Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.01.2005, Page 13

Bæjarins besta - 19.01.2005, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 13 Augnlæknir Þóra Gunnarsdóttir, augnlæknir verður með móttöku á Ísafirði dagana 24.-26. jan- úar nk. Tímapantanir eru í síma 450 4500, á milli kl. 08:00 og 16:00 alla virka daga. Magnús Reynir Guðmundsson, bæjarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra „Viðvarandi taprekstur Ísafjarð- arbæjar er tilræði við byggðina“ Magnús Reynir Guð- mundsson bæjarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra í Ísa- fjarðarbæ segir að viðvarandi taprekstur bæjarins sé tilræði við byggðina. Hann lagði fram fjölda breytingartil- lagna á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku sem allar voru felldar. Magnús Reynir segir tekjuskiptingu ríkis og sveit- arfélaga hafa verið ranga um árabil undir ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknar- flokks. „Þeir flokkar hafa haft fjöl- mörg tækifæri til þess að leiðrétta þá tekjuskiptingu en lítið gert. Þrátt fyrir að flestir séu sammála um að tekju- skiptingin sé röng veitir það sveitarfélögunum enga heim- ild til þess að eyða um efni fram. Stakk verður að sníða eftir vexti. Þar mega engar væntingar um hugsanlega breytta tekjuskiptingu ráða för. Langvarandi taprekstur bæjar- félags okkar er tilræði við byggðina sjálfa og íbúa henn- ar. Tapreksturinn heggur að rótum samfélagsins, leggur klyfjar á komandi kynslóðir. Skuldugt sveitarfélag er ekki aðlaðandi búsetukostur“, segir Magnús Reynir. Sem kunnugt er lagðist Magnús gegn ýmsum gjald- skrárhækkunum meirihlutans. Aðspurður hvort ekki felist tví- skinnungur í því að leggjast gegn gjaldskrárhækkunum á reka sveitarfélagið með tapi. Þess vegna lagði ég fram tillögur til þess að tryggja viðunandi rekstur. Því mið- ur voru þær allar felldar. Það er hinsvegar gríðarlegt áhyggjuefni það hugarfar sem blasir við þegar við sjáum hverja meirihlutinn vill láta bera þær auknu byrðar sem viðvarandi tap- rekstur krefst. Þar eru kall- aðir til aldraðir, öryrkjar og barnafólk. Það er skelfileg niðurstaða sem maður á ákaflega erfitt með að kyng- ja. Það er alvarlegasti hlut- urinn við þessa nýju fjár- hagsáætlun“, segir Magnús Reynir Guðmundsson. – hj@bb.is sama tíma og lagst er gegn taprekstri segir Magnús svo ekki vera. „Ég hef í tvö ár reynt að benda mönnum á þá einföldu staðreynd að við megum ekki Magnús R. Guðmundsson. Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar „Mikil nauðsyn að ríkisvaldið taki á með sveitarfélögum í að leiðrétta fjárhaginn“ Halldór Halldórsson bæjar- stjóri Ísafjarðarbæjar segir sér vera ofarlega í huga hversu rekstur sveitarfélaga er orðinn þungur og segir mikil nauðsyn að ríkisvaldið taki á með sveit- arfélögum í gegnum tekju- stofnanefnd til að leiðrétta fjár- haginn. Fjárhagsáætlun Ísa- fjarðarbæjar var samþykkt í síðustu viku. Hann segir kostn- aðarhækkanir hafa orðið mikl- ar vegna launahækkana og þess vegna verði hækkun á gjaldskrám. Hann segir að gerður hafi verið samanburður við aðrar gjaldskrár fyrir síðari umræðu til að varpa ljósi á hvar Ísafjarðarbær stæði og hann muni gera frekari saman- burð á næstu dögum og birta hann fljótlega. „Við tökum á