Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.01.2005, Blaðsíða 14

Bæjarins besta - 19.01.2005, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 200514 Bóndalæri og Gleymda kakan Sælkeri vikunnar · Sigurbjörg Guðmundsdóttir á Ísafirði Sælkeri vikunnar býður upp á fljótlegt og gott lamba- læri, svokallað bóndalæri. Hún segir lærið vera vinsælt jafnt hjá börnum sem full- orðnum og alveg tilvalið í annríki dagsins. Þá sé hægt að hafa lærið tilbúið og svo kveikt á ofninum um leið og maður kemur heim. Einnig býður Sigurbjörg upp á Gleymdu kökuna sem er gómsæt sem eftirréttur eða með kaffinu. Bóndalæri Lambalæri 1 grænmetisteningur 1 kjötteningur kartöflur grænmeti Kryddið lærið eftir smekk og látið á ofnskúffu sem klædd hefur verið með álpappír. Skerið niður kartöflur, hýðið má vera á, og setjið á ofn- skúffuna ásamt afgangsgræn- meti eða eftir smekk. Hellið vatni yfir og setjið grænmetis- og kjötteninginn út í. Klæðið yfir með álpappír og látið inn í ofn. Eldunartíminn fer eftir lærinu en þegar 20 mínútur eru eftir takið álpappírinn af til að lærið verði stökkt að ofanverðu. Notið soðið af lærinu og grænmetinu sem sósu. Gleymda kakan 6 eggjahvítur 300 g sykur 1 tsk lyftiduft 1 peli rjómi ½ dós niðursoðnar ferskjur Ávextir eftir smekk Stífþeytið hráefnin og setjið í smurt eldfast mót. Bakið við 170° hita í 30-40 mínútur. Slökkvið á ofninum og látið kökuna kólna inn í ofninum. Miðjan á kökunni á að falla saman í miðjunni. Þeytið rjóm- ann og setjið á kökuna ásamt ferskjunum auk ávaxta eftir smekk. Til dæmis má setja vínber, epli eða jafnvel súkku- laðirúsínur. Ég skora á Erlu Kristjáns- dóttur á Ísafirði því ég veit að hún á góðar uppskriftir. Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í Súðavík var ánægður með hvernig til tókst með minningarguðsþjónustuna „Umræðan og upprifjunin var þörf og góð“ Ómar Már Jónsson sveitar- stjóri í Súðavík er ánægður með minningarguðsþjónust- una sem haldin var í íþrótta- húsinu í Súðavík á sunnudag- inn til minningar um þá sem létust í snjóflóðinu þann 16. janúar 1995. Til minningar- guðsþjónustunnar mættu um 200 manns og voru björgun- arsveitarmenn af norðanverð- um Vestfjörðum áberandi meðal gesta. Að lokinni guðs- þjónustu bauð Súðavíkur- hreppur til kaffisamsætis í grunnskólanum. Allir helstu fjölmiðlar landsins voru með sérstaka umfjöllun af þessu til- efni um helgina og á sama tíma var hápunktur landssöfn- unarinnar Neyðarhjálp úr norðri sem efnt var til styrkrar fórnarlamba flóðbylgjunnar miklu í Asíu. Ómar segir að minningar- guðsþjónustan hafi verið mörgum erfið svo og sú fjöl- miðlaumfjöllum sem fram hefur farið fram undanfarna daga. „Þetta hefur tekið í en þetta gaf mörgu fólki tækifæri til þess að ræða þessa hluti útfrá upplifun hvers og eins. Að því leyti var þetta mjög þörf og góð umræða.“ Eins og áður sagði voru fjölmiðlar með töluverða umfjöllun um flóðin nú um helgina. Ómar segist í heild sinni vera ánægður með umfjöllun fjölmiðla. „Mér fannst fjölmiðlar nálgast þetta mál af nærgætni og vinna vel úr þess- um málum. Þessi hörmulegi atburður gleymist auðvitað al- drei og því verðum við að geta rætt hann og rifjað hann upp um leið og lífið heldur áfram“ segir Ómar. – hj@bb.is Kveikt var á kertum til minningar um þá látnu. 03.PM5 6.4.2017, 09:2314

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.