Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.01.2015, Page 4

Bæjarins besta - 22.01.2015, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015 Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620 Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560 Ritstjóri BB og bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson, 892 5362, bb@bb.is Ábyrgðarmaður: Sigurjón J. Sigurðsson. Blaðamenn: Sæbjörg Freyja Gísladóttir, 843 0077, sfg@bb.is Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is Prentvinnsla: Litróf ehf. Upplag: 2.200 eintök Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði ISSN 1670-021X Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is. Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Ritstjórnargrein Nýja Súðavík Spurning vikunnar Hefur þú fengið flensuna í ár? Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Alls svöruðu 386. Já sögðu 111 eða 29% Nei sögðu 275 eða 71% Fjölmenni tók á móti Hálfdáni Flugkappinn Hálfdán Ingólfs- son lenti í síðasta sinn sem at- vinnuflugmaður á miðvikudag í síðustu viku. Hálfdán varð 65 ára daginn eftir og þá eru at- vinnuflugmenn neyddir á eftir- laun, sama hvað tautar og raular. Síðasta flug Hálfdáns var frá Bíldudal og verður það að teljast viðeigandi að hann ljúki ferlinum með flugi til Vestfjarða, en þeir voru hans starfsvettvangur í flug- inu um langt árabil. „Ég á eflaust eftir sakna flugsins, en það er gott að vera laus við þetta vakta- stúss,“ segir Hálfdán sem er ekki að kveðja flugið því hann mun áfram stunda einkaflug. Hann hóf ferilinn hjá Flugfélaginu Erni á Ísafirði árið 1977 og 38 árum síðar endar hann ferilinn hjá sama flugfélagi. Hálfdán fékk atvinnuflug- mannsskírteini 1975. „Akkúrat þegar ég var kominn með skír- teinið þá kom lægð í þetta hjá Herði og ég fór aftur í að vera raf- virki hjá Pólnum í tvö ár þangað til þetta glæddist aftur hjá Herði,“ segir Hálfdán. „Í gegnum tíðina þá hef ég verið með flugið að aðalstarfi í fimm ár og hlutastarfi í fimm, þá verið í rafmagnsstússi hjá Póls. En þetta er lengsta rispan, frá því að ég flutti suður 2003 hef ég verið eingöngu í fluginu og nú er ég orðinn hæfi- lega þreyttur á þessu. Það er fínt að fá smá breik,“ segir hann og þvertekur fyrir að setjast í helgan stein. „Ég ætla að flytja vestur um mánaðamótin og verð eitthvað með Erni bróður í snjódýptar- mælunum og einhverju öðru raf- magnsstússi. Ég ætla allavega ekki að setjast á rassgatið og bíða eftir að verða gamall.“ Frá og með þriðjudeginum 27. janúar verður tekin upp reglu- bundin leghálskrabbameinsleit á heilsugæslunni á Ísafirði. Sýna- takan er í samstarfi við leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands en Erla Rún Sigurjónsdóttir sér um skoðanirnar. Fyrirhugað er að bjóða upp á þessa þjónustu í hverjum mánuði frá og með áramótum. Eingöngu er um leg- hálsskoðanir að ræða en áfram verður boðið upp á skimun fyrir brjóstakrabbameini á vegum leit- arstöðvarinnar árlega líkt og verið hefur. Heilsugæslan vill minna konur á mikilvægi þess að sækja skoð- anir en allar konur á aldrinum 23-65 ára fá boðsbréf í legháls- krabbameinsleit á þriggja ára fresti og oftar ef þörf krefur. Hér á landi hefur skipuleg leit að leg- hálskrabbameini dregið úr fjölda nýrra tilfella á ári um 70% og dánartíðni um 90% frá því leit