Tónamál - 01.12.1976, Side 12

Tónamál - 01.12.1976, Side 12
Sumarannáll Um það leyti, sem síðasta tölublað Tónamála kom út, þinguðu stjórnarmenn Nordisk Musiker Union á Þingvöllum. Hafði stjórn F.Í.H. boðið þeim að þinga á þessum sögufræga stað vegna 60 ára afmælis NMU. Rómuðu fulltrúarnir mjög allan viðurgjörning og að- stöðu í sambandi við þingið, enda þótt þeir bæru sjálf- ir kostnað af að koma sér til og frá landinu. NMU hefur verið hið gagnlegasta tæki hljómlistarmannafé- lögunum á Norðurlöndum og höfum við í F.Í.H. notið þess sérstaklega, eins og flestum mun kunnugt. Þarna á þinginu var Sverri Garðarssyni boðið að sitja ársþing danskra hljómlistarmanna, sem haldið var í Holsterbo dagana á undan þingi Alheimssamtaka hljómlistar- manna, en það var haldið í Hasseluden í nágrenni Stockholmborgar 30. ágúst. Myndi það of langt mál að rekja ganginn á öllum þessum þingum, en mikil á- herzla var lögð á lifandi hljómlist, þ. e. a. s. niður með diskótekin. Oll stjórn F.Í.H. sat að einhverju eða öllu Ieyti þingið hjá NMU á Þingvöllum, en Sverrir Garð- arsson sat bæði þing DMF og FIM. I lok Listahátíðar fór starfsfólk Sinfóníunnar í sum- arleyfi og þótti vel að því komið. Popparar héldu menningunni í gangi yfir hásumarið að vanda og ferð- uðust víða um landið. Stóð það á endum, að hljóðfæra- trygging sú, sem félagar hafa notið, gekk úr gildi 1. október og fékkst ekki endurnýjuð. Aðalbitinn, sem tryggingamenn fá ekki kyngt, er fólginn í öllum þeim rafmagnstækjum danshljómlistarmanna, sem strangt tiltekið eru ekki hljóðfæri, heldur hjálpartæki. Þetta eru dýrir hlutir og viðkvæmir, enda er spurning kom- in fram, hvort ekki væri hægt að fá hljóðfærin sjálf tryggð, ef meðlætinu væri sleppt. Allt þetta er í rannsókn og vinnslu. Vonandi kemst trygging í gang aftur, áður en langt um líður, a. m. k. í einhverri mynd. Eitt höfuðverkefni starfsfólksins hjá F.Í.H., þegar venjulegum samningagjörðum, skrifstofuvinnu og taxtaútreikningum sleppir, er fólgið í innheimtu- störfum. Ekki er þar eingöngu um slægleg skil félags- 12 manna til sjóða félagsins að ræða, heldur virðast sumir veitingamenn og aðrir viðsemjendur okkar standa í þeirri trú, að fé það, sem þeim ber að greiða í sjóði F.Í.H., sé upplagt sem rekstrarfé fyrir þá sjálfa. Þessi vanskil stela ógrynni af tíma starfsfólks félagsins og á tíðum þarf að leita liðsauka hjá lögmönnum. Myndi það létta mjög á álaginu, ef félagsmenn greiddu félags- gjöld sín reglulega og tilkynntu skrifstofunni, þegar þeir eru ekki að leika um tíma. Allir þeir, sem hlotið hafa lífeyrissjóðslán, verða að vera í félaginu unz það er greitt. Þeir, sem spila ekki, greiða aðeins hálft fé- lagsgjald. Þetta ættu allir að vita. Að síðustu varðandi þetta, þá verða félagsmenn að halda til haga öllum kvittunum, sem þeir fá frá vinnuveitendum, sbr. líf- eyrissjóðs- og félagsgjaldakvittunum. í sumar lézt Þórhallur Árnason, heiðursfélagi í F.Í.H., en hans er getið hér á öðrum stað í blaðinu. Næsta áfall var fráfall Einars B. Waage, varaformanns okkar, en hann lézt löngu fyrir aidur fram í október s.l. Síðast hvarf svo Sigmundur Lúðvíksson yfir landa- mærin. Sinfónían tók til starfa á réttum tíma. Nokkrar mannabreytingar urðu eins og venjulega, en aðalstjórn- andi er Karsten Andersen. Ekki hefur Sigurður Björns- son enn tekið við framkvæmdastjórninni þar, en Guð- björg Jónsdóttir hefur átt veg og vanda þess embættis á meðan með góðu fulltingi Ásthildar Egilson. Kammersveit Reykjavíkur hélt sína fyrstu tónleika 14. nóvember s.L, en hún er nú rösklega tveggja ára, eða stofnuð í ágúst 1974. Á þessu þriðja starfsári heldur hún fjóra tónleika og eru þeir næstu 12. des. í Kristskirkju. Hinir tveir síðari verða í Menntaskólan- um við Hamrahlíð 20. febrúar og 27. marz kl. 16.00 hvorn dag. Áskriftarkort er hægt að fá í bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, auk þess fær skólafólk rífleg- an afslátt. í blöðunum 18. nóvember kom fram að Listahátíð in í sumar hafi gefið af sér 8 milljón krónur í hagnað, Framh. á hls. 13. TÓNAMÁL

x

Tónamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.