Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.01.2005, Blaðsíða 6

Bæjarins besta - 19.01.2005, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 20056 ritstjórnargrein Ísfirðingafélagið í Reykjavík 60 ára ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ orðrétt af netinu frjalshyggja.is – Guðm.undur Arnar Guðmundsson Enn eitt bannið Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 · Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Fréttastjóri: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, sími 863 7655, halfdan@bb.is – Blaðamenn: Halldór Jónsson, sími 892 2132 hj@bb.is – Thelma Hjaltadóttir, sími 849 8699, thelma@bb.is · Ritstjóri netútgáfu: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is · Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Svein- björnsson · Lausasöluverð er kr. 250 eintakið með vsk. Áskriftarverð er kr. 215 eintakið. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. ISSN 1670 - 021X Sumarbústaðaeigendur í Tungudal hafa verulegar áhyggjur af snjómokstri af nýja veginum sem lagður hefur verið uppá Seljalandsdal. Þeir telja að snjór sem mokað er útaf veginum geti runnið niður hlíðina og um leið komið af stað snjóflóði. Við gerð vegar- ins á sínum tíma kom fyrir að steinar ultu niður að bústöð- unum og skapaði það tölu- verða hættu. Við gerð hins mikla snjó- flóðavarnargarðs við Selja- landsmúla breyttist lega vegar- ins uppá dalinn. Þar sem skíða- skálinn Skíðheimar er ekki lengur nýttur liggur vegurinn beint á skíðagöngusvæðið á dalnum. Fyrir vikið liggur veg- urinn í hlíðinni ofan nokkurra þeirra bústaða sem í Tungu- skógi eru. Þegar vegagerðin stóð sem hæst varð vart við nokkurt grjóthrun niður að umræddum bústöðum. Fyrir stuttu rituðu þær Frið- gerður, Guðríður og Ásdís Guðmundardætur bréf til bæj- arstjórnar Ísafjarðarbæjar þar sem vakin er athygli á þeirri hættu sem skapast getur við snjómokstur vegarins. Þær systur eru eigendur að sumar- bústöðum og lóðum neðan vegarins. Í bréfi sínu segja þær að ávallt hafi verið hætta á snjóhruni úr hlíðinni en með tilkomu vegarins hafi hættan aukist verulega að þeirra mati. Í bréfi sínu krefjast þær þess að hugað verði að þessu máli strax og þeim sem sjá um mokstur vegarins verði gerð grein fyrir þeirri hættu sem moksturinn fram af veginum getur skapað. Jafnframt óska þær eftir því að fundin verði önnur lausn til þess að losna við snjó af veginum. Þegar snjóflóðið mikla féll af Seljalandsdal og niður í Tunguskóg árið 1994 björg- uðust umræddir bústaðir að hluta. Árið 1973 fór hinsvegar af stað snjófleki í hlíðinni ofan við bústað Ásdísar og eyði- lagði hann. Bústaðurinn var síðar endurbyggður á sama stað en með öðru lagi. Flekinn fór af stað fyrir neðan núver- andi veg og segir Ásdís í sam- tali við blaðið að sú staðreynd sýni að ekki þurfi mikið til að koma flóði af stað. Hún segir að snjómokstur sé að sjálf- sögðu mjög saklaus verknaður í eðli sínu en á þessu svæði geti hann skapað mikla hættu. Þrátt fyrir að búseta sé ekki leyfileg að vetrinum í Tungu- skógi er svæðið mikil útivist- arparadís og því gæti jafnvel lítið flóð valdið óbætanlegu tjóni að sögn Ásdísar og því bráðnauðsynlegt að nú þegar verði mokstri þarna breytt. Bæjarráð Ísafjarðarbæjar vísaði málinu til tæknideildar. Snjómokstur á Seljalandsdal Sagður skapa hættu við sumarhús í Tungudal Ný stjórn var kjörin í eignar- haldsfélaginu Hvetjanda hf á aðalfundi félagsins sem fór fram fyrir skömmu. Í hinni nýju stjórn sitja Guðni Einars- son formaður, Sigurjón K. Sig- urjónsson varaformaður og Vilhjálmur Baldursson með- stjórnandi. Í varastjórn sitja Björn Davíðsson, Fylkir Ág- ústsson og Kristín Hálfdáns- dóttir. Á aðalfundinum var samþykkt að auka hlutafé fé- lagsins úr 70 milljónum króna í 200 milljónir. Hlutahafar í dag eru Byggðastofnun, Ísa- fjarðarbær, Súðavíkurhreppur. Sparisjóður Vestfirðinga og Lífeyrissjóður Vestfirðinga. Með nýju hlutafé verður leitast við að útvíkka hluthafahópinn. Tilgangur félagsins er fyrst og fremst sá að ávaxta hlutafé með þátttöku í nýsköpun og uppbyggingu atvinnutækifæra á norðanverðum Vestfjörðum. Eiríkur Finnur Greipsson framkvæmdastjóri félagsin segir að nú þegar hafi félagið samþykkt að taka þátt í einu nýsköpunarverkefni og nokk- ur verkefni hafi verið kynnt fyrir félaginu. Umsóknir sem berast félaginu eru yfirfarnar