagði Jóhann.
Krafa á ísafjarðarbæ vegna dóms
Lán tekið fyrir
greiðslunni
Lögmaður feðganna Jón-
asar H. Finnbogasonar og
Finnboga Jónassonar á Isa-
fírði hefur krafíð Isafjarð-
arbæ um greiðslu skv.
hæstaréttardómi í byrjun
þessa mánaðar.
Þar voru Isafjarðarbær og
fyrrverandi formaður og
fyrrverandi varaformaður
félagsmálanefndar bæj arins
dæmdin solidum (einn fyrir
alla og allir fyrir einn) til að
greiða feðgunum miskabæt-
ur og málskostnað vegna
ólögmæts brottnáms á árs-
gömlu bami af heimili sínu
og þeirra. Krafan hljóðar
upp á kr. 1.080.000.
Bæjarstjórn hefur sam-
þykkt að krafan verði greidd
og greiðslan verði fjármögn-
uð með lántöku.
Starfsfólk lögregluembættisins á ísafírði
Fékk bikar að launum
fyrir 100% í heilsurækt
Lögreglan á ísaftrði fékk í
síðustu viku veglegan bikar
fyrir framúrskarandi góða
þátttöku í samræmdu heilsu-
ræktarátaki norrænna lög-
reglumanna í októbermánuði.
Rey ndar voru fj ögur lögreglu-
embætti á landinu þar sem
þátttakan var 100% og dró
ríkislögreglustjóri þess vegna
um það hvert bikarinn færi.
Hin embættin með 100% þátt-
töku eru á Hólmavík, í Búðar-
dal og á Sauðárkróki.
Hér var um að ræða keppni
milli íþróttasambanda lög-
reglumanna á Norðurlöndum
en jafnframt var ákveðið að
keppt skyldi milli embætta
hérlendis. Þátttökurétt höfðu
lögreglumenn af báðum kynj-
um, lögreglunemar, löglærðir
fulltrúar með lögregluvald og
lögreglustjórar, samtals 716
manns hér á landi. Þátttakan
Önundur Jónsson yfirlögregluþjónn, Ólafur Helgi Kjartansson
lögreglustjóri og Hlynur Snorrason,form. íþróttafélagsins.
var almennt fremur dræm en
hjáfjórum embættum varþátt-
takan alger eins og að framan
greinir.
Myndin var tekin þegar 01-
afur Helgi Kjartansson, lög-
reglustjóri á Isafirði, afhenti
Hlyni Snorrasyni, formanni
íþróttafélags lögreglunnar á
ísafirði. Áður hafði Haraldur
Johannessen ríkislögreglu-
stjóri afhent Ólafi bikarinn til
að fara með vestur. Að sjálf-
sögðu var Ólafur Helgi einnig
meðal þátttakendanna í
heilsuræktarátakinu hjá lög-
regluliðinu á Isafirði.
Tjón í verslun Bónus á Skeiði vegna vatnsflóðs
Sugu upp hálft
annað tonn af vatni
Talsvert tjón mun hafa orðið
á gólfefnum í verslunarhús-
næði Bónuss á Isafirði vegna
vatnsflóðs um helgina.
Ekki mun hafa orðið tjón á
vörum verslunarinnar. Slökk-
vilið Isafjarðar var kallað út á
níunda tímanum á sunnudags-
morgun vegna flóðsins og
sugu slökkviliðsmenn upp um
Nýtt félag, Fjarvinnslan Suðureyri ehf.
Keypti starfsstöð Islenskr-
ar miðlunar á Suðureyri
Nýstofnað félag, Fjar-
vinnslan Suðureyri ehf.,
hefur gengið frá kaupum á
starfsstöð þrotabús íslensk-
rar miðlunar á Suðureyri.
„Við búumst við því að
opna mjög bráðlega", segir
Valgerður Kristjánsdóttir
framkvæmdastjóri. „í fyrstu
verða tvö stöðugildi hjá fyrir-
tækinu en í framtíðinni er
stefnt að því að þau verði sex.
Við munum bjóða svipaða
þjónustu og íslensk miðlun
ætlaði að vera með.“
Að sögn Valgerðar verður
áherslan lögð á símsvörum
og skráningarþjónustu en
síður á söluverkefni. „Við
vonum aðVestfirðingartaki
vel í þessa þjónustu og leiti
til okkar þegar þeir þurfa á
henni að halda“, segir Val-
gerður.
GJAFABREF
Opid eins og
vanalega
mán.-fim. 09.00-17.30
fös. 09.00-16.00
GJAFABRÉF
Vesturferðir $s5h*
Aðíilstrœti 7 - Stmi 4565111
www. vesturferdir. is
vestnrferdir cí vcav/itrferdir. is
OPIÐ:
Virka daga
kl. 09 - 21
Laugardaga
kl. 10 - 18
Surtnudaga
kl. 12 - 18
T7
r/Á
m
AUSTURVEGI 2 • SIMI 456 5460
hálft annað tonn af vatni af
gólfum verslunarinnar.
Ástæða vatnsflóðsins virð-
ist vera sú, að gleymst hafi að
skrúfa fyrir vatn.
Slökkviliðsmaður að sjúga upp vatn í verslun Bónuss á
sunnudagsmorgun.
Samvinnuferðir - Lantlsýn
Símí 456 5390
iso u snerpa. is
Ir
ISLENSK
VERÐBREF
-fyrst og fremst ífjármálum!
1
Sími 450 7117
Borgarþú ofmikiö í skatt?
- Viltu borga minna?
Q
HLUTABRÉFASJÓÐUR
(SLANDS
Leitaðu nánari upplýsinga hjá íslenskum verðbréfum hf.
S: 450 7117
_si ujuseqpqspueq