Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.01.2005, Síða 19

Bæjarins besta - 19.01.2005, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 19 ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Uppáhaldsstaðurinn innanlands · Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í Súðavík Vestfirskar þjóðsögur · Gísli Hjartarson Sportið í beinni! ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Þórsmörkin er minn staður „Þórsmörkin er minn upp- áhaldsstaður á ferðalögum því þar er ein fallegasta náttúrufegurð sem um get- ur. Hún gerist vart stórbrotn- ari. Ég hef komið þangað þó nokkrum sinnum og áður fyrr gerði ég mér reglulega ferð þangað í góðra vina hópi. Ég á margar góðar minningar þaðan. En auðvitað er þetta uppá- halds viðkomustaðurinn fyrir utan Vestfirði, það er nánast óþarfi að taka það fram. Það er eins og að vera spurður hver fallegasta kona heims sé þá nefnir maður að sjálf- sögðu konuna sína fyrst,“ segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í Súðavík. Brennslan mín · Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði Útheimtir góðar græjur til að njóta í botn Uppáhaldslögin mín eru af ýmsu sauðahúsi og úr öll- um gerðum tónlistar. Ég er rétt að verða heit, en læt þessi nægja sem toppinn af ís- jakanum 1. Er völlur grær og vetur flýr – Óðinn Valdimarson Lagið er oft kallað „Ég er kominn heim“.Óðinn syngur þetta lag alveg hreint ótrú- lega vel, og ég held að það sé söngþokkinn hans sem upphaflega dró athygli mína að þessu lagi. Það tengist góðum minningum frá sam- verustund með bestu vin- konu minni í Þingvallasveit fyrir nokkrum árum. Við vin- konurnar hringjum ævinlega hvor í aðra þegar lagið kemur í útvarpinu og syngjum það saman í símann, sama hvar við erum staddar. 2. River deep, mountain high – Tina Turner Frábært lag og frábærlega vel sungið. Féll fyrir því fjórtán ára gömul og verð enn jafn hrifin þegar ég heyri það. Það er ekkert sem toppar Tinu í þessum flutningi. 3. Roll over Beethoven – ELO Rokkútsetning við stefið úr 5. synfóníu Beethovens. Ótrúlega flott útsetning, en útheimtir góðar græjur til að njóta hennar í botn. 4. Wild horses – The Rolling Stones Tengist manninum mínum sem hefur frá ungum aldri verið Stones-aðdáandi. Það kom sér vel fyrir mig að vita það þegar ég var að krækja í hann á sokka- bandsárunum. Ég lét hann strax vita að ég ætti uppáhaldslag með Stones, og viti menn: Bingó! Ég sé ekki eftir því, fjórum börnum og 28 árum síðar. 5. Sveitin milli sanda – Ellý Vilhjálms Ellý var bara ómetanleg söngkona og lagið er undur- fallegt. 6. Oh happy day með ýms- um góðum gospel-kórum Kemur mér alltaf í gott skap. 7. Pump and Circumstanc- es eftir Edvard Elgar Sinfóníuflutningur sem er frábært að setja á fullt þegar maður þarf að þrífa. 8. Tunglskinssónatan eftir Beethoven Kemur mér alltaf í vímu, fátt sem jafnast á við hana, sérstaklega ef maður er eitt- hvað þjakaður á sálinni. Al- gjör endurnæring. 9. Theodórakis Lagið eina sem ég man ekki hvað heitir er ómótstæði- legt. