Tónamál - 01.12.1976, Blaðsíða 10
Nokkrir atorkumenn
Það var hér fyrr á árum, að hljóðfæraleikur var að-
eins stundaður sem tómstundagaman eða aukastarf.
Ekki er langt síðan að almennigur tók að líta á slíka
iðju sem vinnu mönnum til framfæris. Alla vega
hefur það þótt hyggilegt alveg fram á þennan dag að
hafa annað starf í bakhöndinni. Sérstaklega á það við
um þá, sem leikið hafa á dansleikjum og ekki gert
tónlistina að æðri köllun sinni í lífinu. Með hliðsjón
af þessu, þá var það á dögunum, að undirritaður fór
að hugleiða, hve margir hljómlistarmenn væru með
eigin fyritæki, sem ekki væri alveg án tengsla við tón-
listina. Komu þá upp nokkur nöfn og skal nú til gam-
ans þeirra getið, sem fyrst komu í hugann.
Allar götur frá 1967 hefur Hans Kragh Júlíusson,
útvarpsvirkjameistari frá 1966 og trommuleikari frá
blautu barnsbeini, rekið radíóverkstæði og verzlun að
Njálsgötu 22. Ekki var mikið á þessari framtakssemi
að græða fyrsta veifið, því margir úr hljómlistarmanna-
stétt komu til að láta gera við „græjurnar" sínar og
gleymdu að borga. Fyrir dugnað og lipurð tókst þó
Hansa að láta fyrirtækið fljóta.
Fyrir fjórum árum tók hann að flytja inn og selja
hljómflutningstæki, útvörp og segulbönd í bíla ásamt
hátölurum og því um líku. Nú fyrir skemmstu flutti
fyrirtækið í nýtt húsnæði að Ármúla 38, á horni Ár-
múla og Selmúla, þar sem fæst mikið úrval af áður-
nefndum tækjum ásamt hljómplötum, kasettum,
discotektækjum (ljótt það) o. fl.
Þarna finnast allmörg þekkt merki frá Bandaríkjun-
um og Bretlandi, en við þennan bætta húsakost vex
viðgerðarþjónusta fyrirtækisins mjög fiskur um hrygg.
Það er ástæða til að óska Hansa og fjölskyldu góðs
gengis á nýja staðnum, en helzt gerði hann hljómlist-
armönnum greiða með því að selja óvirk discótektæki.
Hans spilar í Ludo.
Næsti maður í svipuðum atvinnuvegi er Arthur
Moon, sem hefur í slagtogi við aðra stundað áþekk
störf um árabil. Hann var lengi í Hlíðunum, en er nú
kominn á Þórsgötu 15, en fyrirtæki hans heitir Sjón-
varpsmiðstöðin sf. Túri er annálaður sjónvarpsvið-
gerðamaður, enda á eilífum þönum út um borg og bý
í slíkum erindagjörðum. Hjá honum og félögum er
að finna margt eigulegt í bíla og hýbýli. Hann er hætt-
ur að spila opinberlega, en hvort hann hefur selt bass-
ann ennþá er ekki vitað. Sjónvarpsloftnetin eru alger
sérgrein hjá þessu fyrirtæki, enda eru þeir félagar
10
TÓNAMÁL