Bæjarins besta - 19.01.2005, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 20058
Auðveldara að
vakna á morgnana
– rætt við Guðna Borgarsson sem keypti sér hjól og léttist um 36 kíló á átta mánuðum
Guðni Borgarsson á Ísa-
firði hefur lengst af verið
talinn í nokkuð góðum hold-
um og sver sig í ættina hvað
það varðar. Þegar ástandið
var hvað verst var Guðni tæp
140 kíló og holdafarið hafði
mikil áhrif á líkamann. Ökkl-
arnir voru undir gífurlegu
álagi og Guðni segist aldrei
hafa haft orku til að gera
nokkurn skapaðan hlut eftir
kvöldmat.
Nú er öldin önnur. Fyrir
tveimur árum fór Guðni að
breyta til, breytti mataræði
sínu og fór að hreyfa sig.
Hann fékkst til að deila reyn-
slu sinni með lesendum Bæj-
arins besta á þessum tíma
árs þegar margir eiga erfitt
með að hafa hemil á auka-
kílóunum.
Byrjaði að fitna
eftir fermingu
– Hafðirðu alltaf verið feit-
ur? Varstu feitur sem barn?
„Nei, ég byrjaði eiginlega
ekkert að fitna að ráði fyrr
en eftir fermingu. Þá byrjaði
að hlaðast utan á mig fita, þó
svo að lífstíllinn hafi ekki
breyst neitt að ráði. Þetta er
svolítið ættgengt hjá mér að
vera feitur.“
– Já, það er frekar þungt
fólk í ættinni, er ekki svo?
„Jú, öll nema ein systir
mín. Hún er eins og spýta og
sker sig mikið úr.“
– Var holdafarið byrjað
að hafa neikvæð áhrif á lík-
amann? Var þetta orðið
vandamál?
„Já, til dæmis var ég orð-
inn slæmur í löppunum.
Þetta tekur á og er gífurlegt
álag á ökklana. Liðirnir þar
voru nánast búnir enda var
ég alltaf að snúa mig.
Ég vinn sem tækjamaður
hjá Áhaldahúsi Ísafjarðar-
bæjar. Eins og menn geta
sagt sér sjálfir, þá er þetta
mikið kyrrsetustarf. Það
hjálpaði að sjálfsögðu ekki
til.“
– Það má jafnvel segja að
það sé ákveðin hefð fyrir því
að gröfukallar og aðrir tækja-
menn séu svolítið þéttir á
velli?
„Jú, það er nokkuð til í
því. Það er sosum ekkert
skrítið. Ef til dæmis er verið
að vinna á götusópara gerir
maður sama og ekkert nema
sitja undir stýri allan daginn.“
Fór að ganga fyrir
tveimur árum
– Varstu mikið búinn að
reyna að grenna þig?
„Ég var nokkrum sinnum
búinn að reyna að fara í megr-
un, en það gekk ekki neitt.
Viljinn verður að vera á bak
við þetta, án hans gerist ekki
neitt. Og viljinn var bara ekki
til staðar á sínum tíma.“
– En hvenær fór þetta loks
að ganga?
„Það var fyrir tveimur árum.
Pabbi var þá nýlega dáinn og
ég varð mjög daufur við það.
Pabbi var rosalega feitur eins
og margir aðrir í fjölskyld-
unni.“
– Var andlátið eitthvað tengt
offitu?
„Nei, það er ekki beint hægt
að segja það. Það fóru í honum
lifrin og hjartað. Það er kann-
ski frekar hægt að rekja það til
aldurs.
Eftir að hann dó fór ég að
taka mig á. Ég fór og keypti
mér reiðhjól, sem var mikið
gæfuspor. Ég fór þá að hjóla
út um allt og labbaði líka á
hverjum degi. Ég hjólaði dag-
lega inn í fjörð og hjólaði
Barðastrandarhringinn svo-
kallaða. Aðra hverja helgi
gekk ég upp Naustahvilft í
leiðinni.
Ég hætti að drekka mjólk
og fór að drekka undarennu.
Það sem meira máli skipti var
að ég hætti að borða á kvöld-
in.“
– Það skiptir miklu, að borða
ekki á kvöldin?
„Já, maður á það til að liggja
uppi í sófa, étandi og horfandi
á sjónvarpið áður en maður
fer að sofa. Það er náttúrlega
það versta sem maður gerir.“
36 kíló á átta
mánuðum
– Fékkstu einhverja aðstoð
við þetta eða ráðgjöf?
„Nei, ég gerði þetta eigin-
lega bara einn. Í fyrravetur
þegar fór að snjóa og erfiðara
var að hjóla, þá fór ég í Stúdíó
Dan. Þar fékk ég hjálp við að
strekkja húðina en vegna þess
hversu hratt ég grenntist pok-
aði húðin niður. Ég fór í raf-
magnsnudd hjá Stebba Dan
og það gerði mikið.
Ég léttist um 36 kíló á átta
mánuðum. Mér er sagt að það
sé eiginlega allt of mikið. Það
er almennt miðað við að maður
eigi í það mesta að léttast um
hálft kíló á mánuði en ekki
fjögur og hálft eins og ég
gerði.“
Hjólið reddaði miklu
„Á þessum tíma hefur fólk
ábyggilega haldið að ég væri
orðinn brjálaður á hjólinu. Ég
hjólaði upp Urðarvegsbrekk-
una oft á dag, til þess eins að
fara upp. Eins hjólaði ég oft
upp á Seljalandsdal, en það
tekur rosalega í. Hjólið reddaði
miklu, það er engin spurning.“
– Hvaða áhrif hefur þetta
haft á þig? Er mikill munur að
burðast ekki lengur með öll
þessi aukakíló utan á sér?
„Ó, jú. Það munar ótrúlega
miklu. Fyrir það fyrsta hef ég
ekki snúið mig á ökkla í tvö
ár. Það virðist alveg vera búið.
Svo er ég allur orkumeiri og
frískari. Það er miklu auðveld-
ara að vakna á morgnana og
ég endist lengur á daginn. Áð-
ur var ég alveg búinn strax
eftir kvöldmat og hvorki gat
né nennti að gera nokkurn
skapaðan hlut.“
Áróður hefði
þveröfug áhrif
– Svo að það er hægt
að sigrast á offitu, jafn-
vel þótt hún sé ættgeng
eins og í þínu tilfelli?
„Já, já. Það er alveg
hægt. Það er bara svo-
lítið erfiðara ef maður
hefur þetta í genun-
um. En maður þarf
bara vilja.
Svo skiptir miklu
að leyfa sér eitthvað
endrum og eins. Til
dæmis eru laugardag-
ar nammidagar hjá
mér. Svo sleppti ég
mér aðeins núna um
jólin og þyngdist um
þrjú kíló.“
– Þessi árangur
þinn hefur ekki orðið
til þess að aðrir fjöl-
s k y l d u m e ð l i m i r
tækju sig á?
„Nei, nei. Ég er held-
ur ekkert að tuða í þeim.
Það rennur mikil
þrjóska í blóðinu og ég
held að allur áróður af
minni hálfu myndi bara
hafa þveröfug áhrif.“
– halfdan@bb.is
Guðni Borgarson í dag,
36 kílóum léttari en
fyrir átta mánuðum.
Þessi mynd var tekin fyrir tveimur árum, rétt áður en Guðni (t.h.) tók sig á og grennti
sig.
03.PM5 6.4.2017, 09:238