kostnaðarhækkunum með tvennum hætti. Annars vegar með samdrætti í rekstri m.a. með fækkun um 7 stöðugildi og með því að hækka gjald- skrár“, segir Halldór. Halldór segir nauðsynlegt að einangra ekki Ísafjarðarbæ í umræðu um fjármál sveitar- félaga sem eitthvað sérstakt fyrirbæri. „Þessi staða er því miður hjá um 70% sveitarfé- laga landsins ef marka má nið- urstöðu rekstrar undanfarinna ára. Það er erfitt að feta þá braut að hafa gjöld og álögur vegna þjónustu Ísafjarðarbæj- ar eins lágar og mögulegt er en um leið þjónustuna eins góða og mögulegt er. Við reyn- um hvað við getum“, segir Halldór. Að undanförnu hefur farið fram mikil umræða um fjármál Ísafjarðarbæjar og sýnist þar sitt hverjum. Halldór segir að aldrei hafi verið dregið úr því af hálfu hans eða meirihluta bæjarstjórnar að fjármál sveit- arfélaga séu ekki í lagi og þurfi leiðréttingar við á landsvísu. Þar sé Ísafjarðarbær engin undantekning. „Handbært fé frá rekstri er áætlað 45 milljónir króna og öll árin sem undirritaður hefur verið við störf hefur Ísafjarðar- bær verið rekinn með afgangi frá rekstri í formi handbærs fjár. Það segir að reksturinn hefur alltaf skilað einhverju upp í afborganir lána eða fjár- festingar en ekki nógu miklu. Með því að lækka skuldir bæj- arins höfum við náð fram rekstrarbata í lægri vaxtagjöld- um“, sagði Halldór. – hj@bb.isHalldór Halldórsson. Rjúpur hafa verið að sjást í görðum í bæjarfélögum á Vestfjörðum undanfarnar vikur, meðal annars í Bol- ungarvík og á Ísafirði. Ekki er óalgengt að rjúpur sjáist í byggð þegar jarðbönn eru eins og þau eru í dag. Þess má geta að samkvæmt rjúputalningum Náttúrustofn- unar Íslands í vor hafði rjúpustofninn aukist mikið frá því árið áður er stofninn var í algeru lágmarki víðast hvar á landinu. – thelma@bb.is Rjúpur í byggð- um Vestfjarða Starfsmenn Ísafjarðarbæjar sem sjá um snjómokstur Ekki sendir inn á snjóflóða- hættusvæði nema undir eftirliti Mokstursmenn Ísafjarðar- bæjar eru ekki sendir á snjó- flóðahættusvæði nema rík ástæða sé til og þá undir eftir- liti. Þetta segir Þorbjörn Jó- hannesson, verkstjóri áhalda- húss Ísafjarðarbæjar, aðspurð- ur um frétt Svæðisútvarps Vestfjarða þar sem sagt er að svo virðist sem öryggis mokst- ursmanna bæjarins sé lítt gætt með tilliti til snjóflóðahættu. „Almannavarnanefnd bann- ar okkur að vinna á þeim svæð- um þar sem er snjóflóðahætta. Þangað eru menn ekki sendir nema að beiðni yfirvalda og þá að sjálfsögðu undir eftir- liti“, segir Þorbjörn og tekur sem dæmi mokstur að bænum Hrauni í Hnífsdal þegar þar hafði nýfallið snjóflóð og hættuástand enn í gildi. Í frétt Svæðisútvarpsins segir m.a.: „Þrír moksturs- menn eru að störfum á Ísafirði og eru þeir ekki útbúnir með snjóflóðaýlum. Tvær vélanna geta náð sambandi gegnum gamlar CB stöðvar, sem oft heyrist illa í. Þriðja vélin, sem að jafnaði mokar í Hnífsdal, er með bilaða talstöð. Þurfa mokstursmenn sjálfir að kaupa sér GSM síma til að tryggja öryggi sitt. Flateyrarvélin er með NMT síma, sem er í lagi. Í síðustu viku munaði minnstu að stórt snjóflóð lenti á einni snjómokstursvélinni, sem var stödd á Skutulsfjarðarbraut.“ – halfdan@bb.is Unnið að snjómokstri á Ísafirði. 03.PM5 6.4.2017, 09:2313

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.