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar Melina Mercury dansaði við það í grískri kvikmynd fyrir mörgum, mörgum árum. Ólína Þorvarðardóttir. SkjárEinn: Laugardagur 22. janúar: Kl. 12:45 – Enski boltinn: Southampton – Liverpool. Kl. 15:00 – Enski boltinn: Man. Utd. – Aston Villa. Kl. 17:15 – Enski boltinn: WBA – Manchester City Sunnudagur 23. janúar: Kl. 16:05 – Enski boltinn: Arsenal – Newcastle. Mánudagur 24. janúar: Kl. 22:30 – Enski boltinn: Blackburn – Bolton. Sýn: Miðvikudagur 19. janúar: Kl. 19:35 – Enski boltinn: Exeter – Man. Utd. Laugardagur 22. janúar: Kl. 18:50 – Spænski boltinn: Barcelona – Racing Sunnudagur 23. janúar: Kl. 13:50 – Ítalski boltinn: Juventus – Brescia Kl. 15:50 – Spænski boltinn: VillaReal – Valencia Kl. 20:00 – Ameríski boltinn: Philadelphia – Atlanta Kl. 23:30 – Ameríski boltinn: Pittsburgh – New England Canal+ Norge: Laugardagur 22. janúar: Kl. 12:45– Enski boltinn: Southampton – Liverpool. Kl. 15:00 – Enski boltinn: Man. Utd. – Aston Villa. Kl. 19:30 – Ítalski boltinn: Inter Milan – Chievo. Sunnudagur 23. janúar: Kl. 14:00 – Ítalski boltinn: Livorno – AC Milan. Kl. 16:05 – Enski boltinn: Arsenal – Newcastle Utd. Kl. 19:30 – Ítalski boltinn: Fiorentina – Roma. Canal+ Sport: Laugardagur 22. janúar: Kl. 15:00 – Enski boltinn: Chelsea – Portsmouth Kl. 17.15 – Enski boltinn: WBA – Man. City Sunnudagur 23. janúar: Kl. 14:00 – Ítalski boltinn: Juventus – Brescia. Fyrir nokkrum árum fór Kristján Haraldsson, bústjóri í Orkubúi Vestfjarða, til Bandaríkjanna ásamt nokkrum hópi annarra Ísfirðinga. Þegar mannskapurinn kom til Flórída hafði nýverið gengið þar yfir fellibylur og valdið gríðarlegu tjóni. Ferðalangarnir óku í rútubíl um héruðin sem verst höfðu orðið úti. Viðgerðarflokkar frá rafveitum voru einnig á ferðinni og voru mjög áberandi. Í fréttum kom fram að nokkrar millj- ónir fólks væru án rafmagns. Þá sagði Kristján: Það hefur nú aldrei orðið svona slæmt hjá okkur í Orkubúinu. Rafmagnsleysi Teiknimynd byggð á lífinu á Ísafirði Ísfirðingurinn Ásgeir Þór Kristinsson er ungur og upp- rennandi teiknari. „Ég byrjaði að teikna þegar ég var 6 ára og hef verið að teikna af og til síðan þá. Mig langar til að læra teiknimyndagerð er að íhuga hvaða möguleikar bjóð- ast í því. Nú er ég við nám við Menntaskólann á Ísafirði. Maður getur líka lært heilan helling bara af því að leika sér sjálfur við að teikna, en ég lærði að skyggja og önnur þess háttar grunnatriði í Iðnskólan- um í Hafnarfirði“, segir Ás- geir. Hann hefur einnig mikinn áhuga á tónlist og er rappari. „Ég er í hljómsveitinni FGT (fordæmdir gangster trúðar). Annars held ég að það passi ágætlega saman að vera rappari og teiknari. Það hefur áhrif á hvernig fígúrur ég teikna, sem er bara hið besta mál. Við í FGT fórum suður fyrir jól og tókum þátt í rappkeppninni Rímnaflæði. Það var skemmtilegt en við breyttum um lag á síðustu stundu svo það hefði nú getað gengið betur. Við lentum ekki í neinu sæti, en þetta var góð reynsla.“ Ásgeir er um þessar mundir að leggja drög að teiknimynda- gerð. „Ég og vinir mínir erum að spá í að gera teiknimynd. Tveir þeirra eru góðir að spinna sög- ur, ég og annar vinur minn sjá- um svo um teikningarnar. Svo myndum við nota tölvutæknina til að gera úr þessu mynd. Við erum bara að leika okkur en það væri gaman ef þetta tækist. Hugsunin er að gera stutta þætti og koma þeim á Internetið. Við erum komnir með smá handrit sem byggt er á lífinu á Ísafirði þó að allt sé ýkt“, sagði Ásgeir. E in af teik ningum Á sgeirs. Ásgeir Þór Kristinsson. Kirkja Ísafjarðarkirkja: Messa og kirkjuskóli sunnu- daginn 23. janúar kl. 11:00. Flateyrarkirkja: Guðsþjónusta með aðstoð Kvenfél. Brynju, sunnudag- inn 23. janúar kl. 14:00. Sólarkaffi í Vagninum á eftir. 03.PM5 6.4.2017, 09:2319

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.