Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.01.2005, Qupperneq 11

Bæjarins besta - 19.01.2005, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 11 a borin rðið í rúst milli tannanna á DV og þar með öllum landslýð „Í gamla daga kunni ég alveg að skemmta mér en það er liðin tíð núna að ég sé í skemmtanastandi“, segir Guð- mundur. „Ég hef ekki drukkið í tvö ár. Ég lenti í vandræðum þegar ég var unglingur, en er ekki svo með marga? Ég held að mjög margir gangi í gegn- um það á þessum árum. Ég hef alltaf haft stimpil á mér sem ofbeldismaður en hef ekki verið kærður nema fyrir þessi tvö brot. Í dag tek ég ekki mikið mark á því hvað fólk segir um mig. Maður má ekki láta orð særa sig.“ „En þetta hefur ekki bara áhrif á okkur heldur líka alla í kringum okkur“, segir Guð- rún. „Börnin okkar, foreldrana og ömmurnar. Alla sem standa manni nærri. Segjum sem svo að frænka okkar hefði ekki heyrt lengi af okkur og allt í einu sér hún þessar greinar í DV. Hvað á hún að halda? Þó að við sjálf gætum hlegið að þessu af því að þetta er ekki rétt, þá viljum við hreinsa mannorð okkar. Ég myndi skríða undir borð og dauð- skammast mín ef þetta væri rétt og reyna að vekja sem minnsta athygli á þessu. En úr því sem komið er vil ég einmitt vekja sem mesta athygli á þessu máli. Ég ætla að fá æru mína aftur.“ – Nú eruð þið þekkt fyrir mikið skap. Haldið þið að það hafi eitthvað að gera með það að fólk dæmi ykkur fyrirfram? „Sem krakki og unglingur var ég mjög skapstór en ég er ekki þannig í dag“, segir Guð- rún. „Að vísu hef ég alveg skap en er orðin mun rólegri. Ég er mjög breytt manneskja frá því að ég bjó hér áður fyrr. Þegar ég kom aftur til Ísafjarð- ar eftir að hafa búið annars staðar í nokkur ár var ég ein- stæð móðir, orðin laus og liðug og naut lífsins. Fólk tók eftir því og ég hef lent á milli tann- anna á fólki.“ „Ég fór að sækja AA-fundi fyrir um tveimur árum“, segir Guðmundur. „Ég náði úr mér áfengisbölinu og hef ekki drukkið síðan. Ég er hættur að fara út á lífið nema þegar ég er að vinna sem dyravörður í Sjallanum. Ég get ekki breytt því hvernig fólk hugsar og læt það ekki hrjá mig lengur. Ég gerði ýmsa hluti í gamla daga en það breytir því ekki hvernig ég er núna. Maður lærir af mistökunum.“ Vanmátturinn svo mikill „Daginn eftir að greinin birt- ist í DV út af dómnum yfir mér kom önnur grein um mig“, segir Guðmundur. „Þar stóð að ég hefði verið rekinn úr KFÍ vegna fíkniefnaneyslu. Það er tóm lygi. Þar stóð líka að ég væri núna að spila með í b-deild með Fúsíjama og eina ástæðan fyrir því að ekki væri búið að reka mig úr liðinu væri sú að ég var stigahæstur í leik. Ástæðan fyrir því að ég hætti í KFÍ var aftur á móti sú að ég var búinn að vera þarna í tíu ár og fannst það vera að taka tíma frá fjölskyldunni minni. Ég talaði við Baldur Inga Jónasson þjálfara um að ég vildi hætta út af fjölskyld- unni og það var ekkert mál. Eftir að þetta birtist í DV setti Baldur inn á vefsíðu KFÍ að fíkniefni hefðu alls ekki komið við sögu þegar ég hætti og að ég hafi ekki verið rekinn. Ég sjálfur vildi einfaldlega hætta að spila í úrvalsdeildinni. Í annarri deild er maður meira að þessu sér til gamans. Í íþróttunum hafði ég líka fót- brotnað þrisvar á fjórum árum og handarbrotnað einu sinni. Eftir að þetta kom fyrst upp með Tinnu áður en það fór fyrir dóm vildi fólk láta reka mig úr KFÍ. Einnig þegar ég sótti um vinnu hjá verktaka- fyrirtækinu Ágústi og Flosa átti fyrst ekki að ráða mig út af þessu. En Torfi Jóhannsson trúði á mig og vissi hvernig maður ég er. Hann vildi fá mig í vinnu og studdi mig líka í KFÍ. Ég er honum mjög þakk- látur fyrir það“, segir Guð- mundur. „Vinnufélagarnir standa al- veg við bakið á manni og að sjálfsögðu fjölskyldan“, segir Guðrún. „Það skiptir gríðar- legu máli að fá stuðning. Mér finnst samt mjög mikilvægt, þó það sé ekki nema í okkar litla samfélagi, að því verði komið á hreint að ég er ekki ofbeldiskona. Mér finnst líka að lögregluembættið á Ísafirði þurfi að gera hreint fyrir sínum dyrum því að orðspor lögregl- unnar hefur einnig verið flekk- að. Ég hitti ókunnuga konu á götu og hún sagði að mikið vald væri sett í hendur mínar miðað við það sem kæmi fram í DV. Í raun er verið að gera lítið úr embættinu með því að segja að ein lítil kona eins og ég geti haft í hótunum við lögregluna og stjórnað því hverjir eru handteknir. Einnig gæti fólk dregið þá ályktun að yfirlögregluþjónninn væri að tjá sig við fjölmiðla um mál sem er enn á rannsóknarstigi, sem ekki er rétt. Það gæti litið út eins og þeir blaðri bara um öll mál. Sumir hafa sagt við mig að í rauninni líti ég ekki svo mjög illa út í þessu máli, heldur miklu frekar embættið. Þegar þetta birtist fyrst í DV var það mikið áfall. Ég bara trúði því ekki að þeir gætu birt svona rugl. Ég gat ekki sofið nóttina eftir að það birtist, ég var svo reið. Vanmátturinn var svo mikill. Maður gerði sér einmitt þá fulla grein fyrir því hvað þetta er mikið sorpblað. Maður hafði lesið blaðið og stundum haft gaman af. En nú veltir maður því fyrir sér hvort yfirleitt nokkuð sem maður les í þessu blaði sé rétt. Ég vil bara fá mannorð mitt hreinsað og mun gera það sem ég get til að fá það fram. Á meðan get ég lítið gert. Ég stend bara teinrétt í baki og fólk má bara trúa því sem það vill. Mér finnst samt að fólk eigi að koma til mín og spyrja en ekki pískra um þetta hvert í sínu horni“, segir Guðrún Guðmannsdóttir. Þau systkin- in ætla að halda áfram baráttu sinni við að fá uppreisn æru eftir það sem sumir kalla af- töku án dóms og laga í DV. Og ekki þá fyrstu á þeim bæn- um. – thelma@bb.is 03.PM5 6.4.2017, 09:2311

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.