Bæjarins besta - 19.01.2005, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 200518
mannlífið
Ábendingar um efni sendist til Thelmu
Hjaltadóttur, thelma@bb.is sími 849 8699
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Í dag er miðvikudagurinn 19. janúar,
19. dagur ársins 2005
Þennan dag árið1903 strandaði þýski togarinn Friede-
rich Albert á Skeiðarársandi. Áhöfnin komst öll í land
en hraktist síðan um sandinn í tvær vikur og þrír menn
fórust. Árið eftir var byggt skipbrotsmannaskýli á sand-
inum, hið fyrsta hérlendis, að frumkvæði Ditlev Thom-
sen kaupmanns.
Þennan dag árið 1957 varði Kristján Eldjárn, þjóð-
minjavörður doktorsritgerð sína um kuml og haugfé í
heiðnum sið á Íslandi. Athöfnin fór fram í hátíðarsal
Háskólans.
Þennan dag árið 1992 komu Sykurmolarnir laginu Hit í
17. sæti breska vinsældarlistans og jöfnuðu þar með
níu ára met Messoforte.
Heimild: Dagar Íslands. Jónas Ragnarsson tók saman.
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Hvað er að frétta? · Jón G. Guðjónsson í Litlu-Ávík á Ströndum
Á þessum degi fyrir 39 árum
Síldarverksmiðjan í Bolung-
arvík kaup síld í skotlandi
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Helgarveðrið
Spurning vikunnar
Strengdir þú áramótaheit?
Alls svöruðu 349. – Já sögðu 70 eða 20%
– Nei sögðu 279 eða 80%
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið
skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Blaðið hafði af því spurnir að Síldarverksmiðja Einars
Guðfinnsonar í Bolungarvík hefði látið síldarflutningaskip
sitt, Dagstjörnuna, kaupa síld af síldveiðiskipum við
Skotland og myndi flytja hráefnið hingað heim og bræða
vestur í Bolungarvík.
Blaðið sneri sér til Guðfinns Einarssonar og spurði
hann um málið. Hann skýrði svo frá:
Síldar- og olíuflutningaskip okkar Dagstjarnan (ex Þyrill)
flutti fyrir skemmstu út lýsi til Amsterdam, en í þann
mund, er skipið var á leið heim aftur, höfðum við spurnir
af miklum síldveiðum í Norðursjó.
Innilokaður á bænum
Hér í Árneshreppnum er
snjór og meiri snjór. Ekki
hefur hér verið meiri snjór
síðan 1995 og var snjódýpt-
in í síðustu viku 67 cm sem
var það mesta á landinu
samkvæmt vef Veðurstofu
Íslands. Ég er innilokaður á
bænum og kemst ekkert á
bíl nema á mánudögum og
fimmtudögum þegar mokað
er út að Gjögurflugvelli. Þá
kemst ég út í kaupfélagið á
Norðurvegi og í póstferðir
mínar.
Þannig er það nú á flest-
um bæjum hér að íbúar eru
innilokaðir flesta daga vik-
unnar. Við fáum þó nauð-
synjar og allir eru hressir en
þetta eru óneitanlega við-
brigði frá undanförnum árum.
Snjómokstursmönnum
reynist erfitt að halda vegun-
um opnum þar sem veðrátt-
an hefur verið óstöðug og
strax skefur í er þeir hafa
rutt. Engin snjóflóða-hætta
er í hreppnum, alla vega ekki
á nein hús þó sums staðar
gæti fallið flóð á vegi. Það er
mikill léttir að þurfa ekki að
hafa áhyggjur af því.
Ísfirski trúbadúrinn Skúli
Þórðarson hefur látið nokkuð
að sér kveða á krám á Ísafirði
og annars staðar á landinu und-
anfarin ár. Þykja textar hans
beinskeyttir og gagnrýnir og
lagasmíðar hans virðast inn-
blásnar af amerískum farand-
söngvum jafnt sem íslenskri
þjóðlagahefð. Þrátt fyrir þetta
á hann til að brjóta upp formið
með gítarslögum sem eru
framandi jafnvel hinu sjóað-
asta tóneyra.
Skúli er um þessar mundir
að gefa út tvær plötur. Aðra
þeirra kallar hann Bráða-
birgðablús, en hin hefur ekki
enn hlotið nafn, enda hefur
hún ekki ennþá verið tekin
upp.
Árið 2002 gaf Skúli út sex
laga plötu sem fékk ágætar
viðtökur.
„Hún seldist í rúmlega 200
eintökum, sem mér fannst
ágætt. Salan stóð alveg undir
mínum væntingum. Mest seld-
ist á Vestfjörðum. Ég gerði
ekki mikið til að auglýsa hana,
spilaði bara nóg. Ég fór meðal
annars í ferð um firðina með
Mugison. Við spiluðum á Patr-
eksfirði, Tálknafirði, Þingeyri
og á Flateyri.
Sumarið 2003 byrjaði ég
síðan með hjálp góðra manna
að taka upp stærri plötu sem
verður meira í lagt. Ég ætlaði
að koma henni út það sumarið
en af ýmsum ástæðum tókst
ekki að ljúka henni.
Það verkefni er þó ennþá í
gangi. Ég er kominn í hljóm-
sveit og við ætlum núna í vor
að taka upp og gefa út plötu,
ef allt gengur að óskum.“
Söngnám í Reykjavík
Skúli lærir nú söng í Reykja-
vík, auk þess sem hann spilar
á krám þegar svo ber undir.
Aðspurður segir Skúli söng-
námið ganga nokkuð vel.
„Ég hef lært mikið á stuttum
tíma og tekið nokkuð miklum
framförum. Þó námið sé aðal-
lega af klassískum toga kemur
það sér vel í þjóðlagatónlist-
inni.
Námið er að mestu verklegt,
en einnig er kennd tónlistar-
saga, tónheyrn, sviðsfram-
koma og annað.“
Bráðabirgðablús
Meðan æstir aðdáendur
Skúla bíða eftir stóru plötunni
geta þeir svalað þorsta sínum
með Bráðabirgðablús, annarri
sex laga plötu sem Skúli gaf
út um síðustu jól.
„Þetta er, eins og nafnið gef-
ur til kynna, bráðabirgðaverk.
Bara svona til að halda mér
við efnið. Umslögin gerði ég
sjálfur, saumaði þau úr heil-
síðuauglýsingum úr blöðum,
þannig að ekkert umslag er
eins.“
Nálgast má gripinn hjá
Skúla sjálfum og kostar ein-
takið 500 krónur.
Tvær plötur
frá Skúla Þórðar
Horfur á föstudag:
Vestlæg átt, 5-13 m/s og dálítil él, en þurrt austantil.
Áfram kalt í veðri.
Horfur á laugardag:
Vestlæg átt, 5-13 m/s og dálítil él, en þurrt austantil.
Áfram kalt í veðri.
Horfur á sunnudag:
Snýst í vaxandi sunnanátt með slyddu eða rigningu
þegar líður á daginn og hlýnar í veðri.
Horfur á mánudag:
Útlit er fyrir suðlæga átt með rigningu eða slyddu í
flestum landshlutum.
03.PM5 6.4.2017, 09:2318