Bæjarins besta - 19.01.2005, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 9
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma
Sóley Magnúsdóttir
Skólastíg 9, Bolungarvík
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur, fimmtudaginn
13. janúar, verður jarðsungin frá Hólskirkju í Bolungarvík,
laugardaginn 22. janúar kl. 14:00. Þeir sem vilja minnast hinnar
látnu er bent á að láta Hólskirkju njóta þess
Hávarður Olgeirsson
Erna Hávarðardóttir Finnbogi Jakobsson
Sveinfríður Hávarðardóttir
Hildur Hávarðardóttir Hreinn Eggertsson
Ingunn Hávarðardóttir
Olgeir Hávarðarson Stefanía Birgisdóttir
Magnús Hávarðarson Guðný Sóley Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Jóhanns Magnússonar
bifreiðaskoðunarmanns á Ísafirði
Dagný S. Sigurjónsdóttir Magnús Már Þorvaldsson
Elva J. Jóhannsdóttir Barði Önundarson
Magnús Ö. Jóhannsson Helga G D Haraldsdóttir
Heiðrún B. Jóhannsdóttir
Ari K. Jóhannsson Harpa Henrysdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á sjúkrahúsi Ísafjarðar
Halldóra Jóhannsdóttir
Í desember var landað á
Vestfjörðum 3.235 tonnum af
sjávarfangi. Er það um 8%
samdráttur á milli ára í þeim
mánuði. Mun meiri samdráttur
varð í bolfiskafla eða rúm
18%. Samdráttur varð í flest-
um höfnum á Vestfjörðum
nema Bolungarvík og Súða-
vík. Af einstökum fisktegund-
um má nefna að þorskafli dróst
saman úr 2.139 tonnum í 1.547
tonn í ár eða um rúm 27%.
Ýsuafli dróst saman úr 907
tonnum í 812 tonn. Steinbíts-
afli jókst hinsvegar mikið eða
úr 51 tonni í 236 tonn og einnig
jókst rækjuafli úr 207 tonnum
í 237 tonn. Þá var landað í
desember 297 tonnum af loðnu
en engri loðnu var landað í
desember árið áður.
Af einstökum höfnum má
nefna að afli jókst í Bolungar-
vík í desember úr 479 tonnum
í 1.125 tonn. Einnig var aukn-
ing á afla í Súðavík úr 103
tonnum í 173 tonn. Í flestum
öðrum höfnum á Vestfjörðum
varð samdráttur. Má þar nefna
að á Ísafirði dróst afli saman
úr 1.218 tonnum í 645 tonn
eða um rúm 47%. Munar þar
mestu um mikinn samdrátt í
þorskafla.
– hj@bb.is
Samdráttur í afla í desember á milli ára
Aðfaranótt laugardags var
mannlaus bifreið skemmd á
bílastæði á Ísafirði. Sá sem
olli skemmdunum hefur viður-
kennt verknaðinn. Ekki er ljóst
hvað viðkomandi gekk til, en
hann var undir áhrifum áfeng-
is.
Rétt upp úr miðnætti sömu
nótt hafði lögreglan afskipti
af eftirlitslausu unglingasam-
kvæmi í íbúð þar sem húsráð-
andi var ekki heima. Foreldri
eins unglingsins vísaði ung-
mennunum út og var íbúðinni
læst. Einhver ölvun virðist
hafa verið í samkvæminu. Um
var að ræða nokkra unglinga
15 til 16 ára. Foreldrar eru
hvattir til að fylgjast vel með
börnum sínum og reyna af
fremsta megni að fresta áfeng-
isneyslu unglinga með öllum
skynsömum ráðum. Mikil-
vægt er að fylgjast með því
sem unglingarnir eru að gera,
leyfa ekki eftirlitslaus sam-
kvæmi, hafa samráð við aðra
foreldra og framfylgja útivist-
arreglunum, eins og segir í
dagbók lögreglunnar.
Tilkynnt var um sex um-
ferðaróhöpp til lögreglunnar á
Ísafirði í liðinni viku. Engin
slys urðu á vegfarendum í
þessum óhöppum. Skemmdir
á ökutækjum voru töluverðar
í einstaka tilfellum. Í vikunni
hafði lögreglan afskipti af
nokkrum ökumönnum vegna
ljósabúnaðs bifreiða sem ekki
var í lagi. Þá vill lögreglan
árétta að akstur vélsleða í þétt-
býli er stranglega bannaður.
Mannlaus bifreið skemmd á bílastæði
Mun fjöldi sjónvarpsrása á Ísafirði margfaldast á þessu ári?
