Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.01.2005, Side 4

Bæjarins besta - 19.01.2005, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 20054 Skíðafélag Ísfirðinga í ferð til Austurríkis Hópurinn fékk gott veður nánast allan tímann. Myndir: Jónas Guðmundsson. Skíðafélag Ísfirðinga stóð fyrir ferð til Wagrain, skammt frá Salzburg í Austurríki dag- ana 4. til 13. janúar. Í hópnum voru alls 49 manns; 16 börn, 13 unglingar og 20 fullorðnir. Með í för voru tveir þjálfarar, þeir Þorlákur Baxter og Jó- hann Bæring Gunnarsson. „Þetta er eftir því sem ég best veit fyrsta fjölskyldu- og æfingaferð félagsins til út- landa. Aðstæður voru eins og best verður á kosið, gott veður nánast allan tímann þrátt fyrir árstímann“, segir Jónas Guð- mundsson, einn ferðalang- anna. Hiti var yfirleitt í kring- um frostmark, sól flesta daga og færi oftast hið besta. Þá var ekki eins mannmargt á svæð- inu og þegar lengra líður á árið og því lítið um bið í lyftur eða þrengsli í brekkum. „Brekkur voru við allra hæfi, fjöldi lyfta til að flytja fólkið upp og fjölmargir veit- ingastaðir í boði. Stemmning í hópnum var mjög góð, engin slys svo vitað sé. Að vísu þurfti ein kona læknisaðstoð síðasta daginn vegna meiðsla í hnjám eftir fall á skíðum“, segir Jón- as. Auk barnanna frá Skíðafé- lagi Ísafjarðar voru með í för börn frá íþróttafélögunum Haukum í Hafnarfirði og Breiðabliki í Kópavogi ásamt foreldrum. – thelma@bb.is Lagt af stað á fjallið. Jóhann Bæring Gunnarsson með hóp ungra skíðamanna. 03.PM5 6.4.2017, 09:234

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.