af framkvæmdastjóra, sem metur hvort þær skuli lagðar fyrir fagráð til umfjöllunar. Niðurstaða fagráðs verður lögð fyrir stjórn til endanlegrar afgreiðslu og á grundvelli hennar verður ákveðið hvort fjárfesta eigi í viðkomandi fé- lagi eða ekki. Félagið auglýsti í síðustu viku eftir vænlegum fjárfest- ingarkostum og segir Eiríkur Finnur að það hafi verið gert til þess að vekja athygli á fé- laginu. Starfsemin hefur farið hægt af stað og því þótti mönn- um rétt að láta vita af þessum nýja kosti í atvinnuuppbygg- ingu. Þennan kost hefur lengi vantað og nú þegar hann er fyrir hendi vonumst við auð- vitað til þess að þeir sem hafa góðar hugmyndir í farteskinu komi fram og gefi okkur kost á því að taka þátt í fjármögnun þeirra.“ Hvetjandi hf. hefur einnig opnað heimasíðu þar sem finna má upplýsingar um starf- semi félagins og nauðsynlegar upplýsingar fyrir þá sem kynna vilja hugmyndir sínar fyrir félaginu. Slóðin á heimasíðu félagsins er hvetjandi.is. Hlutafé félagsins auk- ið í 200 milljónir króna Guðni Einarsson kjörinn formaður stjórnar Hvetjanda hf. Tilgangur félagsins er fyrst og fremst að ávaxta hlutafé með þátttöku í nýsköpun og uppbyggingu atvinnutækifæra á norðanverðum Vestfjörðum Undirritaður reykir ekki og hefur oft kosið að sækja ekki veitingastaði þar sem mikið er um reykingar. Það hvarflar samt ekki að honum að reyna að beita ríkisvaldinu fyrir því að banna öðrum að reykja af sömu ástæðu og hann vill ekki að aðrir beiti ríkisvaldinu gegn því að hann borði uppáhalds súkkulaðistykkið sitt. Reykingar eru ekkert opinbert heilbrigðis- eða öryggisvanda- mál eins og berklar eða akstur undir áhrifum áfengis. Reykingar eru eins og skyndibitaát og mótorhjólaiðkun, m.ö.o. þær varða eingöngu einstaklinginn sem reykingarnar stunda. ,,Með hækkandi sól hækkar brúnin á mönnum hér á landi og að venju munum við Ísfirðingar halda upp á það, að sést til sólar, með því að drekka hið árlega Sólarkaffi félagsins“, voru inngangsorð fyrsta Vestanpóstsins, blaðs Ísfirðingafé- lagsins í Reykjavík, sem hóf göngu sína 1989 og hefur komið út árlega síðan í tengslum við Sólarkaffið og vaxið úr fjórblöðungi fyrsta árið í stórt og vandað blað, góða, efnismikla og myndríka heimild um fólk og fyrri tíma í sögu Ísafjarðar. Að því er segir í fréttatilkynningu frá félag- inu verður Vestanpósturinn með veglegra móti í tilefni af- mælisins, sem verður minnst með veglegu Sólarkaffi á Broadway 28. janúar. Þar er boðuð ,,fjölbreytt músik-dag- skrá í umsjón Baldurs Geirmundssonar, (þar sem) allir gömlu og síungu söngvararnir í popphljómsveitum liðinnar aldar á Ísafirði koma fram og hjálpa okkur að rifja upp gömlu og góðu stemminguna“, sem fullyrða má, að enginn hefur gleymt, sem upplifað hefur. Hinn 22. apríl n.k. eru 60 ár liðin síðan Ísfirðingafélagið í Reykjavík var stofnað ,,með það að markmiði að viðhalda kynningu milli Ísfirðinga búsettra í Reykjavík og nágrenni og efla tryggð þeirra við átthagana“, eins og segir í lögum þess. Fullyrða má að félaginu hafi almennt vel til tekist með að rækta þessa skyldu sína í þá sex áratugi, sem senn eru að baki. Segja má að starfsemi Ísfirðingafélagsins sé með nokkuð föstu sniði. Viðamesta viðfangsefnið er án efa rekstur Sól- túna, húss félagsins á Ísafirði, sem notið hefur vinsælda sem gististaður brottflutta Ísfirðinga. Um árabil hafa jólakort félagsins, oft prýdd verkum ísfirska listamanna, verið styrk- ustu stoðirnar undir rekstri Sóltúna. Sólarkaffið er að vonum fjölmennasta samkoman, en aðrir árlegir viðburðir, eins og messa og kirkjukaffi að vori og sólkveðjuhátíð að hausti, hafa einnig notið vinsælda. Þá hefur félagið mörg undanfarin ár veitt nemendum við grunn- mennta- og tónlistarskóla Ísafjarðar viðurkenningu. Það segir sig sjálft að Ísfirðingafélagið í Reykjavík ætti ekki þennan árafjölda að baki, ef sú ramma taug, sem rekka dregur föðurtúna til, væri ekki jafn sterk og raun ber vitni, hjá þeim mikla fjölda, sem af einni eða annari ástæðu flutti frá Ísafirði. ,,Þessi bær hefur í okkur svo ótrúlega sterk ítök“. Slík ástarjátning hefur alla tíð hljómað í eyrum gesta á Sólarkaffi Ísfirðingafélagins og enginn vafi er á, að svo mun verða um ókomna tíð. Það er hverju bæjarfélagi mikils virði að vita af slíkum bakhjörlum. s.h. 03.PM5 6.4.2017, 09:236

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.