Örbylgjutíðnir auglýstar laus-
ar til umsóknar innan mánaðar
Svo gæti farið að sjónvarps-
rásum sem varpað er um ör-
bylgju á Ísafirði fjölgi á þessu
ári. Lagalegur þröskuldur er
þó í vegi fyrir því að erlendum
stöðvum verði dreift með þeim
hætti. Hrafnkell V. Gíslason,
forstjóri Póst- og fjarskipta-
stofnunar, segir að örbylgju-
tíðnir á landinu verði auglýstar
lausar til umsóknar innan mán-
aðar og í framhaldinu verði
tíðnunum úthlutað til sjón-
varpsstöðva. Sem kunnugt er
hefur um nokkurt skeið staðið
Tónlistarhátíðin „Aldrei fór ég suður“ haldin aftur í ár
Mikill áhugi á meðal ís-
lenskra tónlistarmanna
Undirbúningur er hafinn
fyrir tónlistarhátíðina „Al-
drei fór ég suður“ sem haldin
verður á Ísafirði um komandi
páska. Eins og mönnum er í
fersku minni var hátíðin hald-
in í skíðaviku Ísfirðinga í
fyrra og þótti takast með ein-
dæmum vel. „Þetta tókst svo
vel í fyrra að það var ákveðið
að telja í aftur“, segir Rúnar
Óli Karlsson, einn þeirra sem
skipar undirbúningsnefnd
hátíðarinnar.
„Við stefnum á að hafa
þetta með svipuðu sniði og í
fyrra, blanda saman vest-
firskum hljómsveitum og
stærri nöfnum annars staðar
frá. Við reynum að hafa þetta
heimilislegt og bjóðum alla
velkomna. Sama staðsetning
og í fyrra er inni í myndinni“,
segir Rúnar Óli, en um síðustu
páska var hátíðin haldin á neðri
hæð húsnæðis sushiverk-
smiðjunnar Sindrabergs á
Ísafirði.
„Það standa yfir viðræður
við hljómsveitir. Það er greini-
lega mikill áhugi meðal tón-
listarmanna, bæði heima-
manna og hljómsveita að
sunnan. Þá er verið að reyna
að fá erlenda listamenn til að
koma fram og eru margir
þeirra mjög jákvæðir fyrir
þessu“, segir Rúnar Óli.
– halfdan@bb.is
til að auglýsa þessar tíðnir og
í september sagði Hrafnkell
að þær yrðu auglýstar innan
tíðar. Í lok nóvember sagði
Hrafnkell að þær yrðu auglýst-
ar á næstunni. Í sömu frétt
sagði Kristján Grétarsson, yf-
irmaður tæknideildar Norður-
ljósa, að ekkert væri því til
fyrirstöðu tæknilega, að Digi-
tal Ísland geti boðið 20 sjón-
varpsrásir með stafrænu formi
á landsbyggðinni þar sem Stöð
2 og Sýn eru til staðar. Aðeins
vanti leyfi til uppfærslu sjón-
varpssenda félagsins.
Hrafnkell segir að útboð á
tíðnum sé mjög flókið og tíma-
frekt verk. Nú séu tilbúin drög
að útboðsauglýsingu sem fari
til kynningar hjá hagsmuna-
aðilum á næstu dögum og að
því sé stefnt að formleg aug-
lýsing verði birt innan mánað-
ar. Hann segir að áhugasamir
hafi sex vikur til þess að skila
inn hugmyndum sínum eftir
að auglýsing birtist. „Að því
loknu munum við meta um-
sóknir. Hvað það tekur langan
tíma byggist auðvitað á því
hversu margir aðilar sækja um
tíðni. Verði sótt um færri tíðnir
en til ráðstöfunar eru mun mál-
ið ekki taka langan tíma. Verði
hinsvegar sótt um fleiri tíðnir
en í boði eru mun taka tíma að
fara yfir umsóknir og meta
þær meðal annars með hlið-
sjón af því hversu mikla þjón-
ustu viðkomandi hefur í hygg-
ju að veita“, segir Hrafnkell.
Kristján Grétarsson, yfir-
maður tæknideildar Norður-
ljósa, segir að stefna Stöðvar
2 sé óbreytt. „Við munum
sækjast eftir tíðnum til þess
að geta komið fjölvarpi okkar
um landið“, segir Kristján. Að-
spurður hvað það taki langan
tíma að uppfæra senda félags-
ins eftir að leyfi hafa fengist
segir hann fyrirtækið hafa sett
sér þá stefnu að uppfæra senda
um allt land á einu ári. Hann
segir þó einn lagalegan þrösk-
uld á málinu.
„Samkvæmt núgildandi
fjarskiptalögum má ekki dreifa
erlendum sjónvarpsrásum
með UHF-tíðni. Þessi varnagli
var settur í lög á sínum tíma til
þess að tryggja að erlendar
stöðvar næðu ekki að einoka
þetta tíðnisvið. Nú hafa tækni-
framfarir orðið það miklar að
hægt er að senda margar rásir
á sömu tíðni þannig að þetta
ákvæði er óþarft að mínu mati.
En til þess að við getum boðið
erlendar stöðvar þarf að breyta
lögum og vonandi verður það
gert fljótlega.“
Af framansögðu má ætla að
ekki megi búast við fjölgun
sjónvarpsrása um örbylgju á
Vestfjörðum fyrr en líða tekur
á árið. Hvort lagalegi þrösk-
uldurinn verði fjarlægður er
síðan annað mál.
– hj@bb.is
Íbúar á Ísafirði geta væntanlega ekki vænst
stafrænnar sjónvarpsútsendinga fyrr en líður á árið.
Frá hátíðinni í fyrra.
03.PM5 6.4.2017, 09:239