hófst árið 1964. Þessi góði ár- angur byggir að sjálfsögðu mikið til á góðri mætingu kvenna og allar konur sem fá boðsbréf á næstu vikum eru hvattar til að bóka tíma. – sfg@bb.is Reglubundin leghálskrabba- meinsleit hefst á Ísafirði Hálfdán fékk höfðinglegar móttökur við komuna til Reykjavíkur. Hálfdán ásamt eigendum Ernis, Jónínu Guðmundsdóttur og Herði Guðmundssyni. Ljósmyndir Lilja Dóra Harðardóttir. Nýverið var þess minnst að 20 ár voru liðin síðan Íslendingar voru enn eina ferðina minntir á hverra fórna kann að vera krafist af þeim fyrir það eitt að búa við nyrsta haf: snjóflóð í Súðavík, sem á snöggu augabragði breytti litlu friðsælu sjávarþorpi, þar sem ættliðir margra íbúanna höfðu notið friðsældar og öryggis, í rústir einar. Og reyndar stutt stórra högga á milli á sama ári. Líkt og grasið grær að nýju þótt sölnað hafi að hausti var vitað að sárin foldar, sem snjóflóðið olli, myndu gróa er fram liðu stundir. Óvissan snerist um mannfólkið. Búandi yfir þeim eiginleika að geta samhliða tek- ist á við sjáanleg vandamál og ástvinasöknuð, sem hamfarirnar ollu, tók meirihluti íbúanna þá ákvörðun að snúa heim. Byggja nýja Súðavík. Þetta var djarfmannleg ákvörðun. Flestir segja að þótt ótrúlegt kunni að þykja hafi þetta hjálpað á þeirri erfiðu göngu er fram undan var. Ætli megi ekki orða það svo að hjartað hafi ráðið för. Þarna voru spor genginna kyn- slóða. Þau máttu ekki mást út með öllu. Súðavík varð að vera til. Nú, tveimur áratugum síðar er ljóst hvílíkt gæfuspor var stigið með ákvörðuninni: við snúum aftur, þarna eigum við heima. Hin nýja Súðavík í Eyrardalslandi er bær framtíðarinnar. Þangað sækja barnafjölskyldur. Meðalaldur íbúanna er að lækka, gagnstætt því sem víða er í sjávarbyggð- um. Pétur G. Markan, sveitarstjóri í Súðavík, segir Súðvíkinga stolta af grunnskólanum þar sem börn á leikskólaaldri eru meðal nemenda. Lögð sé mikil rækt við skólann og hann telji á engan hallað þótt hann segi að Súðavíkurskóli sé ákveðin fyrirmynd fyrir aðra skóla á Vestfjörðum. Súðvíkingar eru meðvitaðir um að skólinn er fjöreggið í samfélaginu. Súðvíkinga bíða ýmis tækifæri til atvinnuuppbyggingar, sem bera með sér fólksfjölgun og öflugra samfélag. Grunnurinn að því er atfylgi og skilningur stjórnvalda, öðru fremur með því að bæta aðgengi að raforku, sem löngu er kominn tími á. Stöðug og næg raforka er nokkuð sem nútíma samfélög verða að eiga greiðan aðgang að. Fyrir liggur að Vestfirðir hafa verið dæmdir úr leik, hvað orkufrekan iðnað varðar, þegar kom að spurningunni um stöðugleika raforku á svæðinu. Biðin eftir raforku til jafns við aðra landshluta er búin að vera Vestfirðingum dýr. Úr því verður að bæta. Ákvörðun í þeim efnum: Strax! Samgöngur eru annar megin þátturinn þar sem úrbóta er þörf. Tíðarfarið að undanförnu ætti að hafa opnað augu stjórnvalda fyrir nauðsyn jarðganga milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar. Súðavíkurhlíðin er ekki síður hættuleg en Óshlíðin var. Vel færi á tímamótum hinnar nýju Súðavíkur að Vestfirðingar sæu hilla undir lok á langvinnri bið eftir nægri og stöðugri raforku og heilsárs vega- kerfi til að rjúfa einangrunina sem þeir búa enn við, hvort heldur er um að ræða innan fjórðungsins eða tengsl við hringveginn svokallaða. – s.h.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.