Tónamál - 01.12.1976, Blaðsíða 7
Þórhallur Arnason - Minning
Þann 29. júní s.l. var til grafar borinn Þórhallur
Arnason cellóleikari, elzti félagsmaður F.Í.H. og heið-
ursfélagi. Hann fæddist í Narfakoti í Njarðvíkum 13.
janúar 1891, sonur Árna Pálssonar ættuðum undan
Eyjafjöllum og konu hans Sigríðar Magnúsdóttur ætt-
aðri úr Fljótshlíð. Þórhallur fór 10 ára í fóstur til föð-
urbróður síns, Kristjáns Árnasonar, að Ytri-Bakka við
Hjalteyri. Eftir bernskuárin toguðust bakaraiðnin og
tónlistargáfan um að nýta sér hæfileika hans og varð sú
síðari yfirsterkari.
Þórhallur nam fyrst í Kaupmannahöfn með aðstoð
systur sinnar Ástu, sem þar bjó, enda lauk hann prófi
frá Konunglega tónlistarskólanum með ágætum. Síðar
fór hann til Þýzkalands og dvaldi þar í 11 ár. Alls voru
útivistarár hans um 20 talsins. Þó Þórhallur væri aðal-
lega cellóleikari, þá var hann einnig sleipur trompet-
leikari, en þann hæfileika lét hann syni sínum, Hösk-
uldi, eftir.
Eftir veruna erlendis sest Þórhallur að hér heima
1931 og er fyrst lausamaður í Útvarpstríóinu, en feril
hans þarf ekki að rekja fyrir starfssystkinum hans, svo
mjög var hann þekktur. í öðru tölublaði Tónamála
birtist grein um Þórhall.
Þórhallur Árnason var hið mesta ljúfmenni og lista-
maður góður. Hann sat með okkur öll samsæti F.Í.H.
fram ril þess síðasta og var þá skemmtinn mjög og
gamansamur. Við munum þó alltaf minnast hans helzt
og mest fyrir aðild hans að stofnun félags okkar og
störfin í þágu þess.
Blessuð sé minning hans.
TÓNAMÁL
7