Bæjarins besta - 19.01.2005, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 20052
Ísafjarðarkirkja
Messa og kirkjuskóli kl. 11:00
sunnudaginn 23. janúar.
Nýtt efni í barnastarfinu.
Sjáumst á sunnudaginn!
Dílaskarfur að reyna koma matnum ofan í sig í höfninni í Bolungarvík. Mynd: nave.is.
Vetrarfuglatalningum er nú
lokið á norðanverðum Vest-
fjörðum en alls sáust tæplega
11.000 fuglar af 30 tegundum.
Um talninguna sáu Böðvar
Þórisson hjá Náttúrustofu
Vestfjarða og Hjalti Ragnars-
son á Ísafirði og var talið í
Bolungarvík, Skutulsfirði og
Önundarfirði dagana 7.-9. jan-
úar.
„Fuglalífið var með svipuðu
sniði og síðustu ár, helstu
breytingarnar voru að nú sáust
rjúpur í byggð og straumönd
og skarfa vantaði á Óshlíðina.
Mjög brimasamt var dagana á
undan á Óshlíðinni. Skarfarnir
fundust síðan í höfninni í Bol-
ungarvík og á pollinum í Skut-
ulsfirði“, segir í frétt á vef
Náttúrustofunnar. Stuttu síðar
voru skarfarnir komnir á sína
vanalegu staði á Óshlíðinni.
Einn flækingur sást við taln-
inguna og var það hvinandar-
steggur (Bucephala islandica).
Hann hefur sést í Dýrafirði af
og til undanfarin ár á þessum
árstíma. – thelma@bb.is
Tæplega 11 þúsund vetrarfuglar
Alls þurftu 103 íbúar á Vest-
fjörðum að yfirgefa heimili sín
vegna snjóflóðahættu á mánu-
dag. Ákveðið var að rýma 37
hús á hættusvæðum og þurftu
49 íbúar að fara af heimilum
sínum á Patreksfirði, 23 á Ísa-
firði og í Hnífsdal og í dreifbýli
Ísafjarðarbæjar og 31 í Bol-
ungarvík og af tveimur bæjum
þar við. Veðurstofan lýsti yfir
hættuástandi vegna snjóflóða-
hættu á norðanverðum Vest-
fjörðum um miðjan dag á
mánudag og ákvað rýmingu á
svonefndum C-reit í Skutuls-
firði, en á honum er iðnaðar-
húsnæði við Grænagarð á Ísa-
firði, og var hann rýmdur fyrir
klukkan 17.
Þá ákvað Veðurstofan rým-
ingu á svonefndum M- og N-
reitum í Hnífsdal frá kl. 17 á
mánudag. Hús voru einnig
rýmd í Bolungarvík og á sunn-
anverðum Vestfjörðum. Mikið
snjóaði á Vestfjörðum aðfara-
nótt mánudags og fyrripart
mánudags og var veðurspá
slæm fyrir nóttina. Sú spá rætt-
ist ekki og var hið ágætasta
veður allt kvöldið og aðfara-
nótt þriðjudags. Almanna-
varnanefnd Ísafjarðarbæjar
kom saman tvívegis á mánu-
dag og ákvað til viðbótar við
áðurnefndar rýmingar að rýma
þær íbúðir við Árvelli í Hnífs-
dal sem búið er í og bæinn að
Hrauni. Einnig ákvað nefndin
að rýma Fremstuhús í Dýra-
firði, Neðri-Breiðadal, Fremri
Breiðadal, Veðrará í Önundar-
firði og Kirkjuból í Korpudal.
Einnig var ákveðið að rýma
Kirkjubæ og Höfða í Skutuls-
firði eftir kl. 17 og Funa,
Gámaþjónustu Vestfjarða og
útihús á sama svæði frá sama
tíma.
Við aðstæður eins og voru á
mánudag vegna snjósöfnunar
og veðurspár taldi almanna-
varnanefnd og vegagerð einn-
ig nauðsynlegt að takmarka
umferð um vegi. Snjóflóð féllu
á veginn um Óshlíð í mánu-
dag. Sett var upp vakt á Skut-
ulsfjarðarbraut síðdegis og
umferð takmörkuð eftir þann
tíma. Á Hnífsdalsvegi, Kirkju-
bólshlíð, Hvilftarströnd,
Breiðadal og Súgandafirði var
umferð takmörkuð og þessum
leiðum var svo öllum lokað
eftir kl. 18. Þá var Súðavíkur-
hlíðinni lokað síðdegis.
Almannavarnanefnd Bol-
ungarvíkur ákvað einnig að
rýma hús við Dísarland, auk
þriggja húsa við Traðarland
og bæinn Tröð í Bolungarvík.
Var bærinn Geirastaðir í
Syðridal einnig rýmdur og um-
ferð um hesthús undir Erni
bönnuð. Gekk rýmingin vel
skv. upplýsingum lögreglunn-
ar í Bolungarvík. Nokkur
minni snjóflóð féllu fyrir ofan
byggðina í Bolungarvík á
mánudag.
Rýmingu á Ísafirði, í Bol-
ungarvík og á Patreksfirði var
aflétt árla á þriðjudagsmorgun.
Fjöldi húsa rýmdur og umferð takmörkuð
Hættuástand vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum
Umferð var takmörkuð um nokkra vegi á norðanverðum Vestfjörðum síðdegis á mánudag, m.a um Skutulsfjarðarbraut þar sem var lögregluvakt.
03.PM5 6.4.2017, 09:232